Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1947, Qupperneq 7

Frjáls verslun - 01.09.1947, Qupperneq 7
EINAR ÁSMUNDSSON, hrl.: Hvernig sósíalisminn vard til: 0NNUR GRE IN Karl RBarn Það er engin tilviljun, að kominúnismi og þjóðernis-sósíalismi festu djúpar rætur í Þýzka- landi. Dýrkun Þjóðverja á valdboðum „ofan að“ á sér langa sögu, enda hefur engin siðmenntuð þjóð lagzt eins flöt í dýrkun ríkisvaldsins, eins og hin þýzka. Kommúnisminn felur í sér, að með yfirvöld fara fáir menn eða jafnvel aðeins einn maður og engin andstaða leyfð. Þjóðernis- sósíalisminn felur liið sama í sér. Þetta fellur vrel við hinn gamla þýzka anda, sem gerði þá að miklum hermönnum, og það jafnvel í fornöld, þegar þeir fyrstir allra þjóða sigruðu Rómverja og ráktt þá úr landi sínu. Þýzkir sósíalistar voru ekki á því máli, að ai nema ríkisvaldið, lieldur jn’ert á móti. Lýðurinn skyldi taka ríkisvaldið í sínar hendur og nota það sér í hag. Þjóðverjar óskuðu þess innilega að geta, eftir hörmungar Napoleonsstyrjaldanna, fetað í fótspor Englend- inga og verða mikil iðn- aðar- og verzlunarþjóð, en ráðið, sem þeir sáu til þess, var að ríkisvald- ið væri nógu sterkt. — Landið var ouiao i smáríki, en braLt komst á hreyfing í þá átt að koma öllum þessum mörgu ríkjum undir eina yfirstjórn. Það var raunar ekki fyrr en 1871 að slíkt tókst með forystu Bis- marks, en þó var verkið ekki fullkomnað fyrr en Hitler sameinaði allar þýzkumælandi þjóðir með töku Austurríkis, þótt skammvinnt yrði. Þetta smiðshögg Hitlers kostaði niðurhlutun landsins á ný. Fíc.htc. Fyrirrennarar Karls Marx. En áður en komið er að sjálfum aðalpostula sósíalismans, Karli Marx, verður að gera nokkra grein fyrir þeim mönnum, sem mest áhrif höfðu á hann og lögðu að verulegu leyti grundvöll- inn að kenningum hans. Árið 1806 biðu Þjóðverjar smánarlegan' ósig- ur fyrir Napoleon við Jena. Reis þá upp maður að nafni riehte og hélt „ræður Iiinnar þýzku þjóðar“ scm eru mjög þekktar og dáðar í Þýzka- landi. Hann var ákafur þjóðernissinni og talcli að endurreisn mannkynsins eftir styrjaldarvoð- ar.:i gæti aðeins orðið fyrir tilverknað hinna gvrmansk-norrænu þjóða. Hann taldi að föður- landið stæði ofar öllum einstaklingshagsmunum, og hann bjó til kerli, sem fól í sér að allri fram- leiðslu skyldi stjórnað af því opinbera, svo og allri dreyfingu vara o. s. frv. Það hefur með réttu verið litið svo á, að Fichte væri hinn fyrsti, sem kom sósíaliskri hreyfingu á í Þýzkalandi. En sá maður, sem lang mest áhrif hafði á Marx, var þó Hegel, háskólakennari í Berlín. Hann var á sínum tíma talinn allra manna vitr astur, og bækur lians þóttu lnein uppsprettulind vizkunnar. Islenzkir stúdentar í Höfn á árunum uin og eftir 1830 þekktu kenningar Hegels vel, eins og kemur fram í gömlum bréfum þeirra á milli, t. d. bréfum Jónasar Hallgrímssonar. „Ert þú Hegelianer eða ertu það ekki?“ spurðu jieir hvor annan. En einn var sá af stúdentun- um, sem geðjaðist síður en svo að kenningum Hegels. Það var Jón Sigurðsson. Ef liann hefði gert það, hefði hann naumast orðið þjóðhetja íslendinga. — Nú munu fáir aðrir en þeir, sem sérstaklega leggja stund á heimsspeki til skóla- prófs, lesa stafkrók eftir Hegel. FRJÁLS VERZLUN 15')

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.