Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1947, Page 11

Frjáls verslun - 01.09.1947, Page 11
lólatré í banni. — Lýsiskolan logar aftur. — Mótrök gegn íurSulegum mdl- flutningi. — Sœnskur spegill handa ís- lendingum. — Kœliskápar og eldhús- vaskar. — Skipastóllinn eykst. — Síldin veður. — Kvöldvaka V. R. MIKIÐ HEFUR VERIÐ RÆTT í blöðum borgar- innar um ráðstöfun Viðskiptanefndar, að levfa eng- an innflutning á jólatrjám í ár. Hlýtur hagur okkar að vera mjög bágborinn, ef við í fyrsta sinn getum ekki leyft okkur að flytja inn jólatré, á sama tíma sem við veiðum síld margar milljónir króna hér við Faxaflóa og í Icafjarðardjújri, og gotl útlil er um áframhaldandi veiði. Og þessi innflutningur á jóla- trjám mun aðeins kosta milli 30—40 þús. krónur í erlendum gjaldeyri. • Verður varla annað sagt en að jólin verði fátæk- leg að þessu sinni fyrir blessuð börnin, þegar þetta hátíðartákn vantar, því að jólatrén gera heimilin hlý- legri og skemmtilegri um jólin, og ekki veitti hvað sízt af því nú, þegar allskonar jólagóðgæti er ófáan- legt og nauðsynjar skornar við nögl. ■ft- EITT AF ÞVÍ, sem við íslendingar höfum van- rækt mikið, er smíði á allskonar þjóðlegum minja- gri])um fyrir útlendinga, og er það miður, því að margir þeirra vilja eignast einhvern smáhlut til minn- ingar um landið og komu sína hingað. Nú hafa tvær verzlanir hér í bænum komið með mjög þjóðlegan og skemmtilegan islenzkan minjagrij) á markaðinn. Þessar verzlanir eru Bókabúð Lárusar Blöndals og Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur, en minjagripurinn er lýsislampi úr kopar (kola), af sömu gerð og lampar þeir, sem notaðir voru hér á landi á löngu liðnum öldum og voru aðalljósfæri þjóðarinnar fram að síðustu aldamótum. Er ekki að efa, að þessum minjagrij) verði vel tekið, jafnt af útlendingum og íslendingum, sem hafa gaman af gömlum og þjóðlegum hlutum. Fvlgja hverjum lamna skýringai, sem þýddar liafa verið á sænsku og ensku. ★ MARGIR HAFA FURÐAÐ SIG Á grein Finnboga í Gsrðum, cr birtist í Morgunhlaðinu 18. nóv. s. 1., að tilhlutun Landssambands ísl. útvegsmanna, og fjall- aði um afurðasölumálin og vörukaup okkar frá Ítalíu. Þessari grein hans hefur nú verið svarað í daeblaðinu Vísi 25. nóv. s. 1. af mikilli rökvísi. Bendir greinar- höfundur á þær firrur, sem koma fram í grein Finn- boga og virðast beina afurðasölunni inn á refilstigu. „Vísir'‘ bendir á að eitt af því, sem meztu skiptir þjóðina, er það hvaða verð fæst fyrir útflutnings- aiurðirnar. Fn það séu einnig tvær aðrar hliðar á afurðasölunni sem vert sé að athuga. Önnur er sú, hvað mikið fæst af erlendu verðmæti fvrir þann- gjald- cyri, sem inn kemur. Þetta cr svo stórt atriði í þjóðar- búska])num, að afkoma landsmanna og verðlagið í landinu getur að talsverðu leyti verið undir því kom- ið. Síðan stvður hann mál sitt með röksemdum og dæmum um vörukaup frá Ítalíu, og sýnir fram á, að þjóðin hefur fengið minna fvrir þann fisk. sem seldur var í lírum en nokkurn annan. Einnig svarar hann þeirri kröfu Finnboga, að hrað- frystihúsin fái að ráðstafa „eftir eigin vild“ 20—30% af framleiðslu sinni, „þannig, að þeir megi kaupa fyr- ir andvirðið hvaða vörur, sem þeim sýnist og flvtja inn og selja á hvaða verði, er þeir þurfa til þess að fá greiddan framleiðslukostnaðinn“, eða með öðrum orðum, að ein framleiðslugrein heimti sér til handa sjálfdæmi og rétt til að leggja skatt á borgarana eftir sínum eigin geðþótta. Færi vel á því, að menn kynntu sér þessa grein í „Vísi“, því að að hún er sannarlega þess virði. ★ OFT HEFUR VERIÐ MINNST á það í þessu blaði, hversu okkur íslendingum er ósýnt um allar hömlur og skerðingu á frjálsræði okkar, sbr. grein um þetta efni í síðasta hefti. En það er víða pottur brotinn, og svo er t. d. í Svíþjóð. FRJÁLS VERZLUN 163

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.