Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1947, Side 14

Frjáls verslun - 01.09.1947, Side 14
VELSMIÐJAN HEÐINN ára Þann 1. nóv. s. 1. átli eitt stærsta iðnaðar- og verzl- unarfyrirtæki landsins 25 ára afmæli. „Frjálsri Verzl- un“ þykir því við’eigandi að minnast þessa afmælis með nokkrum orðum og skýra frá starfi þessa merka fyrirtækis, því að þróun járniðnaðarins hér á iandi hefui verið slórkostlegri á síðustu árum heldur en menn almennl gera sér grein fvrir, og á Héðinn h.f. sinn stóra þátl í því. Stofnendur Héðins voru þeir Bjarni Þorsteinsson, vélfr., og Markús Ivarsson, vélstjóri, er nú eru báðir látnir. Keyptu þeir 1. nóv. 1922 smiðju, er Bjarn- héðinn Jónsson járnsm. hafði rekið um marga ára skeið í húsinu Aðalstræti 6 B, en rekstur þeirrar smiðju hafði legið niðri um þriggja ára skeið eftir lát Bjarnhéðins. Gáfu þeir félagar smiðjunni nafnið Héðinn til virðingar þessum iðnaðarmanni. Fyrst í stað voru húsakynnin mjög takmörkuð, og vélar og tæki af skornum skammti, en þó þótti í upp- hafi myndarbragur á rekstri og framkvæmdum véi- smiðjunnar. Þeir félagar létu það vera sitt fyrsta verk að auka húsakosl hennar og tvöfalda Jjannig húsrýmið. Aðalviðfangsefni smiðjunnar á þessum fyrstu árum voru viðgerðir á fiskiskipum, aðallega togurum. Vöxtur smiðjunnar hélt áfram ár frá ári, og fjölgaði vélum og tækjum smám saman, þótt aukn- ingin hafi orðið mest á síðustu árum. Hefur Héðinn oft verið braulryðjandi í að útvega ný og fullkomnari Hluti uj mótorverkstœði „Hé&ins." Vélasalir smi&junnar eru geysistórir og vel búnir a<5 tœkjum. 166 Illuti aj olíukyndingartœkjum fyrir síldarverksmíSjuna SR’46 á Siglufir&i. Tœkin voru jyrst tekin í notkun nú vi'ö brœ&slu Vestjjnr&a- ng F'axajlóasíldur og reynast mun brtri en sams- konar crlend tœki. tæki og vélar, hcldur en áður höfðu þekkzt hér á landi. Vélsmiðjan hefui frá byrjun verið mjög nátengd sjávarútveginum, og með byggingu Lifrarsamlags Veslmannaeyja árið 1932 hófst nýr þáttur í sögu fyrir- tækisins, og þá jafnframt í vinnslu sjávarafurða hér á landi, því þá hóf Héðinn smíði á nýjum og fullkomn- um lifrarvinnslutækjum, sem b.ætu þessa útflutnings- vöru að miklum mun. Síðar kom bygging fleirri lýsis- bræðslna, svo og smiði á lifrarvinnslutækjum í allan togaraflotann. Með smíði þessara vcrksmiðja og tækja hófust stórstígar framkvæmdir á öðrum sviðum sjáv- arútvegsins, má þar nefna byggingu fjölda síldar- og fiskimjölsverksmiðja, kaldhreinsunarstöðva fyrir lýsi. löndunartæki fvrii síld og margt fleira. Þannig hefur þróunin haldið áfram og smiðjan alll- af sótt fram á við og verið brautryðjandi á sviði sjávarútvegsins. Má þar m. a. nefna framkvæmdir smiðjunnar á síðustu árum, eins og t. d. byggingu síldarverksm. Kauðku á Siglufirði 1945, og í sam- bandi við þá verksmiðju, smíði á stærstu síldarpress- FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.