Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1947, Blaðsíða 24

Frjáls verslun - 01.09.1947, Blaðsíða 24
dúAÍHUt Bóndi úr Grírasey var staddur í Húsavík, ev geymsluhús Guð'jóhnsens-verzlunar brunnu þar. Til þess aS draga úr bálinu var nokkru af olíutunnum velt ofan fyrir bakkann. Tunnurnar sprungu er ofan komu og kviknaði í öllu saman, en olían rann log- andi á sœ út. Þá varð honum að orði: ,.Þeir mæla ekki olíuna í pelamálum núna, hel- vítin þau arna!“ — ÍSLENZK FYNDNI. • Tímabœr þjóriustu og tímabœr gjöf hufu tvöfalt gildi. — GEORGE McDONALD. • Það er löng biðröð i’raman við bíóið. Maður kem- ur gangandi fram með röðinni og tekur sér stöðu meðal hinna fremstu. Lögregluþjónn gengur til hans og segir að hann verði að stilla sér upp aftast í röð- inni. . — Það get ég þvi miður ekki, svarar maðurinn, það stendur einhver aftast. Óefnt loforð er ógoldin skuld. — CHRISTOPHER PALMQUIST. Kau])maðurinn: „Góður verzlunarmaður er jafnan hygginn og heiðarlegur.“ Sonurinn: „Hvað er að vera heiðarlegur, ]>abbi?“ Kaupmaðurinn: „Það er að halda öll sín loforð.“ Sonurinn: „En hvað er þá að vera hygginn.“ Kaupmaðurinn: ,.Það er að lofa aldrei neinu.“ I tösku póstmunnsins er margt uS finna: Vottor'i) um eilífa ást og kröfur um tafarlausa borgun! — DOUGLAS JERROLD. Eorstjórinn ( við sendisveininn, sem kom hálftíma of seint). — Þú áttir að vera kominn hingað fyrir hálftíma síðan. Sendillinn: - Nú, livað hefur skeð. 176 „Frjáls Verzlun64 Útgefandi: Verzlunarmannafélag Reykjavikur. FormaSur: Guðjón Einarsson. Ritstjóri: Baldur Pálmason. Ritnefnd: Vilhjálmur Þ. Gíslason, form , Þor- steinn Bernharðsson, Baldur Pálmason. Njáll Símonarson og Gunnar Magnússon. Skrifstofu: Vonarstra-ti 4, 1. hæð, Reykjavík. Sími 5293. BORCARPRENT Vonin ræSur lojorSum okkur en óttinn jramkvœmd- unum. — ROCHEFOUCOULD. • Tveir vitgrannii settust að í smábæog stofnuðu klæða- verzlun saman. Annar þeirra fór til New York til vöru- kaupa, en hinn var heima og gætti verzlunarinnai'. Eit- ir nokkurn tíma fóru reikningarnir að streyma inn frá NewYork. Einn var á þessa leið: 24 dús.yfirfrakkarog 8 dús. ditto; 25 buxur og 4 ditto; 18 dús. hattar og 12 dús. ditto. Öll þessi ditto ollu þeim, sem heima sat, töluverðum áhyggjum, og þegar vinur hans kom aftur frá New York, sýndi hann honum reikningana og spurði: „Hvað meinarðu eiginlegar með því að vera að kaupa öll þessi ditto fyrir klæðaverzlun?“ „Keypti ég ditto?“ spurði hinn. „Jæja, þá hafa þeir svindlað á mér í New York.“ Svo sneri hann aftur lil New York og komst að raun um það að ditto þýddi „sama“. Hann fór því strax heim aflur, og þegar þangað kom, spurði vinur hans: „Jæja, Stjáni minn, gaztu komizt að því, hvað ditto er?‘ ‘ „Já,“ svaraði Stjáni. „Nú veit ég, livað ditto er. Ég er bölvaður asni, og þú ert ditto!“ • Vinnan er undanfari hvíldarinnur. — LONGFELLOW. • Kau]jmaður einn, sem talinn var nokkuð fégjarn. var að slá upp kassa í búð sinni. Gamall maður, er Jón hét, kom inn í búðina og spyr-kaupmanninn, hvað sé í kassanum. „Það er forvitni, Jón,“ segir kaupmaður. „Jæja, ég hélt það væri ágirnd,“ svarar Jón. - ÍSLENZK FYNDNI. • Þekkingin er takmarkalaus, en mótlœkileiki mann- anna takmörkunum háSur. CHAMFORT. FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.