Frjáls verslun - 01.04.1954, Blaðsíða 2
»
Buick * (hevrolet * Vauxhall ■ Opel
Langstærsti bifreiðaframleiðandi i heimi eru
General Motors verksmiðjurnar í Bandaríkjun-
um, en þær senda árlega á markaðinn milljónir
af Chevrolet, Buick og fjölmörgum öðrum teg-
undum. Báðar þessar tegundir hafa árum sam-
an verið meðal vinsælustu bifreiða hér á Islandi.
Astæðurnar til þessara vinsælda eru margar.
General Motors hafa 500 manna starfslið, sem
teiknar nýjar gerðir og hefur tryggt stöðuga
þróun í útliti bifreiðanna, gert þær með hverju
ári fallegri í línum og litum. Þúsundir sérfræð-
inga vinna við smíði og endurbætur á hverjum
smáhlut í vélum bílanna og öðrum tækjum. Þá
er það höfuðkostur, hversu mikið er um þessa
bíla, því að tryggt er að ávallt séu til, víðs veg-
ar um landið, nægar birgðir varahluta. Véla-
deild Sambands íslenzkra samvinnufélaga hefur
umboð hér á landi fyrir Chevrolet og Buick og
veitir allar nánari upplýsingar.
General Motors á einnig verksmiðjur í öðrum
löndum. í Englandi eru það Vauxhall bifreiða-
verksmiðjurnar, sem framleiða ýmsar gerðir
Vauxhall bifreiða. Hafa þær náð svo miklum
vinsældum víðs vegar um heim, að nú stendur
fyrir dyrum stórfelld stækkun á verksmiðjun-
um, svo að þær ge’ti aukið að mun framleiðslu
sína. Hér á landi er fjöldi Vauxhali bifreiða og
hafa þær reynzt með ágætum. Véladeild SÍS
selur einnig þessar bifreiðir hér á landi og veitir ,
allar upplýsingar um þær.
I Þýzkalandi á General Motors Opel verk-
smiðjurnar, sem hafa risið úr rústum styrjaldar-
innar með undraverðum þrótti. Fyrir nokkru
hófst innflútningur á þessum bifreiðum aftur
til íslands og hefur fjöldi þeirra þegar borizt
hingað. Hafa þær vakið mikla og verðskuldaða
athygli. Sú stærsta þeirra, Opel Kapitan, er
óvenjulega glæsileg bifreið, sem margir halda í
fyrstu að sé Chevrolet. Hinar minni hafa einnig
vakið mikla athygli, bæði Olympia, sendiferða-
bíllinn og Caravan, sem er lítill stationvagn,
mjög þægilegur, livort sem er til mannflutninga
eða vörnflutninga. Véladeild STS veitir allar nán-
ari upplýsingar um Opel hér á landi.
Skoðið þessar bifreiðar.
Það er mikið af þeim á
götum og vegum íslands [
og þær hafa reynzt vel. I
bílavali er reynslan meira
virði en nokkuð annað og
um þessa bíla talar hún
slcýru máli.
OPEL