Frjáls verslun - 01.10.1963, Blaðsíða 18
Athafnamenn og frjálst framtak^)
EGILL YILHJÁLMSSQN
bílakaupmaðut'
Egill Vilhjálmsson bílakaupmað-
ur fæddist í Hafnarfirði 28. júní
1893 og átti því sjötugsafmæli í
sumar eð leið. Foreldrar hans voru
Vilhjálmur sjómaður Gunnarsson
Gunnarssonar, eins af elztu Hafn-
firðingum, sem gatan Gunnarssund
í Hafnarfirði er skírð eftir, og Anna
Magnea Egilsdóttir frá Arabæ
pósts, Gunnlaugssonar.
Egill fluttist til Bíldudals með
foreldrum sínum, en þar stundaði
faðir hann sjóinn á skipurn Pétur.s
Thorsteinssonar. Aftur kom Egill
suður og var næst veturinn 1911—
12 í Viðey í fiskvinnu hjá útgerð-
arfélaginu, sem gekk undir nafn-
inu Milljón. Kveðst Egili eftir
þetta fyrst fara að vinna fyrir
sjálfan sig, en fram að þcim tíma
verið eins og faðir hans, fvrirvinna
heimilisins, en systkin hans voru
mörg og öll yngri en hann. Arið
1914 fer Egill að læra að aka bíl,
var meðal hinna fyrstu hér, er það
gerðu. Seinna var hann prófdóm-
ari við bílstjórapróf í átta ár í
Reykjavík. En 1921 stofnaði hann
Bifreiðastöð Reykjavíkur og var
framkvæmdastjóri henuar til 1929,
er hann stofnaði bifreiðaverkstæði
að Grettisgötu l(i—18 og byrjaði
jafnframt bílasölu. Hafði sölum-
boð á Studebaker, Pontiac og
Morris, en Willv’s síðar. Hann
var og einn af stofnendum Stræt-
isvagnafélags Reykjavíkur. At-
hafnasvæði fannst Agli fljótt of
þröngt við Grettisgötuna, og því
keypti hann lóð á horni Lauga-
vegs og Rauðarárstígs 1932 og
byggði fyrsla húsið beint yfir þar
sem Rauðaráin rann. Var Egill
einn þeirra fyrstu, sem hóf að
hyggja yfir strætisvagna hér. En
eftir að hann tók að sér innflutn-
ing og sölu á hinum frægu Willy’s
jeppum, átti verkstæði hans svo
annríkt við að smíða hús á jepp-
ana, því að kaupendur hér vildu
þau heldur en hin innfluttu arn-
erísku, hætti hann að byggja yfir
strætisvagna. Ekki fékk Egill um-
boð fyrir jeppana fyrr en 1951, en
löngu áður hafði liann kynnzt
verksmiðjum þeirra. Hann fór sem
sé mállaus til Bandaríkjanna 1910
og vann um hálfs árs skeið í Will-
y’s Overland verksmiðjunum í To-
ledo í Ohio-ríki. Þá fyrst lærði
Egill erlent mál, en skólagöngu
hafði hann engrar notið í upp-
vextinum nema barnaskóla.
Þegar Egill Vilhjálmsson byggði
og flutti fyrirtæki sitt að Lauga-
vegi 118 árið 1932, hafði liann
þar 1500 fermetra lóð til umráða.
Ekki leið á löngu unz þar var allt-
of lítið olnbogarúm, og með tím-
anum var lóð hans stækkuð, stór-
hýsið breiddi úr sér og nær nú
milli Laugavegs, Rauðarárstígs og
Snorrabrautar, en lóðin alls um
6500 fermetrar. lnnflutningur og
sala á jeppunum hefur verið feyki-
lega ör, og hafa þegar selzt yfir
2500 Willy’s jeppar síðan Egill tók
við umboði þeirra árið 1951. A
þessu ári verðlaunaði hann eig-
anda þúsundasta jeppans, sem hús
var srníðað yfir hér, með því að
gefa honum húsið. Eru því jeppa-
yfirbyggingar í smíðaverkstæði
Egils komnar á annað þúsund. Um
líkt leyti afhenti Egill gullúr að
gjöf þeim fimm mönnum, sem
starfað höfðu í þrjátíu ár við fyr-
irtæki hans, svo mjög er hann
þakklátur þeim fvrir góða þjón-
ustu. A verkstæði hans unnu fyrst
að Laugavcgi 118 um 30 manns, en
í búðinni þá fyrstu árin aðeins
tveir, Egill og Gunnar bróðir hans.
Gunnar var síðan verzlunarstjóri
hans þangað til fyrir nokkrum ár-
um, að hann hóf rekstur kjörbúð-
ar með nýlenduvörur í þessu sama
stórhýsi. En Gcorg bróðir þeirra
er einn hinna fimrn, senr unnið
hafa óslitið við fyrirtækið í þrjá-
tíu ár og veitir forstöðu málning-
arverkstæðinu. Þegar flest var
unnu við fyrirtækið um 140 manns,
en nú starfa þar rúmlega hundrað.
Fyrirtækið er löngu frægt fyrir
kjörorðið „Allt á sama stað“. Eg-
ill er spurður að því, hverju hann
Framhald ó bls. 23
18
FRJÁLS VF.RZLUN