Frjáls verslun - 01.07.1965, Page 2
Hinn ixægi
fílabeinshamar
SOTHEBY'S
Uppboðsíyrirtækið mikla í London
Nú fyrir skemmstu varð nafnið Sotheby’s skyndi-
lega fleygt á íslandi, en það er fyrirtæki, sem til-
tölulega fáir höfðu þekkt til þess tíma. Þann 30.
nóvember brá hinsvegar svo við, að öll íslenzku
dagblöðin birtu fréttir frá Sotheby’s á forsíðum, og
jafnvel símamyndir úr húsakynnum fyrirtækisins.
Ástæðan var sú, að á vegum uppboðsfyrirtækisins
Sotheby’s var eina íslenzka handritið í einkaeigu,
hin margumtalaða Skarðsbók, seld á uppboði fyrir
36.000 sterlingspund eða um 4,3 milljónir íslenzkra
króna. Mörgum mun vafalaust þykja fróðlegt að
kynnast nokkuð hinum frægu listmuna- og bóka-
uppboðum í London, og þá Sotheby’s sérstaklega.
Sú staðreynd, að London er viðurkennd sem mið-
stöð hins alþjóðlega listmarkaðs, á einkum rót sína
að rekja til hinna frægu uppboðshaldara og list-
sölustaða þar.
Listmunauppboð íoru fyrst fram í Hollandi, og
þessi venja fluttist til Englands 1676, en það var
hinsvegar ekki fyrr en árið 1744 að Samuel Baker
í Itussel Street, Covent Garden, hinn upprunalegi
stofnandi fyrirtækis þess, sem nú ber naínið Sothe-
by’s, hélt fyrstu reglulegu uppboð sín. Áður en
þetta varð, höfðu bókasölur farið fram á sam-
keppnisgrundvelli hjá bóksölum, en þeir uppgötv-
uðu smátt og smátt fjárhagslegt gildi uppboðanna,
og hagkvæmni þess að selja þar ýmsan listvarning,
sem oftlega var fluttur til Bretlands frá meginlandi
Evrópu.
Ekki leið á löngu þar til slíkir uppboðssölustaðir
tóku að skjóta upp kollinum, og var málum þá
hagað svo, að almenningi gafst kostur á skoða bæk-
ur, málverk og listmuni þá, sem bjóða átti upp,
áður en til uppboðsins sjálfs kom. Þessir uppboðs-
sölustaðir urðu brátt samkomustaðir þeirra, sem
afskipti höfðu af listum og bókmenntum, og komust
mjög í tízku.
Viðskipti Samuel Bakers gengu hægt framan af.
Heildarvelta hans fyrsta árið var þannig 826 sterl-
ingspund. Þetta er hógvær tala miðað við þær
stjarnfræðilegu upphæðir, sem Sotheby’s selur ár-
lega fyrir nú. (Sem dæmi má nefna, að 1963—1964
seldi uppboðsfyrirtækið muni fyrir 13.251.455 sterl-
ingspund!) Þessar tölur sýna, hversu fyrirtækið hef-
ur stækkað og blómstrað með tímanum.
Fyrstu viku af október þessa árs hófst 222. upp-
boðstímabil Sotheby’s, og að vanda lentu þá margir
dýrgripir úr öllum heimshornum undir hinn fræga,
hvíta fílabeinshamar í húsinu nr. 34 & 35 við Bond
Street í London, og einnig í Parke-Bernet Galleries,
Inc., í New York, sem nýlega er orðið dótturfyrir-
tæki Sotheby’s.
Árið 1767 tókst viðskiptafélagsskapur með þeim
Samuel Baker og George Leigh. Málverk af George
Leigh hangir nú í skrifstofum Sotheby’s, og sýnir
hann sem hæglátan en ákveðinn mann með hvíta
lokka og plómulitaðan hatt. Uppboðshamar hans
UppboðlS um gervllunglið „Early Bird". Boðin er mynd eitir
Churchill, sem seldist fyrir 14.000 pund.
%
FRJÁL8 VXRZLTTN