Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1965, Page 4

Frjáls verslun - 01.07.1965, Page 4
Málverkið eftir Churchill, sem sslt var um Early Bird. Myndin var máluð 1954. endur listaverka, sem vilja selja, ellegar væntan- lega kaupendur. Mat hans á verðmæti listmuna er viðurkennt um allan heim. Oft kemur það fyrir, að hann verður að taka skyndiákvarðanir um að fara í snatri til New York, og hefur þetta færzt í aukana eftir að Sotheby’s keypti mcirihluta hluta- bréfa í fyrirtækinu Parke-Bernet Galleries í New York í júlí 1904. Rætur Parke-Bernet má rekja til Bandaríska listabandalagsins, sem stofnað var 1885, og það varð brátt fremsta fyrirtæki Bandaríkjanna varðandi uppboð á listmunum. Fyrirtækið fékk nú- verandi nafn 1937, skírt eftir Hiram Ií. Parke, fremsta uppboðshaldara Bandaríkjanna, og starfs- bróður hans, Otto Bernet. Vorið 1960 fór aðstoðarmaður Wilsons, Mr. Pere- grine Pollen, til New York til þess að stofnsetja og skipuleggja útibú frá Sotheby’s þar. Hann hafði einnig stundað nám við Eton og Oxford, og varð síðar forstjóri Parke-Bernet Galleries. Samruni Sotheby’s og Parke-Bernet vakti mikla athygli í listaheiminum, og er talið að hann muni vcrða hinn gagnlegasti. Ef lesin er skráin yfir þá muni, sem Sothebv’s hefur selt yfir árin, er það líkast því að lesa ævintýri um liulda fjársjóðu; svo margir dýrmætir munir hafa farið undir hvíta fílabeinshamarinn. Um upp- boðssali fyrirtækisins hafa margir dásamlegir hlutir farið, bæði sagnfræðilegs eðlis og listræns — mál- verk gömlu meistaranna, nútímamálverk, dýrmætir skartgripir, eðalsteinar, bækur, postulín, handrit — minningar um liðna tíma. Aðeins safnarar og sér- fræðingar hafa áhuga á sumum þcssar:i muna. Þarna hafa farið um sali vopn og herklæði fyrri alda, og í nóvember sl. hélt Sotheby’s fyrsta upp- boð sitt á gömlum bílum. Það uppboð fór fram utan aðseturs fyrirtækisins við Bond Street. Næsta upp- boð á gömlum bílum mun fara fram á sumri kom- anda að setri Lord Montague að Beaulieu, Hamps- hire. Söfn um allan heim eru nú á höttunum eftir gömlum bílum til þess að sýna, og mælt er að Rolls Royce-bíII frá 1908 liafi nýverið verið seldur fyrir 7.200 sterlingspund, þannig að gamlir bílar virðast vera góð fjárfesting! Ilugsaidcgt er að Sotheby’s muni færa frekar út kvíarnar á þessu nýja sviði, og selja jafnvel járn- brautarvagna, gamlar saumavélar og fleira í þeim dúr. Naumast er hægt að ljúka þessu greinarkorni um Sotheby’s án þess að rifja upp uppboð á nokkrum heimsfrægum cða óvenjulegum munum. Dæmi: í júní 1960 seldi Sotheby’s silfurborðbúnað Berkeley- kastala fyrir 207.000 sterlingspund. (Þetta er eini franski silfurborðbúnaðurinn frá því fyrir stjórnar- byltinguna, sem til er í heiminum.) Hin fræga mynd Goya af hertoganum af Wellington, sem ný- lega var stolið ,en fannst aftur og hangir nú í National Gallery, fór undir hamarinn hjá Sotheby’s 1960—-1961, og seldist fyrir 140.000 sterlingspund. National Gallery fékk myndina eftir að hæstbjóð- andi á uppboðinu, bandarískur einkasafnari, hafði boðizt til að gefa eftir myndina, svo hún flyttist ekki frá Bretlandi. Á uppboðstímabilinu 1958—1959 fór verð á list- munum mjög hækkandi, og hvert sölumetið á fætur öðru var sett af fyrirtækinu. Ilámarki sínu náði þetta uppboðstímabil er skiptaráðendur hins gífur- lega dánarbús hertogans af Westminster ákváðu að senda nokkuð af skartgripum og listmunum undir hamarinn hjá Sotheby’s til þess að mæta erfðafjár- skatti. Meðal munanna var eitt fegursta málverk Rubens, „The Adoration of the Magi“, mikilsverð- asta málverk, sem nokkru sinni hefur verið á upp- boði. Enskm- einkasafnari keypti það á uppboðinu hjá Sotheby’s fyrir 275.000 sterlingspund, sem þá var uppboðsmet fyrir eitt málverk. Westminster-höfuðdjásnið var selt á uppboði dag- inn eftir fyrir 110.000 sterlingspund. í djásni þessu eru t.veir eðalsteinar, hinir svonefndu Aseot-dem- antar. Þeir voru upphaflega gefnir Charlotte drottn- ingu, og djásnið kcypti síðan markgreifinn af West- minster sem afmælisgjöf handa konu sinni. Auk dæmalausra fjársjóða, sem þessara, eru sögu- legar minjar einnig seldar á uppboðum Sotheby’s, Fram. á bls. 11 4 FRJÁLS VERZLCN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.