Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1965, Side 5

Frjáls verslun - 01.07.1965, Side 5
Bakdyrainngangurinn í 28 Hyde Park Gate. Nokkur hluti garðsins sést á myndinni. Hús aldarinnar í október sl. var húsið við Hyde Park Gate 28, í London, ásamt áfastri húseign við hliðina, selt á uppboði, fyrir fjárhæð, er svarar til 14 millj. ísl. króna. Þar var um árabil heimili Sir Winston Churchill, er hann bjó ekki í Downing Street 10. Eignirnar voru seldar án húsgagna þeirra, sem sýnd eru á myndum þeim, sem fylgja hér. Lady Spencer Churchill flutti þau til núverandi íbúðar sinnar, í Princess Gate, Kensington. Þar hefur hún nú til umráða þrjú móttökuherbergi, fimm svefn- herbergi, fjögur baðherbergi og herbergi fyrir starfslið. í húsinu við Hyde Park Gate 28 eru þrjú mót- tökuherbergi, átta svefnherbergi og fimm baðher- bergi. Innangengt er til hússins við hliðina, en nú- verandi eigendur, Simpsons, hafa þó fullan rétt til að selja þá eign. Það þykir mjög óvenjulegt í London nú á dög- um, að þannig hagi til um tvær húseignir, sem seld- ar eru í hverfi, þar sem lóðir eru dýrar, og leiga há. Mun það hafa ráðið nokkru um, hve hátt sölu- verðið var. Það vakti mikla athygli víða um heim, er það fréttist, að húseignir Sir Winston væru til sölu. FRJÁLSVERZLUN 5

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.