Frjáls verslun - 01.07.1965, Page 9
arliði, sem bækistöðvar hafði í landinu (27.840
milljónir króna frá Bandaríkjunum, að ógleymdum
10.200 milljónum frá Bretum, auk smærri upphæða
frá Frökkum, Belgum og Kanadamönnum). Þar
við bættist sívaxandi vinnuafl, flóttamenn frá A-
Þýzkalandi, unz hr. Ulbricht lokaði landi sínu, 1961.
Þá varð ósigurinn í styrjöldinni til þess, að Þjóð-
verjar hófust handa „með hreint borð“ í verka-
lýðsmálum, að henni lokinni. Gömlum kreddum og
kenningum á því sviði hafði verið kastað fyrir
borð, venjum, sem annars hefðu orðið dragbítur.
Þetta tækifæri var hagnýtt til fullnustu. Hans
Böckler, einn kunnasti verkalýðsleiðtogi samtíðar-
innar, óskaði eftir því, að verkalýðsfélögum yrði
fækkað úr 200, — það var tala þeirra, á tímum
Hitlers — í eitt. Hér hefði verið gengið einu skrefi
of langt, en núverandi tala verkalýðsfélaga er 1(5,
og að þeim eiga aðild um 6 milljónir manna. Verka-
lýður landsins telur um 25 milljónir. Þess má geta
í samanburði, að 176 verkalýðsfélög eru í Bret-
iandi, meðlimir þeirra 10 milljónir, en sambærileg
heildartala verkalýðs þó aðeins nokkru hærri en í
Þýzkalandi.
Starfsemi liggur hvergi niðri í Þýzkalandi, og lög
landsins eru á þann veg, að nær óhugsandi er að
skella á ólöglegum vinnustöðvunum. Er launasamn-
ingar hafa verið gerðir, falla þeir undir landslög, en
þótt samningstímabil hafi styzt að undanförnu, ná
þau venjulega til 12 eða 15 mánaða. Meðan samn-
ingstímabil stendur yfir, og án uppsagnar (sem
venjulega kemur þó alltaf til), þá getur ekki komið
til verkfalls, nema 75% félagsmeðlima gefi sam-
þykki sitt. Þetta hefur þó ekki alltaf í för með sér
verkfall, þótt verkalýðsleiðtogar hafi vopnin í hönd-
unum. Þeim er sjaldnast beitt. Glataðir vinnudagar,
vegna verkfalla, voru á árunum 1957—62 S.700.000
í Þýzkalandi, en 28.700.000 í Bretlandi. Efni ein-
hverjir til ólöglegra verkfalla, njóta þeir aldrei
stuðnings verkalýðsfélaga, en hljóta í stað þess fyrir-
litningu samverkamanna sinna, og er venjulega sagt
upp (með fullu samþykki verkalýðsfélaganna). Þá
mega slíkir brjótar venjulega greiða sektir, er þeir
hafa sætt dómi, fyrir sérstökum verkalýðsdómstól-
um, sem starfa sjálfstætt.
Það er auðvelt að segja, og hefur oft verið sagt,
að það sé þjónslund verkamannsins að þakka, hve
sjaldan kemur til verkfalla í Þýzkalandi. Það væri
vissulega auðvelt, en er þó ósatt. Á fyrstu árum
endurreisnarinnar, þegar barizt var harðlega til að
vinna markað erlendis, þá fóru verkalýðsfélögin sér
Nýir skýjakljúíar og nýir bílar setja svip hinn á lífið í Vestur-
Þýzkalandi.
FRJÁLS VERZLUN
9