Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1965, Page 10

Frjáls verslun - 01.07.1965, Page 10
vissulega hægt, en þó hafa þau náð það langt, að þýzkir verkamenn hafa styttri vinnuviku en brezk- ir. Lágmarkslaun í Þýzkalandi eru þó nokkru lægri, en hlunnindi, bein og óbein, eru þó meiri; um jólin og í sumarleyfum, auk þess, sem almennir helgi- dagar eru 12 í Þýzkalandi, en 6 í Bretlandi. Það gætir engrar undirgefni hjá verkalýðsleiðtogum, og má þar nefna Otto Brenner, hjá II. G. Metall, og telur 1.900.000 meðlimi, og er fyllilega á borð við stærstu og valdamestu verkalýðsféiög í heimi. Hr. Brenner er ekki lengur umdeildur, eins og fyrr — því að það er ekkert að deila um. Árum saman hefur hann horft á atvinnurekendur láta í minni pokann, og þótt hann sé ekki eins harður í horn að taka og fyrr, þá hefur hann í ár krafizt tveggja aukaleyfisdaga, auk árlegrar 10% launahækkunar. Hann fær því sennilega hvorutveggja framgengt. Georg Leber, hjá I. G. Bau (byggingaverkamenn) er í senn ákafur baráttumaður, og snjall málamiðl- ari. Hann hefur unnið stórafrek, með því að koma á sérstökum launagreiðslum, þegar veður eru vond, og jafnvel stóru plasttjöldin, sem menn hans vinna undir, nægja ekki til að skýla fyrir vindum og veðri. í Þýzkalandi gefa launþegar og atvinnurekendur hvor öðrum jafn mikið hornauga og í Bretlandi, eða hverju öðru landi, sem vera skal. Þjóðverjar gera sér þó grein fyrir, að það skiptir litlu máli, hverja atvinnu þeir stunda, þeir eru allir á sama báti. Hvorugur aðilinn lætur illyrði falla í garð hins, þótt samningar eða deilur standi yfir. Stutt- garter Zeitung sagði, er deila virtist framundan milli hr. Brenner og atvinnurekenda: „Sú skoðun, að Iaunþegum og atvinnurekendum beri að komast að samkomulagi, er svo útbreidd, að það er óhugs- andi, að baráttan berist út á strætin. Afturhvarf til gamla hugsunarháttsins er útilokað.“ Það verður að teljast einkennilegt, að það skyldu vera Bretar, sem lögðu hornsteininn að verkalýðs- málum Þjóðverja, á árunum eftir styrjöldina. Má þar minna á samákvörðunarlögin frá 1951, þar sem fulltrúum kola-, járn- og stáliðnaðarins var gert jafnhátt undir höfði. Þá eru lögin frá 1952 ekki síður athyglisverð, en þar var sérhverri verksmiðju, sem hafði fleiri en 21 starfsmann gert að skyldu að koma á fót sérstöku verkamannaráði. Þessar stofn- anir, sem halda uppi svo nánum tengslum milli launþega og atvinnurekenda, leysa venjulega vanda- málin, áður en þau komast á alvarlegt stig. Þannig falla allar tilraunir til að halda á lofti fásinnu, um sjálfar sig. Ilvað, sem menn kunna að vilja segja um Þjóðverja, þá er þar um að ræða meira lýðræði verkamanna að ræða en í Bretlandi, eða öðrum löndum. Það er jafn rangt að telja Þjóðverja haldna þjónslund (skilningur á eigin vandamálum er rétta lýsingin), og sömuleiðis á það ekki við rök að styðj- ast, að Þjóðverjar leggi harðar að sér við vinnu en aðrar þjóðir. Þótt benda megi á, að Prússar leggi hart að sér fyrir góðu kaupi, þá verður það að segjast um íbúana í Rínarhéruðunum, að þeir eru sjálflilífnasti og óáreiðanlegasti hópur manna, ekki aðeins fyrir norðan miðbaug, heldur sunnan líka. Ibúar Bæheims, ef þá skal telja til Þjóðverja, fara milliveginn. Skýringin á framleiðniaukningu í Þýzkalandi (28 stig í Þýzkalandi síðan 1928, miðað við 19 í Bretlandi) er ekki að finna í þjóðareinkenn- um, heldur í mciri hæfni, sem beitt er af áhuga. Þótt Þjóðverjar óttist hagræðingu og sjálfvirkni á sama hátt og Bretar, þá gera þeir sér grein fyrir, að báðir þessir þættir leiða til styttri vinnutíma, lengri leyfa og hærri launa. Þýzkir verkamenn stefna að því að taka í notkun nýjar vélar, á undan öllum öðrum. Þá gætir engrar tortryggni í garð erlendra verkamanna, sem eru nú hátt á aðra milljón. Dr. Erhard hafði mikilvægu hlutverki að gegna, í upphafi, er hann gaf bæði launþegum og atvinnu- rekendum lausan tauminn, og gerði þá að sinnar eigin gæfu smiðurn, í þjóðfélagi, sem einkennist af samkeppni, og stjórnað er af ráðherrum, sem aðeins fylgjast mcð, ef frá eru talin nokkur atriði húsnæðis- mál, námugröftur og ríkisjárnbrautir, þar sem fé- lagsmál eru í forsæti, og í sparifjármálum, þar sem 10 FRJÁL.S VHRZIitTN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.