Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1965, Qupperneq 17

Frjáls verslun - 01.07.1965, Qupperneq 17
markaður — eða um 1%. Endurútgáfa sígildra verka er því ekki ýkja áhæt.tusöm, og þetta skýrir hversu á því stendur að í flestum löndum hefur „pappabandið“ skapað flóð endurprentana af öll- um tegundum, sem menn höfðu ekki þorað að láta sig dreyma um eða vona. Bækur, sem höfðu löngu horfið af markaðnum, hafa nú aftur haldið innreið sína á almenningsmarkaðinn, og liægt er að kaupa þær hvar sem vera skal. En jafnframt eru þessari efnisauðlind takmörk sett, og þessi háttur hefur ýmsa ókosti. Tala þeirra sígildu verka, sem bókmenntirnar eiga, er ekki ótak- mörkuð. E. t. v. nemur hún nokkrum þúsundum í bezta lagi, og menn geta með nokkurri vissu horft fram til þess tíma að fjöldaútgáfubækurnar í hin- um þróaðri löndum beri þúsundir titla. Því hlýtur að koma að því, og er raunar skammt undan í viss- um löndum, að mettun markaðsins mun valda skyndilegu hruni í þessum efnum, og þá mun eina örugga söluleiðin fyrir þessa gífurlegu útgáfustarf- semi byggjast á eðlilegri menningarnotkun skóla, háskóla og annarra stofnana. Einnig er hægt að gefa út metsölubók, á meðan liún er enn í góðri sölu, áður en hún verður sígild sem slík, og á meðan eina matið, sem hún hefur gengið undir, er venjuleg sala í bókaverzlunum. Þetta kann að reynast mjög ábatavænleg aðferð, en því miður hafa margir útgefendur ekki enn skilið aðferðirnar við þess háttar bðkasölur. Þeir bíða yfirleitt of lengi eftir því að bókin nái söluárangri í venjulegri útgáfu, áður en þeir framlengja þann árangur með því að gefa hana út í fjölútgáfu. Þeir ímynda sér, að þurrausa verði vinsældabrunn bókarinnar áður en hún er gefin út á þann markað, sem þeir halda að sé aðeins framlenging á sama les- endahópi. En staðreynd er, að reynslan hefur sýnt að hið rétta augnablik til þess að flytja bók úr venjulegri útgáfu í fjölútgáfu, er þegar salan á venjulegu útgáfunni nær hámarki. Ejölútgáfan dregur síður en svo úr söluárangri venjulegu útgáfunnar, heldur þvert á móti blæs fjölútgáfan nýju lífi í hina venjulegu, og hefur þann- ig á hana áhrif, á meðan fjölútgáfan sjálf byggir upp sölur sínar á grundvelli áhuga þess, sem komið hefur fram í hópi „menntamannanna“. í háþróuðum þjóðfélögum tuttugustu aldarinnar er daglegt samband meðal hins menntaða almenn- ings, ef svo mætti að orði komast, því oft deila þessir aðilar sömu fjölmiðlunartækjum. Bók, sem rætt er um í bókmenntagagnrýnisdálkum dagblaðs, fer ekki algjörlega ofan garðs og neðan lijá þeim lesendum þess, sem fyrst og fremst hafa áhuga á íþróttasíðum eða afbrotafregnum. Eini galli þessa kerfis er því ekki fjárhagslegs eðlis, heldur er hann að finna í þeirri staðreynd, að einhliða aðgerðir stjórna hreyfingu útgáfu bókar frá venjulegri útgáfu í fjölútgáfu. Sú bók, sem um er að ræða, hefur verið örvuð og livött af menningar- legri bókmenntagagnrýni. Nú er hún hinsvegar lögð á altari fjölútgáfunnar, sem því miður hefur ekk- ert „endurvarp“, sem með skoðunum hefur áhrif á seinni útgáfur. Þá komum við að þriðju tegund fjölútgáfubókar- innar — bókinni, sem beinlínis er gefin út fyrir f jöl- markaðinn, og fyrir áhrif eða „pressu“ frá þeim sama markaði. Þessar bækur eru, ef svo má segja, hinar nýju bókmenntalegu bækur í venjulegum skilningi þess orðasambands. Því miður sýnir reynsl- an, að slíkar bækur eru ákaflega fáar talsins. Út- gefendur hafa ekki enn fyllilega skilið eðli tækis þess, sem þeir hafa nú með höndum, og þeir vita enn minna um hversu því skal beita. Hendur þeirra FRJALS VERZLUN 17

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.