Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1965, Qupperneq 18

Frjáls verslun - 01.07.1965, Qupperneq 18
eru bundnar af ýmsum almennum hindrunum, ónóg- um dreifingarleiðum, skeytingarleysi eða beinum fjandskap gagnrýnenda, seni eru f ulltrúar hins „menntaða“ hluta þjóðfélagsins, sem leggst gegn fjölútgáfubókinni. Enda þótt svo sé, og á þetta ber að leggja áherzlu, er það ljóst að fjölútgáfu mun aldrei uppræta bækur í venjulegum útgáfum. Þvert á móti mun hún vekja nýjan áhuga á bókum yfirleitt, með því að færa takmarkalaust út grundvöliinn fyrir bókmennta- legri fjölmiðlun, þannig að bókalestur verði óað- skiljanlegur hluti af hinu daglega lífi. Þeir senr óttast, að hinar dýru bækur, og hinar fremur ódýrari i venjulegum útgáfum, séu dæmdar til þess að víkja af sjónarsviðinu fyrir fjölútgáfu- bókinni, hafa á röngu að standa. Þörfin og löngunin til þess að eiga bækur í fallegum útgáfum, vönd- uðum og endingargóðum, er að dómi hins almenna lesanda endanlegt val, scm aðeins getur verið afleið- ing mikillar lestrarreynslu. Ef svo og svo mörgum eftirlíkingum af skrautútgáfum er nú dreift af bóka- klúbbum, og ef bækur eru oftlega taldar skraut, eða dómur um stöðu í þjóðfélaginu, er það svo sökum þess í slíkum tilfellum á bókareign ekkert skylt við eiginlegan bóklestur, vegna þess að óbrúað bil hefur myndazt milli bókarinnar og tilgangs hennar. Eftir því sem lífskjörum fleygir fram í heíminum, geta flciri og fleiri stéttir leyft sér að kaupa „gæða- bækur“ til eignar, en bóklestur, í samvizkulcgum og bókmenntalegum skilningi, verður áfram forrétt- indi minnihlutans. En fyrir tilstilli fjölútgáfubókar- innar er þetta ástand að breytast, og við getum nú með nokkrum rétti vonast til þess að á næstu 50 árurn muni þessi tegund bóka, „lestrarvélin“, leggja sitt af mörkum í lífi hinna nýju þjóðfélaga, sem munu erfa heiminn. Sálfræðingurinn var í heimsókn á geðveikrahæli. — Ilvernig ákvarðið þér hvort óhætt sé að út- skrifa sjúkling? — Við fyllum baðkar með vatni, látum sjúkling- inn fá teskeið, og segjum honum að tæma það. — Hvað hefur það að gera með heilbrigði sjúk- lingsins? — Þeir sjúklingar, sem eru orðnir heilbrigðir, taka auðvitað bara tappánn úr baðinu, og tæma það þannig. — Nú einmitt það. Þetta liafði mér ekki dottið í hug. — Mciturinn er tilbúinn! — En það var í fréttunum að a!!t ílug hefði legið niðri vegna veðurs í gær. Hvernig gat storkurinn þá lent? 18 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.