Frjáls verslun - 01.09.1968, Síða 11
FRJÁLS VERZLUN
11
EFTA I HNOTSKURN
STOFNUN. EFTA var stofnað með Stokkhólms-
sáttmálanum, sem undirritaður var hinn 4. janúar
1960 og gekk í gildi réttum fjórum mánuðum síð-
ar. Formlegar samningaviðræður stóðu í u. þ. b.
hálft ár.
MARKMIÐ. Tilgangur EFTA er í sáttmálanum
skýrgreindur á þessa leið:
(a) að stuðla að stöðugum hagvexti,
fullri atvinnu, aukinni framleiðni og hagkvæmri
nýtingu framleiðsluþáttanna, fjármálalegu jafn-
vægi og stöðugt batnandi lífskjörum á svæði sam-
takanna og í hverju aðildarríki.
(b) að tryggja það, að viðskipti milli
aðildarríkjanna eigi sér stað á grundvelli sann-
gjarnrar samkeppni.
(c) að komast hjá verulegum aðstöðu-
mun miili aðildarríkjanna við öflun hráefna, sem
unnin eru á svæði samtakanna, og
(d) að vinna að farsælli þróun og aukn-
ingu alþjóðaviðskipta, og fjarlægja stig af stigi
hindranir á vegi þeirra.
AÐILAR Sjö ríki eru fullgildir aðilar EFTA, þ. e.
Austurríki, Bretland, Danmörk, Noregur, Portúgal,
Sviss og Svíþjóð; Finnland hefur mjög náin tengsl
við samtökin sem aukaaðili síðan 1961.
MARKAÐURINN í aðildarríkjum EFTA búa u.
þ. b. 100 milljónir manna og er það stærð þess
markaðar, sem stefnt er að frjálsari viðskiptum á.
SKIPULAG. EFTA-ráðið fer með æðstu stjórn
samtakanna og eru skyldur þess sem hér segir:
(a) að fara með þau völd og störf, sem
því eru fengin samkvæmt samningi þessum [þ. e.
sáttmála EFTA],
(b) að hafa eftirlit með beitingu þessa
samnings og fylgjast með framkvæmd hans, og
(c) að kanna, hvort frekari ráðstafanir
skuli gerðar af hálfu aðildarríkjanna til þess ao
koma í framkvæmd markmiðum samtakanna og til
þess að auðvelda eflingu nánari tengsla við önnur
ríki, ríkjasambönd eða alþjóðastofnanir.
Einn fulltrúi frá hverju aðildarríki á
sæti í ráðinu — og hefur hvert ríki eitt atkvæði.
Nýjar skuldbindingar er ekki hægt að leggja á að-
ildarríkin — nema með samhljóða atkvæðum, enda
er það meginregla í samtökunum að ákvarðanir
skuli teknar einróma. Aðeins við meðferð kæru-
mála — eða á afmörkuðu sviði — innan ráðsins
hafa samþykktir meirihluta gildi. — EFTA eru því
ekki yfirþjóðleg samtök, þar sem meirihluti aðila
hefur vald til ákvarðana, sem bundið geta önnur
aðildarríki.
Ráðið getur sett á laggirnar þær stofn-
anir, nefndir og önnur ráð, sem það telur nauð-
synlegt til þess að koma stefnumálum samtakanna
í framkvæmd. Allmargar fastanefndir eru þannig
starfandi innan EFTA, þ. á m. viðskiptasérfræðinga-
nefnd, ,sem er ein hin mikilvægasta þeirra, efna-
hagsmálanefnd, efnahagsþróunarnefnd, landbúnað-
arnefnd o. fl., auk svonefndrar ráðgjafarnefndar,
en í henni eiga sæti fulltrúar helztu hagsmuna-
samtaka aðildarríkjanna — og koma þeir saman
einu sinni á ári. Láta þeir í ljós viðhorf sín til sam-
starfsins á vettvangi EFTA og geta gert tillögur
þar að lútandi til ráðsins. Meðal sérstakra ráðs-
nefnda fjallar t. d. ein um hugsanlegar breytingar
á reglum um viðskipti með sjávarafurðir.
SKYLDUR Aðilar samtakanna skuldbinda sig
m. a. til að lækka og að lokum afnema tolla og
hver þau önnur gjöld, sem sömu áhrif hafa, í við-
skiptum milli landanna með vörur er sáttmálinn
nær til, sbr. nánari ákvæði hans. Ekki má heldur