Frjáls verslun - 01.09.1968, Blaðsíða 46
FRJALS VERZLUN
46
Evi jpubúar kynntust tóbaki á
fremur óvenjulegan hátt. Þegar
Kólumbus lenti í Vestur-Indíum
12. október 1492, gáfu hinir inn-
fæddu honum tóbaksblöð, sína
dýrmætustu eign. Síðar sá Kól-
umbus og menn hans hina inn-
fæddu ganga um með logandi
teina. Þeir prófuðu að púa svo-
lítið og kynntust þar með vindl-
inum.
Aldarfjórðungi síðar sást fyrst
nokkurs konar tilraunamódel af
sígarettunni, í Mexíkó. Það var
indíánahöfðingi, sem gaf land-
könnuðinum Juan de Grijalva að
reykja, og þótt sígarettan væri
nokkuð öðruvísi útlits en við eig-
um nú að venjast, líkaði honum
hún vel. Áður en leið á löngu, var
það mjög í tízku að reykja sígar-
ettur og fjöldi smáfyrirtækja
byrjaði að framleiða þær á Spáni
og flytja út.
Einn innflytjendanna í Eng-
landi var Philip nokkur Morris,
sem er skráður meðal kaupmanna
í London árið 1850. Þegar Philip
Morris opnaði tóbaksverzlur, sína
voru spænskar sígarettur mjög
vinsælar í Evrópu. En árið 1850
opnaði þýzkur herramaður verk-
smiðju í Sankti Pétursborg í Rúss-
landi og byrjaði að framleiða nýja
tegund. f hana var notað dýrt
tyrkneskt tóbak og fyrsti filter-
inn. Það var bómullarfilter og
sjálfsagt ekki eins fullkominn og
sá, sem við njótum í dag, en þess-
ar sígarettur náðu geysilegum
vinsældum og voru kallaðar „The
Russian Mode“.
Bretar tóku þátt í Krímstríðinu
eins og allir vita, misstu léttvopn-
uðu riddaraliðssveitina, sem
Tennyson hefur gert ódauðlega,
en kynntust hins vegar „Russian
Mode“ sígarettunum. Það var
18.54. Brezkir hermenn höfðu
handtekið nokkra rússneska „koll-
ega“ sína og af forvitni prófuðu
þeir sígaretturnar þeirra. Og
sígaretturnar, ef svo má segja,
hertóku Bretana, því að upp frá
því vildu þeir ekkert annað
reykja.
Þegar þeir komu heim frá víg-
stöðvunum, leituðu þeir um alla
London að þessum sígarettum eða
einhverjum svipuðum, en fundu
ekkert. Þessi eftirspurn vakti
hins vegar tóbakskaupmennina
til umhugsunar og einna fyrstur
til að láta til skarar skríða var
herra Philip Morris.
Áður en langt um leið, hafði
hann safnað til sín hópi sérfræð-
inga frá Rússlandi, Tyrklandi og
Egyptalandi. Þessir góðu herrar
voru allir sérfræðingar í að
,,rúlla“ sígarettur í höndunum,
því þá voru engar vélar til slíkra
Elzta lifandi vörumerki heims er
eflaust Johnny Philip Morris.
hluta. Morris sendi frá sér nokkr-
ar tegundir, en frægastar urðu
Philip Morris, Cambridge, Oxford
Blues, Ovals og nokkrar fleiri.
Viðbrögðin við eftirspurn her-
mannanna voru í rauninni byrj-
unin á sígarettuframleiðslu í
Englandi, og Philip Morris var
þar einna fremstur í flokki.
Löngu eftir að Philip Morris
fyrirtækið var komið á traustan
grunn, opnaði keppinautur verk-
smiðju í London og byrjaði að
selja sígarettur, sem gengu imdir
nafninu Benson & Hedges. Það
leið næstum heil öld, áður en
fjárhagsástæður gerðu Philip
Morris það kleift að kaupa Ben-
son & Hedges og innlima það.
Philips Morris hafði þá flutt út
sígarettur til Bandaríkjanna í
mörg ár, en árið 1902 var fyrsta
félagið stofnað þar. Meðal eigna
þess var sígarettutegund, sem hét
Marlboro, mest selda tegund þess
í dag. Nú, til að gera langa sögu
stutta, var opnað fyrirtæki í Vir-
giníu árið 1919, sem bar nafnið
Philips Morris & Co. Ltd., Inc.
Það var fremur lítið í fyrstu,
en undir stjórn þeirra Reuben M.
Ellis, Leonards B. McKitterick og
Alfreds E. Lyon óx það óðfluga.
Þeir voru hugmyndaauðugir menn
og hugrakkir.
Ein frægasta auglýsingaherferð
sögunnar hófst árið 1933, þegar
vikadrengurinn Johnny varð lif-
andi tákn Philip Morris. Johnny
gekk um og hrópaði: „Call for
Philip Morris, Call for Philip
Morris!“
Þetta er nokkurs konar orða-
leikur, þetta getur nefnilega bæði
þýtt, að það sé síminn til herra
Philips Morris og að fólkið eigi
að biðja um Philip Morris sígar-
ettur.
Johnny náði fljótlega álíka
miklum vinsældum og frægustu
kvikmyndastjörnur þeirra tíma,
og enn í dag vekur hann mikinn
fögnuð á samkomum og í fjöl-
leikahúsum, þegar hann kemur
hrópandi. Líklega er þó ekki þar
á ferðinni hinn upprunalegi
Johnny. En þeir eru sífellt fleiri
og fleiri, sem heyra kall hans,
því að alltaf heldur Philip Morris
áfram að vaxa.