Frjáls verslun - 01.09.1968, Blaðsíða 20
20
FRJÁLB' VERZLUN
lífsviðhorfa, ólíkra vinnuskilyrða
og hinna óumflýjanlegu breyt-
inga þjóðfélagsins.
Þessar breytingar eru sýnilegar
í öllum þjóðfélögum, gömlum og
nýjum, og háhýsi eru reist, jafn-
vel þótt landrými sé nægilegt. Og'
þannig mun það verða í framtíð-
inni.
MINNKANDI
NOTKUNARTÍMI.
Bretland er þéttbýlt borið sam-
an við önnur lönd, en svokallaður
lóðaskortur er afstæður: hann er
fyrir hendi innan borgarmarka og
á nokkru svæði utan þeirra, en
getur vart talizt tilfinnanlegur, sé
litið á landið í heild. Hlutfallið
milli flatarmáls alls Bretlands og
íbúanna er um það bil ein ekra á
hvern íbúa, en 80% af því landi
er notað til landbúnaðar, en að-
eins 8% fer undir borgarstæði.
Jafnvel um miðbik borganna er
ekki eins mikill lóðaskortur og í
fljótu bragði virðist, því margar
byggingar þarf að brjóta niður og
endurbyggja. Áður fyrri var hæfi-
legur notkunartími bygginga álit-
inn 75 ár. Nú hefur hann minnk-
að niður í 50 ár eða minna. Þeim
skoðunum er haldið á lofti, að sér-
hver kynslóð skuli losa sig alger-
lega við gamlar byggingar og
reisa nýjar, að sjálfsögðu með
þeirri undantekningu þó, að sögu-
legar og frábærlega fallegar bygg-
ingar fái að standa.
Hagskýrslur sýna, að árið 1964
voru 16,8 milljón íbúðir í Bret-
landi, og að árið 2000 muni 70
milljónir manna búa þar í landi
og þarfnast 24 milljóna nýrra
ibúða. Kostnaður við þessar fram-
kvæmdir er álitinn vera milli
40.000—80.000 milljónir sterlings-
punda.
Sérhver einstaklingur skiptir
um húsnæði að minnsta kosti 5 til
6 sinnum á ævinni, þegar hann er
ungur og ógiftur, við giftingu og
síðar, þegar börnin eru á unga
aldri, og þegar þau eru uppkom-
in, því þarfir hans breytast í sam-
ræmi við allt þetta. Hann vill fá
aðstöðu fyrir starf sitt, heimili,
og bústað til hvíldar, og háhýsi,
séu þau rétt og vel skipulögð, geta
uppfyllt öll þessi skilyrði.
Nú á tímum höfum við kost á
allri nauðsynlegri þekkingu, hæfi-
leikum og vönduðum byggingar-
efnum, sem til starfsins þarf. Á
tveim síðustu áratugum hafabygg-
ingar, stál og styrkt steinsteypa
tekið ótrúlegum framförum. Ný
tækni gerir kleift að byggja há-
hýsi á fljótan og hentugan hátt.
Jafnvel varðandi hlaðin hús hef-
ur orðið mikil breyting á. Hægt
er að hlaða byggingu, sem er til-
tölulega lítil um sig, upp í 20
metra eða meira, og er það reynd-
ar gert.
Einstakur hæfileiki háhýsa til
að standa af sér jarðskjálfta kem-
ur á óvart. Þau geta staðið af sér
jarðskjálfta og sprengingar, án
þess að verða fyrir teljanlegum
skakkaföllum, þótt smærri bygg-
ingar, sem gerðar eru úr sömu
efnum, í sömu hlutföllum og
formi og byggðar eru á sama
hátt, kunni að falla saman.
HÁHÝSI A FELLIBYLJA- OG
JARÐSK í 4LFTAS VÆÐUM.
Athuganir sem gerðar hafa ver-
ið á íellibylja- og jarðskjálfta-
svæðum, sýna, a'ð háhýsi verða að
geta staðið vel af sér hliðarverk-
andi krafta. Það er fengið með
þunga byggingai innar og með því
að gera hina einstöku hluti veggja
og gólfa samfellda. Það gerir það
að verkum, að byggingarnar geta
tekið til sín orku með því að
vagga til og frá og tryggir, að þær
finni aftur jafnvægi og hindrar,
að einstakir hlutar fari úr skorð-
um á keðjuverkandi hátt. Þessi
samfelling tryggir einnig, að
skemmdir, sem kunna að verða á
byggingunni, eru bundnar við
einn ákveðinn stað, en verka ekki
út frá sér. Kostnaður við slíka
samfellingu er hverfandi, ef vel
er skipulagt fyrirfram, en all mik-
ið mun kosta að koma slíkri sam-
íellingu fyrir, eftir að húsið hefur
verið reist.
Rétt er, að öll háhýsi hæfa ekki
barnafjölskyldum til íbúðar, en
auðvelt er að teikna þau þannig,
að svo megi verða á hentugan
hátt, og á marga vegu betri en
að búa í úthverfi, með þeim fyrir-
vara þó, að það er mjög ólíkt.
Um allan heim er enn leitað að
lausn þess vandamáls, hvernig
kynslóðir framtíðarinnar geti lif-
að á sem hagkvæmastan hátt, og
skipulagning líkamlegra þæginda
er aðeins einn þátturinn. Með
þeirri þekkingu, sem við höfum
nú, getum við að minnsta kosti
skipulagt aðstöðu okkar þannig,
að hún uppfylli allar kröfur,
hvernig sem þær eru fram settar.
FRAMTÍÐ
HÁHÝSA.
Háhýsi framtíðarinnar munu
spara lóðir, færa ferskara and-
rúmsloft og sólskin inn á heimili
okkar og skrifstofur og loks, sé
landslagið heppilegt, munu þau
láta okkur finnast, að við störf-
um og búum í geysistórum garði
fremur en í þröngbýlli borg. Slík
þróun mun losa okkur við ys og
þys gatnanna, óhreinindi, loft-
leysi og hávaða og breiða yfir,
hversu þéttbýl borgin kann í
rauninni að vera.
Háhýsi, framar öllum einingum
borga, geta breytt einkennum
þeirra og haft áhrif á lifnaðar-
hætti þjóðfélagsins. Þeir tímar eru
í nánd, þegar sérhver fjölskylda
á ekki aðeins tvo bíla, heldur
tvær eða fleiri íbúðir í mismun-
andi landshlutum, aðra fyrir dag-
leg störf, en hina til hvíldar.
Það er erfitt að spá um fram-
vindu þróunarinnar og áhrif henn-
ar á daglegt líf okkar. Ýmsum
kenningum er á loft haldið, en
eitt virðist auðsætt: að með hröð-
um framförum tækni og vísinda,
mun sá heimur, sem nú er upp að
ljúkast, vera einstakur í sinni röð.
Álitið er, að orka muni verða
ótæmandi, og með henni bíður
okkar þægilegra líf, bæði andlegt
og líkamlegt. Háhýsi munu ekki
aðeins koma að góðum notum,
heldur munu þau gera komandi
kynslóðum lífið bærilegra.
KÆLI-
og FRYSTIKERFI
UPPSETNINGAR OG VIÐHALD.
VIÐGERÐIR Á ÖLLUM
TEGUNDUM AF KÆU-
og FRYSTITÆKJUM.
KÆLIIVG S.F.
SÍMAR 21686 - 33838