Alþýðublaðið - 28.07.1969, Síða 7

Alþýðublaðið - 28.07.1969, Síða 7
□ Fyrir tveim öldum var uppi Englendingur að nafni Jethro Tull. Tvennt er það, sem hann lét eftir sig, en það er plógur, sem hann á að hafa „fundið upp“ og nafnið. Nafnið hefur vissulega komið að góðum notum, því að nú hefur ein vinsælasta blues hljómsveit í Bretlandi tekið það upp. Jethro ;Tull (hljómsveitin) fæddist,. þegar blues sprengjan sprakk árið 1968, og áhrifa þess gætti um allan heim. Með- limir grúppunnar eru Jan And erson, Martin Barre, Clive Bunker, Glenn Corniek. Þeir hafa gefið út tvær LP: „This Was‘, vægast sagt er hún ein af mörgum vinsælum plötum hjá blues aðdáendum, og „Stand Up“, sem er alveg nv. Nú fyrir stuttu gáfu þeir út litla plötu með laginu „Living In The Past“ í titilhlutverki. Það komst upp í þriðja sæli. Jan Anderson telur sig sjálf- skipaðan talsmann hljómsveit- arinnar, enda ber ekki mikið á minnimáttarkennd hjá hon- urn í viðtali fyrir stuttu í Hit Parade. Segir hann m.a., að þeir vilji ekki predika fyrir fólki, aðalatriðið á að vera tónlistin. Jethro Tull hafa svo \ sarmarlega vandað til nýjustu plötunnar, hún er tekin í 8 'rásum í stað 4 („This Was“), en þá kemur betri hljómur í stereo. Ennfremur sagði Jan: „Vegna leiðinlegs persónu- leika var Mick Abra- hams sparkað, en hann lék á gítar á plötunni „This Was“. í hans stað kom Martin Barre, ágætur drengur, það er gott að vinna með honum.“ Jethro Tull ætla í hljóm- leikaför um Bretland 28. sept- ember til 27. október. Einnig ætla þeir að reyna að freista gæfunnar á Norðurlöndum í janúar n.k. Alþýðublaðið 28. júlí 1969 7 BLIND FAITH □ Fyrsta LP, Blind Faith, var tekin upp í Bandaríkjunum 21. júlí síðastliðinn hjá Polydor. Hefur þessa verið beðið með mikilli eftirvæntingu og þá sér- staklega af bluesáhangendum. Á plötunni eru aðeins sjö lög, enda tekur fyrsta lagið „Do What You Like“ 16 mínútur og er eftir trommuleikarann Ging- er Baker (áður ( Cream). Þrjú laganna eru eftir Steve Win- wood, orgelleikarann (áður í Traffic), „Had To Cry To?Day“, ,Can‘t Find My Way Home‘ og „Sea Of Joy.,‘ Eitt er eftir Eric Clapton gítarsnilling (áður í Cream), „Presence Of The Lord.‘ Ennfremur eru tvö töku- lög á plötunni: „Sleeping In The Ground“ — og „Well, All Right.“ Bassaleikarinn, Rick Grech (áður í Family) virðist ætla að. bíða síns tíma, þar eð ekkert lag er eftir hann á plöt- unni. Blað með myndum og texta fylgja albúminu. NOEL REDDING □ Bassaleikarinn Noel Redd- ing hefur nú yfirgefið Jimi Hendrix Experience eftir tveggja ára samvinnu. Ástæð- an var ósamkomulag við Hendrix. Redding er komin með eigin hljómsveit á laggirn ar, sem ber nafnið Fat Mattr- ess, og munu þeir koma fram í blues hátíð, sem bráðlega á að halda í Englandi. Þar verða einnig The Who, Chicken Shack, The Nice, Pink Floyd, The Bonzo og Dog Band, Hair o.fl. Orðrómur gengur um, að Mitch Mitchell trommuleikari Hendrix ætli að feta í fótspor Reddings. I j Brezki vinsældarlistinn í Tíu vinsælustu hæggengu plöturnar í Bretlandi voru síðustu viku: 1. This is Tom Jones ..............................................(Decca) 2. Flaming Star ......................................Elvis Presiley (RCA) 3. Accorcling to my Heart ........................... Jom Reeves (RCA) 4. My Way ................................:....... Frank Sinatra (Reprise) 5. Nshville Skyline .................................. Bob Dylan (CBS) 6. On the Thretsold off a Dream .................... Moddy BJues (Dream) 7. Scott Walker Sings Song from his TV Series ................... (Philips) 8. Ray Conni'ff, His Orchestra, His Ohorus, His Sound ............ (CBS) 9. Hair .......................................... London Cast (Plydor) Eftirtalin ríu iög voru efst a vinsældalista breska blaðsins New Musical Express í síðustu viku. Nr. 1 Somcthing in the Air .................Thundcrclap Newman (Track) Nr. 2 in the Ghetto ................................. F.lvis PresJey (RCA — 3 A Way of life ................................... amily Dogg (BeJl) — 4 T.iving in: the Past .......................... Jethro Tu 11 (Island) — 5 Ba'Had of Jc.hn an Yoko ............................ Beatles (Appie) — Í5 Break Away ................................... Beach Boys (Capital) •— Hello Susie .............................. Amen Corner (Lmmediate) — 8 Time.is Tight..................... Brooker T. and rhe M.G.S.(Strax) — 9 Oh Happy day.......................Edein Hawkins Singers (BuddnV 10. Lionel Bart's Oliver! .................. ..........-. Soundtrack RCA) — Próúd Mary.......... ......... Creedence 'Clearwater Revival (Liberty)

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.