Alþýðublaðið - 30.07.1969, Blaðsíða 13
□ Myndin synir Zednicek, eina af stórsjörnum Tékka I
,rdunka“ í leiknum gegn Döxium á EM í Stokkhólmi.
Stökkkraftur hans hefur mælzt einn hinn mesti í'
alM Evrópu, enda gífurlegur, eins og myndin her
með, sér.
! Tillitslaus, frum-
óíþrótta
| mannslegur og
fráhrindandi
segja Danir um Alberfsson
□ Það hefur fleirum en íslendingum gmrnizt fram-
koma sænska risans Hans Albertssons í EM-’keppn-
inni í Stokkhólmi í maí síðastliðnum, ef dæma má
eftir ummælum Time-Out, blaði danska körfukniatt'
leikssamhandsins. Eftir að hafa hælt framkvæmd
keppninnar á hvert reipi, kemur þessi klausa:
„Eina svarta blettinn á-keppn-
ina af hálfu Svía setti, — eins
og venjulega, freistast maður til
að segja — Hans Albertsson.
í fyrsta leik Svíþjóðar í keppn
inni, gegn íslandi, rak hann,
eins og hann er vanur olnbog-
ana út í loftið, og sló í sveifl-
unni tönn úr Jóni Sigurðssyni
sem lá í gólfinu eftir, Albertsson
sem hélt því fram við tækni-
nefnd keppninnar, að hann hefði
ekki tekið eftir þessu atviki,
fékk harða ofanígjöf frá pólska
FBA-fulltrúanum, og hegðaði
sér eins og lamb í tveim síðustu
leikjum keppninnar,
Jafn glæsilega og hann hirðir
fráköstin fyrir ofan körfuna, er
hann tillitslaus, frumstæður, ó-
íþróttamannslegur og fráhrind
andi, þegar hann er niðri á jörð-
inni. Við skulum vona, einnig
sjálfs hans vegna, að hann leggi
brátt skóna á hilluna. Allavega
er hann óvinsælasti leikmaður á
Norðurlöndum í dag.
Þetta eru all harkaleg um«
mæli hjá Dönum en því miður
felst í þeim mikill sannleikur.
Albertsson er alræmdur fyrir
hrottaskap sinn á leikvellinum,
en hins vegar bregður svo ein-
kennilega við, að hann er hið
mesta prúðmenni í einkalífinu.
Meðal annars hefur hann annazt
unglingastarf fyrir sænska
körfuknattleikssambandið svo
að vart getur honum verið alls
varnað. Aðeins sérstaklega erfið
lund og skapofsi veldur honum
slíkra óvinsælda, jafnvel meðal
Svía sjálfra, að flestir líta hann
hornauga, en aðrir leikmenn eru
hálfsmeykir í nálægð við hann.
□ Stjórn FRÍ fékk nýlega
bréf frá Þorsteini Þorsteins-
syni, hinum kunna hlaupara
KR-inga, um að hann gæti kom-
ið heim í byrjun september og
tekið þátt í 6-flokka lands-
keppninni í Álaborg 6.—.7.
september. Þorsteinn hefur
hlaupið 400 m. bezta á 48,2
sek. og 800 m. á 1:54,0 mín.
í sumar. Þorsteinn er við nám
í Princeton í New Jersey r
vélaverkfræði.
Áðurnefnd landskeppni er
þannig, að Svíar, Finnar og'
Norðmenn senda B-lið. Danir
bæði A- og B-lið, en íslending-
ar A-lið. Einn keppir í hverri
grein úr einstökum flokkum.
Breidd Norðurlandanna er
mikil í frjálsum íþróttum,
þannig að liðin sem koma til
Áíaborgar eru sterk. Landslið
íslendinga hefur ekki enn ver-
ið valið, en það verður all-
þér
að segja
sterkt í nokkrum greinum, en
lakara í öðrum eins og ávallt
hefur verið, er við höfum tekið
þátt í landskeppni í frjálsum
íþróttum.
□ í kvöld fer fram frjáls-
íþróttamót á Laugardalsvellin-
um og hefst kl. 8. Það er
Frjálsíþróttaráð Reykjavíkur,
sem gengst fyrir þessu móti.
Alls verður keppt í þremur
kvennagreinum og níu karla-
greinum. Búast má við, að ís-
landsmet verði sett, ef veður
verður skaplegt. Meðal kepp-
enda, eru Erlendur Valdimars-
son, ÍR, Guðm. Herm., KR,
Jón Þ. Ólafsson, ÍR, Valbjörn
Þorláksson, Á., Karl Stefáns-
son, UMSK, Kristín Jónsdóttir,
UMSK, Halldór Guðbjörnsson,
KR o. fl. sem skara fram úr í
frjálsíþróttum.
Ársþing Glímusambandsins.
. Ársþing Glímusambands ís-
lands verður haldið í Reykja-
vík sunnudaginn 19. október
næstk. og hefst kl. 10 árd. á
Hótel Sögu.
Tillögur- frá sambandsaðilum,,
seip óskast lagðar fyrtr árs-
þingið, þurfa að hafa borizt til
Glímusambandsins þremur vik
um-fyrir þingið.
IBV-KR I kvöld
□ EÆtir langt hlé í keppni
1. deildar fer fyrsti leilkurinn
fram í kvölid. í Vestimianna-
eyjiuim leilka ÍBV og ÍBK, og
er það fyrsti ledlkuri'nin í ann-
arri umiferð. í fyrri uimiferð-
inni signuðu Eyjl.-lmenn með
4 mörlkum gegn 2. Kefilavík
hefur hloti ð 9 stig í mótiiniu,
en Vestmannaeyjar 5. —
Úrvalið
sigraði Daiti 1-0
□ Danska uiniglingaliðið frá
Lynigby Boidibluib.. sam hér er
í boði Vsils, léik í gærlkvöldi
gegn unigi’inisialliði KSÍ á Mela
■veffi nuim. ísllenZka úrvalið
signaði með 1 miailld gegn
en.igu, og var mailkið skorað. í
seinmli hálfleik. íslenzk!a lið-
ið kom ágætlega frá leilknum,
og hefði utærri sigur verið
verðskuldaður, því liðið átti
mörg 0g góð tiakifæri. —•
Áke Nilsson, Svíþjóð, kastaði
spjóti 82,84 m. í keppni við ít-
ali og Rúmena. ítalir sigruðu,
Svíar voru í öðru sæti, en Rú-
menar þriðju.
r
’ Enn einn Austur-Þjóðverji
hefur varpað kúlu lengra en
20 m. Hann heitir Hartmut
Briesenick og varpaði 20,22 m.
Beztu afrek ársins í kúluvarpi
eru þessi:
N. Steinhauer, USA 20.64
Hans-Peter Gies, A.-Þ. 20,64
D. Hoffmann, Au.-Þ. 20,60
H. J. Rothenb., A.-Þ. 20,49
Karl Salb, USA 20,43
R. Matson, USA 20,30
H. Briesenick, A.-Þ. 20,22
H. Birlenbach, V-Þ. 20,14
B. Bendeus, Svíþjóð 19.87
R Langer, A.-Þ. 19,83