Fregnir - 01.12.1976, Qupperneq 2

Fregnir - 01.12.1976, Qupperneq 2
2 2. þing Bandalags háskólamanna. "Bandalagið efni til könnunar á stöðu rannsóknabóka- safna með tilliti til notagildis vegna almennrar rannsóknarstarfsemi". Þannig hljóðar ein greinin í starfsáætlun Bandalags háskólamanna 1976-1978, sem samþykkt var á þingi BHM dagana 17. og 18. nóvember s.l. Þingið var haldið á Hótel Loftleiðum í Reykja- vík, og sóttu það um 200 fulltrúar hinna 17 félaga innan bandalagsins. í lögum bandalagsins um hlutverk þess segir í 2. grein: "Hlutverk bandalagsins er: 1. Að efla sam- heldni háskólamenntaðra manna. 2. Að stuðla að bættri aðstöðu til vísindalegra starfa á Islandi og vinna að auknum skilningi landsmanna á gildi þeirra. 3. Að efla vísindalega þekkingu í landinu og stuðla að eftirmenntun (framhaldsmenntun) háskólamenntaðra manna í hvívetna". 1 sextán ár - eða frá stofnun bandalagsins - hafa kjaramál verið efst á baugi hjá samtökunum og verða það líklega enn um skeið. En með samþykkt starfs- áætlunarinnar 1976-1978 virðist bandalagið gera sér það ljóst, að því beri einnig að huga að öðrum hags- munamálum háskólamenntaðra manna. Um þetta vitnar eftirfarandi samþykkt þingsins: "Sinnt verði meira þeim verkefnum, sem talin eru í 1.-3. tölulið 2. greinar laga BHM". Meðal annarra atriða starfsáætlunarinnar má nefna samþykktina um að "unnið verði að löggildingu starfs- heita í þeim tilgangi að styrkja stöðu og réttindi allra félagsmanna" og samþykktina um "að bandalagið stuðli að undirbúningi og framkvæmd símenntunar". Ennfremur var ákveðið, að "haldið verði áfram könnun a stöðu háskólamenntaðra kvenna og þátttöku þeirra í atvinnulífinu". Þess má geta að af um 2.900 félags- mönnum BHM eru tæplega þrjú hundruð konur. Orlofsheimilamálinu var einnig hreyft á þinginu. Samþykkt var að "hafnar verði framkvæmdir við bygg- ingu orlofshúsa á vegum bandalagsins. Öllum félags-

x

Fregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.