Fregnir - 01.12.1976, Qupperneq 4
4
samtaka. Serstaklega lýsti þingið andstöðu sinni
við þau drög að frumvarpi til laga um verkföll og
vinnudeilur, sem unnin hafa verið á vegum ríkis-
stjórnarinnar og kynnt ASÍ, vegna þeirrar skerðingar
á verkfallsrétti og samningsrétti, sem stefnt er að í
frumvarpsdrögunum. Þá lýsti þingið því yfir að
hækka yrði dagvinnukaup, þannig að fólk gæti komist
eðlilega af án þess að leggja á sig yfirvinnu. Þá
skoraði þingið á ríkisstjórnina að heildarsamtök
launþega, einnig BHM, fái skattalagafrumvarp ríkis-
stjórnarinnar til umsagnar áður en Alþingi gengur
frá því.
1 lok þingsins fór fram stjórnarkjör, og var Jónas
Bjarnason endurkjörinn formaður til næstu tveggja
ára. Aðrir í stjórn og varastjórn eru Skúli Hall-
dórsson, Almar Grímsson, Guðmundur Björnsson, Jón
L. Sigurðsson, Ragnar Aðalsteinsson og Stefán Her-
mannsson.
Desember 1976
Else Mia Einarsdóttir
Kj aras amningar
17. nóvember 1976 var undirritaður samningur milli
Fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Félags bókasafns-
fræðinga f.h. félaga sinna, sem starfa hjá ríkinu.
FB varð fullgildur meðlimur BHM haustið 1972. Það
var þó of seint til þess að komast með í samninga BHM
við Fjármálaráðherra, sem þá stóðu fyrir dyrum, og
var því í það skipti samið fyrir félaga FB í þeim
stéttarfélögum, sem þeir voru í, áður en FB var
stofnað, þ.e. Starfsmannafélagi ríkisstofnana, Félagi
íslenskra fræða og Félagi háskólakennara.
Þegar samningar hófust á síðast liðnu hausti, þá var
FB með í hópnum, sem BHM samdi fyrir. Það voru 8 með
limir FB, starfandi hjá ríkinu, sem fólu félaginu að
annast samninga fyrir sig.