Fregnir - 01.12.1976, Síða 15
15
anna að geta flokkað sjálfir eftir réttu kerfi ýmis
rit, bæði innlend og erlend.
Tel ég þetta vera mjög brýnt verkefni, sem þolir enga
bið. Ennfremur er nauðsynlegt að tekinn verði upp
þráðurinn þar sem frá var horfið með "Skráningarregl-
urnar", en ég veit ekki til þess að nein nefnd sé nu
starfandi, sem fjallar um skráningarreglur.
Hvernig stóð á því, að "Flokkunarkerfið" var ekki
gefið út sem lausblaðamappa (líkt og "Skráningarregl-
urnar") svo að auðveldara og ódýrara yrði að koma fram
breytingum?
Að lokum langar mig að varpa fram þeirri spurningu,
sem ég veit að marga fýsir að fá svar við (og æ
fleiri , t.d. skólanefndir og skólasafnverðir, sem nú
eiga hér hagsmuna að gæta eftir tilkomu Grunnskóla-
laganna): hvað er því til fyrirstöðu, að hægt sé að
kaupa spjaldasett frá "Skráningarmiðstöðinni" eftir
pöntun (nú er ekki um annað að velja en allt eða
ekkert)? Og að síðustu: Hver er ábyrgur fyrir þess-
ari "Skráningarmiðstöð"?
Hrafn Harðarson.