Alþýðublaðið - 07.10.1969, Side 3
Alþýðubl'aðið 7. október 1969 3
íslendingar eiga
samleið með okkur
ssfllr Bfarlmar Gjerde, ritari fræðslusambands norsku verka-
iýðsbreyfingarinnarf einkaviðiali við AiþýðubJaðið
D Hér á landi er nú staddnr Norðmaðurinn Bjart-
mar Gjerde, aðalritari fræðsíustofnunar verkalýðs-
hreyfingarinnr-r í Noregi, en hann kymir starfsemi
stofnunarinnar í ncklcrum fyrirlestrum. sem hann
heldur í Norræna húsinu næsfu daga fyrir félaga í
íslenzku verkalýðshreyfingunni. Bjartmar Gjerde er
í forystusveit jsfnaðarmanna í Noregi, formrður Al-
þýðufiokksfélagsi is í Osló. Hann á m. a. sæti í mið-
stjórn flokksins. Bjartmar Gjerde gegnir ýmsum trún
aðarstörfum í heimalandi sínu bæði fyrir verklalýðs-
hreyfinguna og Alþýðuflokkinn. Er hann m. a. full-
trúi í útvarpsráði, mennt?málaráði og UNESCO
nefndHni norsku. Alþýðublaðið átti við hann einka-
viðtal í gær í tilefni af heimsókn hans hingað til
lands.
Hvernig er starfsemi AOF
liáttað í megindrattum?
„Þessi starisemi er nú orðin
mjög víðtæk og talar tala þátt-
takenda á síðastliðnu ári sínu
máli í því efni, en þá tóku yfir
hundrað þúsund manns þátt í
starfsemi Fræðslusambands
norsku verkalýðsféláganna. —
Þátttakan hefur aukizt um
helming á fimm árum. Aukinn
áhugi á starfi AOF er fyrst og
fremst því að þakka, að norsk-
ir launþegar gera sér sífellt bet-
ur grein fyrir mikilvægi þess,
að fullorðið fólk, sem starfar
víðsvegar í atvinnulífinu, eigi
þess kost að mennta sig og auka
þekkingu sína, en einnig hefur
áhuginn aukizt vegna þess að
tekizt hefur ,að finna hagkvæm
ar leiðir til að framkvæma
þessa mikilvægú starfsemi.
Dýrasti þátturinn í starfsem-
inni er vafalaust hin svoköll-
uðu „heimavistarnámskeið", en
á meðan slík námskeið standa
yfir. búa þátttakendurnir ýmist
á hótelum eða í skólabygging-
um og sækja reglulega kennslu
stundir daglega. AOF greiðir
ferðakostnað þátttakenda, uppi-
hald þeirra og kennsluna.
Kostnaðurinn vegna hvers þátt-
takanda er um 1.000 norskar
krónur. Það eru einkum trún-
aðarmenn verkalýðsfélaga og
forystumenn í einstökum deild-
um og klúbbum innan verka-
lýðshreyfingarinnar, sem taka
þátt í þessum námskeiðum. Á
síðastliðnu ári tóku um 5.000
trúnaðarmenn verkalýðsfélaga
þátt í þessum heimavistarnám-
skeiðum, og kostnaðurinn vegna
þeirra var um fimm milljónii
króna.
Þessi hluti starfseminnar er
afar dýr eins og þessar tölur
sýna glöggt, en norska verka-
lýðshreyfingin beið mikinn
kostnað að mestu. Þó er þess
að geta. að AOF nýtur nokk-
urs fjárstuðnings frá norska
ríkinu. Á síðasta ári greiddi
ríkið til starfseminnar um 1 %
millión króna.
Við eigum og rekum eigin
'skóla, íSörmarkaskólann, sem
er í grennd við Osló. Þar sitja
nokkur hundruð manns á skóla
bekk hvern virkan dag allan
ársins hring. En auk þess efn-
um við til stvttri námskeiða á
öðrum stöðum eftir því sem
henta bykir. Nú eru starfandi
hjá samtökunum 30 leiðbein-
endur. sem ferðast um landið
og kynna starfsemina, en á
aðalskrifstofu samtakanna
starfa nú um 80 manns. Þá
höfum við komið á laggirnar
eigin bréfaskóla og er þar völ
á kennslu í yfir eitt hundrað
ólíkum námsgreinum“.
Fr nú að verða til eitthvert
samriarf milli AOF og verka-
lýðshreyfingarinnar á íslandi?
..Það er ég að vona. Ég er
miög þakklátur því. að ég skuli
hafa átt bess kost að koma
hingað til lands og hitta fólkið
Bjartmar Gjerde.
í verkalýðshreyfingunni hér og
ræða við það um möguleikann
á, að á íslandi verði stofnað
til hliðstæðrar starfsemi og
AOF í Noregi, en ísland er
eina landið í Norðurlandafjöl-
skyldunni að Færeyjum und-
anteknum, þar sem slík starf-
semi er ekki fyrir hendi.
Fræðslustofnun verkalýðs-
félaganna i Svíþjóð er elzt
þessara stofnana, stofnuð 191'2,
og er hún langöflugust. Hálf
milljón manna tóku þátt í
námskeiðum á vegum ABF í
Svíþjóð í fyrra. Við í AOF í
Noregi höfum byggt gífurlega
mikið á reynslu Svíanna. Það
er mjög náin samvinna milli
AOF í Noregi og ABF í Sví-
þjóð og allmikið efni, sem við
notum í fræðslustarfsemi okk-
ar, höfum við beinlínis fengið
Frh. 12. síðu.
Ekið undir
brýrnar
□ Um helgina var tekin í
notkun ný umferðargata í Kópa
vogi og tengir hún saman Ný-
býlaveg og Kársnesbraut. Þessi
nýja leið er að því leyti merki-
leg að hún liggur undir brýrn-
ar, sem byggðar hafa verið á
Hafnarfjarðarleiðinni á þess-
um stað, og er þetta fyrirkomu-
lag viðhaft til þess að koma
í veg fyrir umferðartáfir vegna
gatnamóta, en vegfarendur
hafa frá fyrri tíð slæma reynslu
af einmitt þessum gatnamót-
um. Með opnun þessarar tengi-
brautar ef hins vegar tekið að
færast stórborgarsnið á gatna-
kerfið, en algengt er erlendis
að gatnamót séu á tveimur eða
jafnvel enn fleiri hæðum til
þess að greiða fyrir umferð-
inni. En þessi braut í Kópavogi
mun vera sú fyrsta hérlendis
sem með þessu móti liggur uhd-
ír brýr, sem hornrétta urriferð-
in fer eftir. (Mynd: G. H.) i