Alþýðublaðið - 22.10.1969, Page 14
14 Alþýðublaðið 22. október 1969
18.
EFTIR FRANCES 06 1 , .
richard lockridge ■ Smáaugiýsisigar
STÚLKAN
GULU
KÁPUNNI
bílastöðinni í 40. stræti. Skilaöi henni kortér fyrir
þrjú í 10. stræti.
Stein las tilkynninguna yfir, svo leit hann upp tii
hávaxins lögregluþjóns:
— Allt í lagi, sagði hann. — Talaðirðu við nrann-
inn? Gat hann lýst henni nánar?
Þetta var mjög metorðagjarn lögregluþjónn. Þeg-
ar hann leit til Stein; var sem eldur bryrrni úr aug-
um hans:
— Hann man, að farþeginn var ung kona, og hún
var í Ijósri kápu.
, — Ljósri eða gulri?
— Ljósri, sagði ha'nn. Hins vegar vissi hann ekki,
hvort stúlkan hefði farið inn í húsið, sem hann
stanzaði við.
Tæpum 20 mínútunv síðar var hringt af rannsókn-
arstofunni. Það gat ekki verið greinilegra:
Bletturinn í kápurrni var blóð. Mannsblóð. Blóð-
flokkur 0.
— Þetta virðist allt bera að sama brunni, sagði
Simmons. — Ljóshærð stúlka í Ijósri eða gulri kápu
yfirgefur skrifstofubygginguna á nokkurnveginn
sama tíma og morðið er framið. Áður hefur herrni
dottið nokkuð í hug. Hún stillir loftkælinguna á skrif
stofu hr. Hartleys á hæsta straum, til þess að kuld-
inn hafi þau áhrif, að læknirinn geti ekki fundið ná-
kvæmiega, hvenær fórnarlambið lézt. Síðan....
— Já, já, rumdi í Stein, sem starði utan við
sig út um gluggann. En Simmons lét ekki stöðva
sig.
—Síðan hleypur stúlkan yfir götuna, sagði hann.
— í fyrsta lagi getur Johnny lýst henni, í öðru
lagi leigubílstjórinn. Og tíminn, sem bílstjórinn gef-
ur upp, passar að öðru leyti við það, sem Johnny
segir — og þar að auki er það tíminn, sem morðið
er framið á. Er þetta ekki nóg?
— Hrn. Stein hélt áfram að stara út í loftið.
— Auk þes, hélt Simmons áfram. — Auk þess
vill svo til, að stúlkan er eini ættingi hr. Hartleys. Og
síðast en ekki sízt. Stúlkan tekur eftir blóðbletti í
kápunni sinni — og lætur kápuna undir eirrs hverfa
í efnalaugina.
Sigri hrósandi leit hann á Stein.
— Þetta er allt rétt. Fullur áhuga virti Stein fyr-
ir sér flugu á herbergisveggnum, — Og hver ei
niðurstaðan? •
— Þú spyrð að því?
— Já, ég spyr að því. • .
5 Simmons beygði sig fram yfir;borðið, JJann studdi’
öáðum hnefum á borðröndina.
— Við verðum því miður að láta handtaka stúlk-
una, sagði hann.
Flu^an byhjaði
—Og það eins og skot. «
að hringsóla kringum lamoann. I
Stein fylgdist eftirtektarsamur með svimi hennar. (
— Sem sagt... .grunur um morð? sagði hann. •
— Það er þín skoðun, er bað ekki?
— Jú, einmitt, og það talsvert meira en grunur, J
vildi ég meina. j
Simrr.'ons kveikti sér í sígarettu. Hann blés reykn j
um út um nefið. Hann hrukkaði ennið. Og svo gretti j
hann sig. j
— Og nú er ég spenntur, sagði hann.
— Hvers vegna?
— Ég er alveg sérstaklega spenntur að heyra, i
með hvaða sögu Loren Hartley ætlar að bjarga sér «
út úr klípunni.
Það var barið að dyrum á skrifstofu Steins lög- *
reglumanns. Hár, dökkhærður maður gekk inn.
— Hefurðu fundið eitthvað sérstakt? spurði Stein.5
— Ég er ekki frá því, svaraði James Shapiro. j
Hann- var æðstur þeirra rannsóknarlögreglumanna,
sem orðið höfðu eftir á skrifstofu Alex Hartleys til 1
að athuga kringumstæður nánar.
— Það lítur út fyrir, að Alex Hartley hafi verið
að vélrita eitthvað hjá sér, áður en hann dó, sagði
hann og rétti Stein pappírsörk.
Stein virti hana fyrir sér. Það var engu líkara en
einhver, sem aldrei hafði snert á ritvél, hefði verið
að pikka niður skilaboð. En eitt var augljóst mál.
Alex Hartley hafði verið að gera uppkast að erfða-1
skrá sinni. Simmons stóð bak við Stein og las yfir .
öxlina á honum:
Kjallarameistari minn, Charles Hunt — 15 í stað |
10. Vegna margra ára þjónustu. — Síðan komu .
nokkur nöfn og upphæðir á eftir. Þær voru mis- j
jafnlega háar og nöfnin skiptu ekki máli í bili.
Á miðju blaðinu stóð: — Loren — 10 — i
En það var búið að krossa yfir þá tölu og við hlið-
ina á henni var skrifað — 5. Llndir þá tölu var strik-1
að. I
— Maður gæti haldið, að hr. Hartley og bróður-
dóttur hans, Loren, hefði ekki komið alltof vel sain- I
an í seinni tíð, mælti Simmons. — Það lítur nú ekki
reglulega vel út fyrir réttinum.
— Grein 6 í fyrri erfðaskrá minni á að falla nið-
ur, las Stein áfram í hálfum hljóðum. — I stað j
hennar komi: Eftirstöðvar eigna minna gangi til Har-
vardháskóla. , ''
Stein leit einu sinni enn yfir blaðið. svo sagði j
liann: •
— Ég hefði gaman af að vita, hvað stóð í grein'
6 í fyrri erfðaskránni. I
TRÉSMÍÐAÞJÓNUSTA
Latið fagmann annast vlðgerðir og vlðliald á tréverkl
húseigna yðar, ásamt breytingum á nýýu og eldra
húsnæði. — Sími 41055.
VOLKSWAGENEIGENDUR!
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Véllarlok
— Geymslulok á Volkswagen 1 allflestum litum.
Sklptum á einxim degi með dagsfyrirvara fyrir á-
kveðið verð. — Reynið viðskiptln.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar, Skipholtl 25,
Símar 19099 og 20988.
NÝÞJÓNUSTA í HEIMAHÚSUM
Tek að mér allar viðgerðir og klæðningar á
bólstruðum húsgögnum í heimihúsum. — Upp
lýsingar í síma 14213 kl. 12—1 og 7—8 á
kvöldin.
AGNAR ÍVARS, húsgagnabólstrari.
PÍPULAGNIR
Tek að mér viðger ðir og uppsetningu á hrein
lætistækjum, frárennslis- og vatnslögnum.
Guðmundur Sigurðsson
Sími 18717
PÍPULAGNIR. - Skipti hitalkerfum. Ný-
lagnir, viðgerðir, breytingar á vatnsleiðslum
og hitakerfum. Hitaveitutengingar. Þétti
heita og kalda krana. Geri við wc-kassa. —
Sími 71041. — Hilimar J. H. Lúthersson,
pípulagningameistari.
Jarðýtur - Traktorsgröfur
Höfum til leigu litlar og stórar jarðýtur traktorsgröf-
ur og bílkrana, til allra framkvæmda, ixman og utan
borgarinnar.
Heimasímar 83882 — 33982.
Jarðvinnslan sf.
Síðumúla 15 — Símar 32480 — 31089.
MATUR OG BENSIN
allan sólarhringinn.
VEITINGASKALINN, Geithálsl