Alþýðublaðið - 15.11.1969, Qupperneq 10

Alþýðublaðið - 15.11.1969, Qupperneq 10
10 Alþýðublaðið 15. nóvember 1969 Framhaldssaga eftir Elizabefh Messenger r ■ A fjallahótelinu 3, hurðina upp og var í þann veginn aS stökkva út, þegar hún fann, að fætur hennar voru naktir í ís- kuldanum. Hún fálmaði eftir skónum sínum, þegar veðurbitið, vingjarnlegt andlit bílstjórans laut niður að henni. , — Yður hefur hlekkzt á, ungfrú? — Já, hvað mér þykir innilega vænt um, að þér skylduð koma. Haldið þér, að þér getið hjálpað mér? Ég er anzi hrædd urr;, að bifreiðin sé blýföst. Hann gekk fram fyrir bifreiðina og leit á hana. — Það er svo sem alveg satt. Þetta kvenfólk við stýrið! i i ■ — Það er ekkert neinu kvenfólki að kenna, heldur veginum. , Hann brosti út undir eyru. — Vegurinn er ekki sem verstur, ef bílstjórinn er góður, sagði hann. — Ég skal bjarga yður úr þessari klípu. — En ég hef ekkert reipi. — Hafið engar áhyggjur. Ég hef það. Það er ekki svo sjaldan, sem ég þarf að grípa til þess, — og ekki nándar nærri alltaf til að bjarga kvenfólki! Hún hló. — Það liggur við, að þér séuð alltof elskulegur. — Hvers vegna fóruð þér þessa leið. Hin leiðin er miklu betri. — Mig langaði svo til að sjá vatnið. Það er svo sem þess virði að sjá það. Maður verður aldrei leiður af að fara þessa leið. — Akið þér þesa leið oft? — Á hverjum einasta degi. Ég flyt vistirnar upp að hótelinu og skíðakofunum. — Hvernig er snjórinn? > — Það er nóg af honum þarna uppi, þótt ekki sé lengra áliðið en þetta. Sjö-átta kílómetrum ofar er hann svo djúpur, að þér getið festst í honunr upp að eyrum. Pat hló. — Ég er að hugsa um að láta mér forarpollinn þann arna að kenningu verða. — Hvenær festuð þér yður? spurði hann. — í gærkvöldi. Hann blístraði. — Og voruð alla nóttina í bílnum? Kom alls eng- inn hingað? — Það var bifreið.... Pat þagnaði. — Sem nam ekki staðar? Þvílíkur skepnuskapur. Það var þó furðulegt. Hér um slóðir eru menn vanir að sýna hjálpsemi, maður veit aldrei, hvenær maður þarf sjálfur á aðstoð að halda. — Hann stanzaði svo senr, sagði Patricia. — Það var það furðulega. Hann kom niður fjallshlíð- ina, og ég er viss um, að bifreiðarstjórinn sá mig. Hann stanzaði rétt fyrir framan mig, svo fór hann aftur á bak, sneri við og brunaði upp eftir aftur. Bílstjórinn hafði fest kaðal í höggvarann á bif- reið Patriciu. Hann rétti úr sér, þurrkaði forina af höndum sér og leit á hana. — Var það svo? Hvort var það maður eða kona, sem sat við stýrið? —Það veit ég ekki? — Hvaða bifreiðartegund var þetta? Sko, ef ég skyldi einhvern tímann rekast á þrjótinn, og hann þyrfti á aðstoð að halda. Hann hló. — Er það ekki sem ég segi! Kvenfólk við stýrið! Hann klifraði upp í flutningabílinn og andartaki síðar var bifreið Patriciu aftur konrinn á fasta jörð.. Hann losaði kaðalinn og vafði hann upp. — Þér skuluð aka á undan, svo að ég geti haft auga með yður. Ég fer inn á útskot svo lítið ofar, svo að þér getið komizt framhjá. — Þetta er ákaflega fallega gert af yður, en ég er fullviss um, að þáð'ér algjör óþarfi. Ég er yður af- skaplega þakklát fyrir hjálpina. — Akið nú af stað! Munið, að ég treysti ekki kvenmanní við stýrið, sér í lagi ef þær eru fagrar og Ijóshærðar........ Hann brosti til hennar. Pat endurgalt honum bros- ið og setti bifreiðina í gang. í baksýnisspeglinum sá hún hann leggja áf stað út á veginn. Allt í einu fannst henni gjörvöll tilveran svo Ijómandi fögur, morgun- sólirr hafði hrakið ískulda næturinnar á flótta. Eft- ir því sem vegurinn varð brattari, urðu trén lægri og dreifðari og breyttist skógurinn loks í kjarr, og í Ijós fóru að koma smáskaflar, sem breiddust æ lengra upp effir fjallinu, unz þeir urðu að samfelldri snjóbreiöu. Innan skamms voru skáflar á báðar hendur á veginum og allt umhverfis hana var svo skjannahvítt. Lengst fyrir ofan' sig sá hún hilla undir hótelið og að baki þess gnæfðu ógnþrungnir tindar fjallsins, glitrandi í sólskininu — fjarlægir og tígu- legir ofan við endalausa snjóbreiðuna, þar sem ein- staka skíðakofar stóðu upp úr eins og litlir punktar. Ösjálfrátt steig Patricfa á hemlana til þess að njóta þessa unaðslega útsýnis, en í sama vetfangi heyrði hún ískrið í hemlum flutningabílsins að baki sér, serrr hún var alveg búin að steingleyma. Hún sneri sér skömmustuleg við og gerði afsakandi hreyf- ingu með handleggjunum. Bílstjórinn klöngraðist nið- ur úr bíl sínum og kom glottandi til hennar. — Er yður nú Ijóst, hvað ég átti við ? Patricia hló. — Já, því miður verð ég að viðurkenna, að þér höfðuð rétt fyrir yður. Hann skotraði augunum upp til fjallstindanna, og það var lotningarsvipur á andliti hans: , — Þetta er alltaf jafn stórkostlegt, hversu- öft sem maður sér það. Mér er ómögulegt að lá yður þetta. I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I l! I l I Smáauglýsingar i V ir i- TRÉSMÍÐAÞJÓNUSTA Látið fagmann annast viðgerðir og vlðhald & tréverJd húseigna yðar, ásamt breytingum á nýju og eldra húsnæðl. — Sími 41055. VOLKSWAGENEIGENDUB! Höfum fyrirliggjandi: Brettl — Hurðir — Véiiarlok — Geymslulok á Volkswagen f aUflestum litum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir á- kveðið verð. — Reynlð viðskiptin. Bílasprautun Garðars Sigmundssonar, Skipholtl 25, Símar 19099 og 20988. NÝÞJÓNUSTA í HEIMAHÚSUM Tek að mér allar viðgerðir og klæðningar á bólstruðum húsgögnum í heimhúsum. — Upp lýsingar í síma 14213 kl. 12—1 og 7—8 á kvöldin. AGNAR ÍVARS. húsgagnabólstrari. PÍPULAGNIR Tek að mér viðgerðir og uppsetningu á hrein lætistækjum, frárennslis- og vatnslögnum. Guðmundur Sigurðsson Sími 18717 PÍPULAGNIR. — Skipti hitakerfum. Ný- lagnir, viðgerðir, breytingar á vatnsleiðslum og hitakerfum. Hitaveitutengingar. Þétti heita og kalda krana. Geri við wc-kassa. — Simi 71041. — Hilmar J. H. Lúthersson, pípulagningameistari. Jarðýtur - Traktorsgröfur Höfum til lelgu litlar og stórar jarðýtutr tinktorsgröf- ur og bílkrana, tll allra framkvæmda, lnnan og utan borgarlnnar Heimasímar 83882 — 33982. Jarðvinnslan sf. Síðumúla 15 — Símar 32480 31085. MATUR OG BENSIN allan sólarhringinn. VEITINGASKALINN, Geithðlsl

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.