Alþýðublaðið - 22.11.1969, Side 1
Laugardagmn 22 nóvember 1969 — 50. árg. 257. tbl.
HEFÐI ÁÆTLUN
ALUT STAÐIZT?
Reyk ;j aví'k — VGK
□ Rekstur togarans Hauka
ness, sem áöur hét (Gylfi,
mun ganga vel. Sem ikunnugt
er var ,á sínum tíma stofnað
hlutafélagið ALUT, ien féfag-
ið liafði að markmiði að
kaupa Gylfa og gera skipið greiða 15% arð af hlutabréf-
út ALUT-menn áætluðu að
IÐNAÐARFRÍHÖFN
Á VELLINUM
Reykjavík — HEH.
Verður iðáaðarfríhöfn sett á
stofn á Keflavíkurflugvelli á
næstuni, sem mundi gera þenn
an aðalflugvöll íslendinga.
miklu eftirsóknarverðari milli
lendingarstað en áður? — Al-
þýðublaðinu er kunnugt, að
tveir embættismenn voru á ferð
á írlandi fyrir skemmstu, þar
sem þeir könnuðu rekstur og
fyrirkomulag iðnaðarfríhafnar
á Shanon-flugvelli. Shanon-flug
völlur mun vera sá flugvöllur
í Evrópu, sem umferð hefur
aukizt hvað mest um á undan
förnum árum. Nýtur hann ekki
sízt vinsælda fyrir iðnaðarfrí-
höfnina, sem þar er starfrækt
og þá ódýru þjónustu, sem þar
er boðið upp á. írska ríkið mun
á síðustu árum hafa gert ýmiss
konar ráðstafanir til að gera
Shanon-flugvöll eftirsóknarverð
ari millilendingarstað. Ráð-
gerir íslenzka ríkisstjórnin hið
sama fyrir Keflavíkurflugvöll?
Keflavíkurflugvöllur hefur á
undanförnum árum notið sífellt
meiri vinsælda sem millilend-
ingarstaður fyrir flugvélar, sem
eru í leiguflugi milli Ameriku
og EvróputíS }«'ar(þliegahV5purin.|
sem árlega á viðkomu á Kefla
víkurflugvelli, fer stöðugt vax
Framhald á bls. 3.
ÍÞRÓTTIR
ÍDA6
□ Eftir langt lilé á bikar-
keppni KSÍ fer fram einn leik
ur £ dag. Þá leika Akraness
og IKR á Melavellinum, og
hefst leikurinn kl. 14- Það
lið, s’em þá sigrar, mætir síð-
an Akureyri í úrslitaleik, sem
væntanlega fer fram um
næstu kelgi hér á Melavell-
inum. (
í hléi leiks'ns milli Akra-
ness og KR í dag fer fram
verðlaunaafhending á öllum
flokkum Revkj avíkurmótsi’ns.
Á morgun leika á Melavell
inuim kl. 14 Vestmannaeying.
ar og Breiðablik, sem er úr-
slitaleikur 2. fWkks.
KÖRFUKNATTLEIKUR
í kvöld heldur Reytkjavíkur-
mótið í körfukna'titieik áfram
í Laugardalshölliniii, Þá leilka
í m. fl. Ármann og ÍS, og síð
an KR og KFR. Fyrri leikur-
inn hefst kl. 20.00. —
SlS stofnsetur
sölufélag í USA
□ Stofnað hefur verið í
Bandaríkjunum félag, til að
vinna að sölu á framleiðslu-
vörum Sambands íslenzkra
samvinnufélaga og skyldra
fyrirtækja. Aðilar feð hinu
nýja félagi |er dóttfirfyfir'-
tæki Sambandsiiis og frysti-
húsa á vegum þess, Icelandic
Products, og bandaríska fyr-
irtækið National Products
Marketing, en fyrirtækið ber
nafnið Iceland Products
Marketing. Félagið (mun í upp
hafi fyrst og fremst beita
sér fyrir sölu fiskafurða vest
an hafs, en anun síðar einnig
hafa á hendi imarkaðsrann-
sóknir og sölustarfsemi á
vegum Sambandsins. Áður-
greint 'kom fram á 27. fundi
íslenzkra kaupfélagsstjóra
en hann sátu 30 áf 48 kaup-
félagsstjórum Sambandsins,
en hann var haldinn í dag. •—
um eftir fyrsta árið. Ekkert
vsrð ,af kaupum félagsins á
togaranum og lognaðist það
út af- Kunnugir menn, s/jm
fylgzt hafa meg útgerð
Haukaness að undanförnu
telja nú, að samkvæmt þeim
árangri sem fengizt. hefur á
rekstri skipsins, hefði áætlun
ALUT-manna staðizt.
Alþýðublaðið hafði í gær
samband við forsvarsmann.
Haukaness, en hann vildi
engar ákveðnar tölur gefa
um rekstur skipsins iog afla
þess, ,en sagði þó, aðj.ekki gæfi
reksturinn tilefni til barlóms.
Ber að fagna tþví iað itogara-
útgerð skuli ganga með svo
gcðu móti. —
120 þús
lestum
meiri
afli
□ Ut er Ikomin aflaskýrsla
Fiskifélags íslands fyrir árið
1969 og til samanburðar
1968. iSkýrslan (nær bæði ár-
in yfir tímabilið 1. jan. til 31.
júlí. |Það skal tekið fram, að
tölurnar fyrir árið f ár eru
ekki endanlegar tölur, þar
sem ekki hafa allir aðilar énn
þá gert upp aflatölur sínar.
Þorskaflinn varð samtals
195.463.012 Ikg. og er þag
40.260.422 Ikg. otneira en j
Framhald á 3. slðu.
MÁLARAR OG MÓRARAR
TIL GRÆNLANDS
Reykjavík — ÞG.
Fyrir u.þ.b. mánuði fóru tveir
málarar og tveir múrarar til
Grænlands á vegum dansks
byggingafyrirtækis til að ganga
frá húsum þeim, sem 20 íslenzk
ir iðnaðarmenn gerðu fokheld
Ffh. á bls. 3.
GLÆSILEGUR
JÓLABAZAR
□ Án efa verður mikil ös að
komast á jólabasar „Vinahjálp
ar,“ sem haldin verður á Hótel
Sögu kl. 2 á morgun. Þar verða
seldir margir nýstárlegir og fal
legir munir, jólaskraut og sæl-
gæti, og enfremur verður happ
drætti og eru vinningarnir alls
konar dýrindisgripir, sem eklti
hefur reynzt mögulegt að verð-
leggja eða meta til fjár að sögn
forustukvenna félagsins. Eins
og kunugt er, hafa sendiráðs-
konur stofnað þennan klúbb,
sem starfað hefur af sívaxandi
W
krafti undanfarin ár, en með
timanum hafa fleiri bætzt x
hópinn. Á myndini sjáum við
frú Edith Guðmundsson (t.v.)
með hlaða af fögrum dúkum,
sem hún hefur saumað, og
heni til aðstoðar við talninguna
er frú Guðrún Holt. Þá skal
minnt á bazas Halgrímskirkju
sem haldinn er í dag. (Mynd:
Gunar Heiðdal).