Alþýðublaðið - 13.12.1969, Side 13
ÍHÉTTIR
Rilsijéri: Örn Eiðsson
f
Bob Beamon |
hættir og fer í j
i
i
i
i
i
i
i
stýrimannaskóla
Sférkosilegum en stuttum íþrotiaierli
Eians er lokið
□ Flestir íþróttaunnendur
kannast vafalaust við Bob Bea-
mon, þennan hávaxna granna
negra, sem stökk 8,90 m. í lang
stökki á OL í Mexikó í fyrra,
en það var rúmlega hálfum
metra lengra en gamla heims-
metið. Margir eru á þeirri skoð
un, að metið verði ekki bætt
á þesari öld. Hverjir muna
ekki eftir undrun og aðdáun
starfsmannanna, sem sáu sjón-
varpssendinguna frá OL og síð
an stríðsdans Beamons, þegar
hann fékk að vita hve langt
hann stökk.
Öllum íþróttaunnendum til
mikilla vonbrigða hefur Bea-
mon tilkynnt, að hann sé hætt-
ur íþróttakeppni, en þessi 23
ára gamli negri hefur ákveðið
að fara til sjós og ætlar í stýri-
mannaskóla í New York. — í
fyrra var hann kjörinn íþrótta-
maður ársins af flestum blöð-
um heims.
Beamon fæddist í negrahverfi
New York og fékk snemma á-
huga á íþróttum. Hann byrjaði
á þessari öld. Hverjir muna
ingar í frjálsum íþróttum. —
Hann stökk 2 metra í hástökki
og hljóp 100 m. á 10,2 sek.,
en um það leyti, smitaði Ralp
Boston hann af lanigstökki. Um
árangur hans í þessari grein er
óþarft að fjölyrða frekar.
Ef lesendur ímynda sér, að
Bob Beamon hafi fengið dýr-
legar móttökur þegar heim kom
frá OL, þá skjátlast þeim. Bob
Beamon er negri og það gerir
mikinn mismun í USA. Það
voru engar sérstakar móttökur
og honum var ekkert boðið.
Hann fékk að vísu tilboð um
að koma fram í sirkus, sem átti
að ferðast um Bandaríkin, en
ekkert varð úr því.
Bob Beamon tekur ekki þátt
í neinum mótum negranna í
USA og íþróttirnar hafa verið
honum allt til þessa. Hann hef
ur tekið þátt í mótum, sem
Blaclc-Power hreyfingin svo-
nefnda hefur skorað á negra að
taka ekki þátt í. í fyrra tólc
hann þátt í móti gegn mótmæl-
um Black-Power, en mótið fór
fram í New York. Hann segir,
að New York sé sín heimaborg
og það telur hann næga ástæðu.
Margar ástæður eru sjálf-
sagt fyrir því að Beamon hætt-
ir í íþróttum, en í stuttu máli
‘sagt, er það peningaskortur, en
hann er kvæntur konu frá
Honduras og dýrt háskólanám
í E1 Paso varð hann að hætta
við vegna peningaskorts.
Hnefaleikaþjálfarinn Robert
Gault kom honum til hjálpar
við að komast í sj ómannaskól-
ann og hann sagði, þegar ,það
var öruggt, að langstökk myndi
hann aldrei æfa né keppa í
framar, því að erfitt sé að æfa g
þá íþrótt á skipsfjöl. —
BBC sjónvarpið lýsti á dögunum eftir stórum og þungum konum. Það var formaðurinn i Félagi íþrótta-
kvenna í Bretlandi, sem vildi fá að ræða við konurnar og það mættu 65 til skrafs og ráðagerða, allt hinar
myndarlegustu hnátur. Af erlendum myndatexta er ekki hægt að ráða til hvers konurnar komu á þennan fund
en við getum okkur til, að formaðurinn hafi viljað hvetia þær til að æfa kúluvarp og krin’glukast.
Knattspyrnan
| hjá HSH
I
I
I
I
I
i
I
I
I
I
I
□ Frjálsíþróttadeild IR eínir
til verðlaunaúthlununar fyrir
yngstu meðlimi sína í húsi fé-
lagsins við Túngötu sunnudag-
inn 14. des. kl. 16.00.
Afhent verða verðlaun fyrir
keppnir félagsins við Selfoss
félagsins fyrir hina yngstu í
og eins frá 2. víðavangshlaupi
vor.
Er hér alls um 100 verðlauna
hafa að ræða og er það von
stjórnar deildarinnar og þjálf-
ara að allir hinir ungu piltar
og stúlkur mæti til að taka á
móti verðlaunum sínum.
Að lokinni verðlaunaafhend
ingu verður kvikmyndasýning.
□ Knattspyrnulið HSH hafði
stutta viðdvöl í 2. deild. Liðið
varð neðst í sínum riðli og lék
því aukaleiki við Þrótt úr Rvk
og lið íþróttabandalags ísafjarð
ar um áframhaldandi rétt til
keppni í 2. deild. HSH tapaði
báðum þessum leikjum og mun
því leika í 3. deild á næsta
sumri.
Vonandi láta þeir ekki deig-
an síga við þesar ófarir, held-
ur þjappi sér saman til frekari
átaka. Það eru margir efnilegir
knattspyrnumenn á Snæfells-
nesi, en þá skortir kunnáttu og
reynslu. Einnig þarf að bæta
mjög aðstöðuna til knattspyrnu
æfinga og keppni, þó ekki sé
því að neita að nokkuð hafi á
unnist í þeim efnum á stöðum
Ólafsvík og Hellissandi. Til að
tryggja frekari framgang knatt
spyrnunnar á þessum stöðum,
þarf að auka samskiptin við
Akranes og Borgarnes á knatt
spyrnusviðinu, en ví'sir í þá átt
var Bikarkeppni Vesturlands
er fram fór s.l. vor og tókst í
alla staði vel, —
™ BÓKAÚTGÁFAN
0 HIR.DUR
hiildur