Alþýðublaðið - 20.12.1969, Side 13
Innanfélagsmét ÍR
□ Að undanförnu hafa í'R-ing
ar efnf til nokkurra innanfé-
lagsmóta. Helztu afrek er náðst
haf a á þessum mótum eru þessi;
Hástökk með atrennu:
Jón Þ. Ólafsson ÍR 2.01
Elías Sveinsson ÍR 1.91
Erlendur Valdimarsson ÍR 1.81
S'tefán Hallgrímsson UÍA 1,80
Friðrik Þór Óskarsson ÍR 1,76
Ágúst Schram Á 1.75
Árangur Elíasar er nýtt
drengjamet, og átti hann mjög
góðar tilraunir við 1.96. Eldra
drengjametið átti Erlendur
Valdimarsson ÍR 1.90 frá 1965.
Árangur þeirra Stefáns og
Ágústs er þeirra bezti.
Hástökk án atrennu:
Jón Þ. Ólafsson ÍR 1.69
Elías Sveinsson ÍR 1.60
Erlendur Valdimarsson ÍR 1.51
Fiúðrik Þór Óskarsson ÍR 1.51
Guðm. Jóhannesson HSH 1.51
Árangur Elíasar er jafn
drengjameti Kristjáns Stefáns
sonar FH.
Langstökk án atrennu:
Jón Þ. Ólafsson ÍR 3.24
Erlendur Valdimarsson Í,R 3,11
Framh. á bls. 15
.......... ........■trsrf
Ólympíuleikarnir 1976
verða haldnir í Moskvu
Lausanne, 18. des. (FTO-DPA)
□ Allt útlit er fyrir að Olymp
íuleikarnir árið 1976 ve>'ði
haldnir í Moskvu. Sendinefnd
frá höfuðborg Sovétríkjanna er
nú stiifÚTl í Lausanne og hefur
lagt fram umsókn Moskvu.
Vetrarolympíuleikarnir bað
sama ár verða hins vegar að
öllum líkindum haldnir í Sviss.
Samþykki alþjóða olympíu-
nefndin umsókn Moskvuborgar
verður það í fyrsta sinn, sem
Olympiuleikarnir eru haldnir í
kommúnistaríki. —
Vilja reisa íþróttahús
í sjölfboðavinnu
□ Mikill áhugi ríkir meðal
íþróttamanna á Akranesi að
bjóða fram sjálfboðavinnu við
byggingu seinni hluta íþrótta-
húss, sem byrjað var að byggja
fyrir 2—3 árum. Ákveðið var
að bærinn léti byggja húsið í
tveimur áföngum, þannig að til
bráðabirgða yrði tekinn í notk
un helmingur þess að 20x20 m.
íþróttasalur, en seinna er á-
ætlað að bæta öðru eins við,
þannig að salurinn verði í full
kominni keppnisstærð, 20x40
metrar. íþróttamönnum á Akra
nesi finnst þetta hinsvegar lítil
lausn, þar sem gamla íþrótta-
húsið er löngu orðið of lítið
fyrir íþróttaiðkanir Skaga-
manna, enda hafa bæði gagn-
fræðaskólinn og barnaskólinn
fengið þar inni með leikfimi-
tíma sína, og er svo komið, að
salurinn nægir ekki einu sinni
tii að unnt sé að framfylgja
því sem fræðslulöggjöfin segir
fyrir um leikfimi í skólum. —
Einnig á handknattleikur nú
miklum og auknum vinsældum
Frh. á bls. 11.
Tölva birlir úrstif
□ Á heimsmeistaramóti skíða
manna í alpagreinum, sem fram
fer á ítalíu 7.—lö. febrúar n.k.
verður beitt nýrri tækni við
söfnun og flokkun úrslita.
Það er þýzka rafeindatækni-
fyrirtækið SIEMENS, sem gert
hefur þessi tæki og sjást þau á
myndinni að ofan. Sjálfvirkar
klukkur senda tíma hvers kepp
anda til tölvu, en jafnskjótt
birtir á skermi röð keppenda
og allar tölulegar upplýsingar.
Að lokinni hverri umferð skil-
ar hraðvirk útskriftarvél nið-
urstöðum á blaði til notkunar
fyrir fréttamenn. —■
VÍVERÓ-BRÉFIÐ,nýjasta bók Desmond
Bagleys, er frábærlega spennandi
saga, Sem hefst í Englandi, en leik-
urinn berst brátt til Suður-Ameríku, í
leit að týndri borg, þar sem löngu
gleymdir fjársjóðir eru fólgnir. Óvænt-
ir atburðir gerast og hrikaleg átök eiga
sér stað í frumskógum Suður-Ameríku.
Þetta er ævintýraleg og spennandi
saga, sem sízt stendur að baki fyrri
bókum höfundar.
Verð kr. 370,00
+ söluskattur.