Alþýðublaðið - 02.01.1970, Síða 8

Alþýðublaðið - 02.01.1970, Síða 8
8 Al'þýðublaðið 2. janúar 1970 Sigvaldi Hjáimarsson ræiir viðSkafia Jónsson skipstjóra MEÐ FISKIMÖNNUM Á VESTUR- INDLANDI □ SKAFTÍ JÓNSSON, skipstjóri frá Hrísey hefur um tólf ára skeið starfað út um heim á vegum FAO og kennt nýjar aðferðir við fiskveiðar. Hann var fyrst nokkur ár á Indlandi, síðar í Suður Ameríku og fór svo aftur til Indlands þar sem hann er nú. Sá viðtalsflokkur, sem nú er að hefjast, var sam- inn austur í Madras á síðastliðnu vori. — Kannski þú segir mér frá tildrögum þess að þú réðst til FAO. — Það var haustið 1956, ég var heima í Reykjavík, að ég frétti að Hilmar Kristjánsson, einn af forstjórum Fiskideildar FAO í Róm væri heima og ætl- aði að halda fyrirlestur, eins konar upplýsingafyrirlestur um starfsemi deildarinnar. Eg fór að hlusta á þennan fyrirlestur, en hann var sóttur af 30—40 manns, aðallega skipstjórum. Eftir fyrirlesturinn var mönn- um gefinn kostur á að bera fram spurningar, og jafnframt lét Hilmar þess getið að stöður mundu vera lausar hingað og þangað um heiminn ef þarna vaeri einhver sem hefði hug á þanniglagaðri vinnu. Margar spurningar voru bornar upp, mest um kaup og kjör, og í svörunum kom fram að vanta mundi nokkra menn til Indlands helzt strax eða fljótlega. Þegar allgóðar upplýsingar voru komn ar fram um kaup og kjör datt mér í hug að hreyfa nokkrum fyrirspurnum um staðhætti, hafði' ekki iátið heyra neitt í mér meðan aðrir voru að ræða kjörin — iangaði til að vita eitthvað um fiskveiðar þarna, hve mikið fiskaðist, strauma veðurfar og þess háttar. Senni lega hefur þetta fallið betur í kramið hjá Hilmnri en eilífar spurningar úm kaup. Raunar veit ég ekkert meira um það. Svo leið tíminn framundir jól að ég fékk bréf frá Hilmari þarsem hann spurði mig hvort ég væri tilkippilegur að fara til Indlands. Ég sló til eftirað ég hafði fengið þær upplýsingar sem ég þurfti um kaup og starfs skilyrði. — Hvenær fórstu austur? — Þetta kostaði dálítinn tíma, bréfaviðskipti og formsat- riði, svo það var ekki fyrr en í janúar að þetta var endanlega ákveðið. Ég kom til Rómar í byrjun febrúar 1957, var þar eitthvað tíu daga, og fór aust- ur til Indlands að mig minnir 10. febrúar. — Hvað um fjölskylduna, kom hún strax með þér austur? — Nei, hún var kyrr heima, kom ekki a^stur fyrren í júní. Við vorum hálf-smeyk við þessa ráðabreytni og ákváðum að ég færi fyrst og sæi hvernig lífs- hættir væru þarna. — Hvert fórstu fyrst? •—- Við flugum til Bombay þrír saman. Annar félagi minn, var Skoti. Mr. Mackencie að nafni, átti að vera nokkurs kon- ar framkvæmdastjóri fiskveiða- stöðvarinnar í Bombay sem al- ríkisstjórnin hafði sett á stofn. Hinn var Japani, dr. Miamoto, sérfræðingur í veiðarfærum, einkum þeim efnum sem til veið arfæra eru notuð. hvernig þau eru gerð, hvernig bezt geymd og meðhöndluð á allan hátt. Hann var sendur til Cochin í Kerala og starfaði þar um sinn. Ég staldraði nokkra daga við í Bombay, en átti síðan að fara til Saurasthra á Vestur-Ind- landi. — Hvernig leizt þér á þig þeg ar þú komst austur? — Nú svona og svona, mað- ur fór strax að gera sér ein- hverjar hugmyndir og breyta þeim síðan smátt og smátt. Þetta var ágætt í Bombay, það er alveg vestræn borg, a. m. k. þeir hlutar þarsem útlending- ar halda sig. Þá var þarna um að ræða tvö ríki, Gujarat og Maharasthra sem síðan voru sameinuð í eitt, og svo enn síð- ar sundur skilin að nýju. Eins og ég sagði áðan var ég ráðinn til Saurasthra sem er í Gujarat, ráðinn til eins árs; maður er alltaf ráðinn til eins árs í senn, síðan framlengist ráðningin venjulega af sjálfri sér nema eitthvað sérstakt komi tik manninum líki ekki starfið eða sé gersamlega hindraður í að gera nokkuð að gagni. Ef mað- ur er í tvö ár fær hann þriggja mánaða sumarfrí seinna árið og svo á tveggja ára fresti úr því. — Þín ráðning hefur þá verið tólf sinnum endurnýjuð. — Já, það hefur farið,svo. — Hvað fórstu að lara fyrst? — Þegar ég fór frá Róm var ákveðið að ég skyidi strax fara að heimsækja Guðjón Illuga- son sem var að vinna einhvers staðar í Madrasríki; þeir í Róm vissu ekki gerla hvar, það átti és>: að finna út. Hann var búinn að vera hér í þrjú eða fjögur ár. ég held hann hafi komið út 1954 eða þar um bil. Eg átti að fara til hans og vera með honum í tvær eða þrjár vikur, siá hvernig hann hagaði verk- um, venja mig við og læra af reynsiu hans. í Bombay fékk ég að vita að fjölskylda hans væri í Madras, tók niður heim- ilisfangið og fór svo með flug- vél til Madras, stanzaði ekki nema innan við vi'ku í Bom- bay. Guðjón var ekki heirna þegar ég kom til Madras, en Björg kona hans var þar með börnin, þau höfðu þar hús á leigu, en hann var hingað og þangað, í þetta skipti suður í Rameswaram sem er borg syðst á landinu, austan á suðuroddan um að segja má. Sú borg ligg- ur þar sem eyjaklasi og rif ganga frá landinu alla leið til Seylon og ekki fært gegnum sundin nema á smábátum. Það er hin svokallaða Adamsbrú. Þarna var Guðjón með bát sem FAO átti, það var 36 feta stál bátur, bara venjulegur snurpu bátur, og var að gera tilraunir með trollfiskirí. Þegar ég kom var hann rétt búinn að finna ágæt fiskimið þarsem hann veiddi fisk þann sem kallaður er silfurmagi. Ég varð að fara með lest frá Madras til Pames- FYRSTA GREIN varam. Björg hjálpaði mér að ná í miða og útbúa mig einsog við á í svoleiðis ferðalag á Ind- landi. Eg þurfti að fá ferða- sæng lil að nota í lestinni, en það eru þægilega útbúin teppi og lök innaní pokum. Svo lagði ég af stað um kvöld, á fyrsta farrými. Þetta er átján tíma ferð, auðvitað fannst mér anzi heitt, en verst þótti mér ryk, mcldrok og kolareyk.ur sem ætl- aði að kæfa mig, mikil viðbrigði . að koma norðan. af íslandi um hávetur og ferðast hér bull- sveittur og kámugur af sóti og ryki. — Lestarferðir í hitabeltinu eru töluverð reynsla fyrir óvana. Hvað fannst þér um þessa fyrstu lestarferð þína? — Það bar ekkert til tíðinda, að ég geti talið. Þegar líða' tók á daginn fór ég að fækka föt- IIIIÍÍÍM lllllllll ■ ' v ' CV', ' SRafti ásamt tveimur barnabörnum s um, a.fklæddist að ofan. Þessi lest stanzaði á hverri stöð. Einu sinni námum við staðar á ein- hverri stöð, ég sat í klefanum, sveittur og krímugur, sjálfsagt ferlegur ásýndum. Þá tek ég eftir að útá lestarpallinum geng ur hópur af krökkum, líklega bekkur úr r.kóla, og tvær konur með. Krakkarnir ganga í röð og eiu nærri komin framhjá, en lítil stúlka sem er aftast lítur eitthvað við og sér mig innum gluggann, stanzár og segir eitt- hvað og allur hópurinn fer að glápa á þetta viðundur í lest- inni. Hópurinn mjakast nær og nær, en ég sit hinum megin í lestinni svo öll vagnbreiddin er á milli. En þegar andlitin eru komin a.lve-g uppað g'lugganum þá stekk ég upp, þýt til þeirra og rek útúr mér tunguna. Það va.r meira fiaðrafokið. Litla telp a.n dett og beljaði þessi ósköp, ble'suð litla hnátan, hefur á- reiðanlega ekkert skilið hvaða dýrategund^þetta var. Björg hafði farið með mig í dýragarð- inn í Madras daginn áður, og mér flaug einmitt. í hug að þarna hefði þetta fólk verið að glápa á mig' einsog ég hafði Konurnar bera fiskinn upp á fisksölutorgiS í Veravel. -Ég tók einn stjómbátinn, léf byggja yfir hc sjálfur - sljérnarvöldin voru heldur slirð, e gera mér slórgreiða að leyfa mér að gera þ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.