Alþýðublaðið - 03.01.1970, Síða 2

Alþýðublaðið - 03.01.1970, Síða 2
2 Alþýðublaðið 3. janúar 1970 Götu Gvendur a □ BÆÐI forsætisráðherra og útvarpsstjóri minntust lítillega á það í útvarpi og sjónvarpi á gamlárskvöld að það sem mann inn skorti nú helzt væri þekk- ing á sjálfum sér. Hvorugur gerði þetta að verulegu umtals- efni, það flaut svona fram með öðru, en samt er það mikið fagn , aðarefni að þessi augljósa stað- reynd skuli vera einhverjum . ljós! eða að minnsta kosti ein- ' hverjir telji til einhvers að geta ! hennar á hátíð. i i Á FORNUM TÍMUM var spurningin um sjálfsþekkingu talin mikils verð, en síðar hvarf • hún algerlega í skuggann, senni lega mest fyrir hálfblinda trú og seinna af hroka og barnalegt of- mat á því sem mannfólkið kall- a,i’ afrek, uppfinningar, tækni 1 skipulag, vísindi. En þetta tvænnt, blind trú hvort heldur er i trúmálum eða pólitík ásamt ofmati á uppfinningum og tækni er að leiða mannkynið útí hrein ar ógöngur: mátturinn til að tor tíma er miklum mun meiri en til að byggja upp, löndin, særinn og gufuhvolfið eru að eitrast sambúðarvandamál manna enn í dag í sömu vitleysunni og var á liðnum öldum. I ÞAÐ er furðulegt að spurn- ingin um manninn sjálfan vekur ekki meiri athygli en hún ger- ir, því það liggur í augum uppi að ef hann botnar ekkert í sjálf um sér botnar hann ekki nokkra lifandi vitund í neinu öðru því sjálfur er hann mælikvarðinn á allt sem hann skoðar. Vissulega héfur maðurinn alls konar hug- myndir um sjálfan sig, en þær hljóta að vera herfilegur mis- skilning'ur því flest eða allt sem hann gerir gerir hann fyrir sjálf an sig' og samt snýst á ein- hvern hátt allt á móti honum: með friðarviðleitni stofnar hann til ófriðar, með öflun auðs skap- ar hann fátækt, með hamingju- leit veldur hann óhamingju. ÞAÐ er auðljóst að lausnin á vandamálum nútímans — ef hún finnst — er ekki fleiri atóm spreng'jur, fleiri menn á mán- ann, hraðari samgöngur, meira skipulag, flóknari tækni — held ur nýtt mannllf sem byggist á allt öðrum skilningi á eðli mannsins. ÉG SNÝ ekki til baka með það sem ég minntist á í síðasta pistli mínum fyrir áramót að ég á bágt með að þola alla þessa upprifjun á því sem gerðist á árinu og vantar algerlega greind til að sjá hvaða tilgangi hún þjónar. Menn læra ekki af reynslunni með því að endur- taka það liðna, heldur með hinu að reyna að finna uppá ein- hverju nýju. Fortíðin er bara víti til varnaðar. Öll okkar liðnu áramót hafa verið gláp á liðinn tíma, við erum alltaf að ganga afturábak á móti framtíðinni. Væri ekki skemmtilegra þótt erf itt sé að reyna að gera sér skyn tamlega grein fyrir hvað hið nýja ár beri í skauti? Götu-Gvendur. Smurt hrauB Snittur BrauStertur BRAUÐHUSIÐ SNACK BÁR . Laugavegi 126 Síati 24631. I HEYRT OG SÉÐ j Falleg föt I Meredifh Meredith, sem er dóttir kvik- myndaleikarans Gordon Mac- Rae, er nú orðin Hollywood- stjarna. en nú er hún að leika í mynd sem nefnist „Norwood". Áður hefur hún leikið í mynd- inni „My Three Sons“ og „Petti coat Junction“. Á benzínstöðínni Þessar fallegu stúlkur sýndu á tízkuhúsinu í London fyrir skömrnu þessi föt, sem sögð eru vera sérlega heppileg fyrir stúlkur sem vinna við benzínaf- greiðslu. Að minnsta kosti ættu fstúlkurnar ekki að fæla við- skiptavinina frá. — og fataleysi *;-• • i

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.