Alþýðublaðið - 03.01.1970, Side 9

Alþýðublaðið - 03.01.1970, Side 9
Alþýðublaðið 3. janúar 1970 9 : mtmrnmi urlaug Rósinkranz (greifafrúin). INGA MARÍA EYJÓLFS- DÓTTIR, söng og lék Barbar- inu. Hún gerði það mjög vel var létt og frjálsleg í hreyfing- um. Hún hefur létta lyriska sópranrödd, hún mætti syngja með meiri lit, ítalskan má vera betri. HJÁLMAR KJARTANS- SON, söng en lék ekki Dr. Bar- tolo. Hann hefur góða bassa- rödd, en ekki jafna, þegar hann beitir sér. Hann var ekki „typ- an“ sem Dr. Bartolo, þess vegna fór öll fyndni út í veður og vind. SIGURVEIG HJALTESTED, söng en oflék Marcellinu. Hún beitti röddinni alltof mikið, eins og hún væri að syngja Verdi en ekki Mozart. Búningur og gervi hennar var eins og á þýzkri bóndakonu, ég hef aldrei séð nema veiklædda Marcellinu. Hún átti að vera með fallegan höfuðbúnað en ekki bara slétt hárið. Það var synd að aríu Marcellinu í 4. þætti „II Capro Ella Capretta", var sleppt. Þetta er flott aría, með flúrsöng, sem væri gaman fyrir mezzosópran að spreyta sig á. ítalsk.an mátti vera betri. GESTUR GUÐMUNDSSON, söng Don Basilio tónlistarkenn- ara, hann hefur ágæta lyriska tenórrödd og beitir henni sóma- samlega. Hann fékk heldur eklci að syngja sína .aríu, ég veit að henni er oft sleppt. Leikur hans var ekki sannfærandi, þetta er gamansamt hlutverk. ítalskan var ekk.i góð. HÁKON ODDGEIRSSON, söng Don Curzio lögfræðing. Framhald bls. 11. I I I I I I I I I I I : I I i I ! ! I I Kona ársins í □ Þótt okkur sé ekki kunnugt um neitt þýzkt blað hafi kosið Ruth Brandt, kona vestur- hana konu ársins, þá hefur þýzka kanslarans Willy Brandt óneitanlega verið sú kona þar i landi, sem mest hefur verið í sviðsljósinu árið 1969. Ruth er að sögn kunnugra sérlega aðlaðandi kona og Ijúf í viðmóti. Það er tekið eftir því hve smekklega hún klæðist og hve létt henni fellur að koma fram opinberlega, þótt hún taki að öðru leyti sem minnstan þáit í stjórnmálum. Þau hjón liafa nú verið gift í 22 ár og eiga þrjá syni, hina mannvænlegustu. — Tií hægri: Kanslarafrú Rúth Brandt — ein af bezt klæddu konum Þýzkalands. 5 neðan: Aðaláhúgamál frúarinnar eru heimiliS og fjölskyldan.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.