Alþýðublaðið - 17.07.1970, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 17.07.1970, Blaðsíða 14
14 Fcstudagur 17. júlí 1970 MOA MA RTÍNSSON: 1. fPTKT Ég man svo vel eftir deg- inum, þegar hún mamma gifti sig. Við áttum báðar heima hjá systur hennar inni í Norrköping. Það var á föstudegi, og mamma féklk frí í verksmi'ðjunni. Hún var í svörtum kjól, sem ein verk- smiðjustúlkan, vinnufélagi hennar, hafði lánað henni. — Fjárhagsástæður mömmu voru nefnilega enn ekki komnar í fastar skorður eft- ir iæknishjáipina, sem hún varð að kaupa handa mér, þegar ég fékk beinkrömina. Og peningaupphæðina, sem mamma á sínum tíma fékk hjá raunverulegum föður mínum í „eitt skipti fyrir öll“ eins og stóð í kvittun- inni, hafði hún látið ganga til föður sins og móðurafa Aúns, og fyrir hana ætlaði hann að ala mig upp; faðir minn var sem sé allt of „fínn“ til þess að kvænast mömmu minni. Það var víst sitthvað að eiga barn með stúlku og að ganga að eiga hana. En einmitt sama árið fékk hann afi lungnabófgu og dó. Og amma mín gat ekki aiið önn fyrir mér nema eitt ár í viðbót, því að þá varð hún blind og það varð áð láta hana fara á fátækraheimil- ið. Upp frá því varð mamma að’ láta mig fylgj a sér eftir. Og mín sök var það, að hún fékk aldrei neitt annað að gera en að vera vinnukona, þangað till hún komst í Briicks-verksmiðjuna í Norr- köpinig. Barnalífeyririnn minn var lífca löngu gufaður upp, því að meðan hann afi hafði þá skrifaði hann nefniiega upp á víxla fyrir kunningja sína. En nú ætlaði mamma sem sagt að gifta sig. Hún var í svörtum kjól og þar að auki hafðj hún perlufesti með mörg um aflöngum glerperlum um hálsinn, Seinna meir erfði ég þessa perlufesti. Ég á hana enn í dag. Mamma sat og beið eftir stjúpa mínum. Við vor- um í eina herberginu henn- ar móðursystur minnar í Norrköping, Mér þóttu það hin mestu undur að sjá hana mömmu sunnudagaklædda á virkum degi. Mamma og stjúpj minn voru burtu í eina klukku- stund eða svo. Þá komu þau aftur og voru þá orðin hjón. Nú átt þú að kalla hann pabba, sagði mamma. Stjúpi minn reigði sig og teygði og sneri upp á yfir- vararskeggið. Já, nú átt þú að segjia pabbi, sagði hann. Það leið langur tím^ þar til ég gat fengið mig til þess. Við áttum heima hjá móð- ursystur minni enn um hríð. Einn góðan veðurdag hætti hún að vinna í verksmiðjunni. í dag ætlum við að flytja heim. sagði hún um leið og hún tók mig í keltu sína. Hún var venju fremur glöð í braigði. Daginn eftir þrömmuðum við mamma gegnum bæinn og út eftir Gamla Eyjavegi. Ferð inni var heitið til bóndabæj- ar, sem var svo sem stund- arfjórðungsgang fyrir utan Norrköping. Við vorum báðar móðar og másandi, enda bái’- um við talsvert. Ég bar rúllugardínu, sem vinnufélagarnir í verksmiðj- unni skutu saman i handa mömmu, regluiega fína og svo fallega rúllugardínu. Það voru svo fallegar myndir á gömlu rúllugardínunum. Ég er viss um að þær hafa haft verulega þýðingu fyrir þrosk- un hugmyndaflugsins hjá litl- um bömum, enda ritað bæði í bundnu og óbundnu máli. Á þessari rúllugardínu var mynd af stúlku, sem var að sækja vatn í fötu yfir bogna brú. Hún fór í raun og veru yfir laekinn að sækja vátnið í bókstaflegri merkingu. Þau voru ekki svo fá kvöld in, sem ég átti eftir að liggja vakandi í rúminu og brjóta heilann um, hvernig muni hafa verið umhorfs hei'ma hjá þessari stúlku. Hvort hún muni hafa verið að skúra gólfin fyrir mömmu sína og það þykir mér liklegast, því hún hafði stytt pilsið sitt. Og svo líka, hvort ég myndi nokk urn tíma eignast eins fallega tréskó og hún var í. Aldrei á ævi minni hef ég séð svo fal- lega tréskó; ekki einu sinni etftir að ég varð fullorðin og átti þess kost að koma á veraldarinnar glæsilegustu markaði. Við gengum eftir breiða, gamla veginum, mamma mín og ég. Það var voðalega, ó- sköp gamall vegur, einn elzti þjóðvegur landsins. Það var í apríl. Sólin skein í heiði og það var mjög heitt. Stjúpi minn var þegar hér var komið sögu fyrir nokki-u kominn á þennan bæ og orð- inn vinnumaður. Mamma og ég myndum fá að verða ein- ar allan seinnihluta dagsinS. í allra fyrsta skipti frá því að ég mundi fyrst eftir mér, áttum við að fá að vera al- veg einar. Ég var bráðum orðin sjö ára. Fósturmóðir hans stjúpa míns hafði gefið ókkur flesta innanstokksmunina; það var kommóða, rúm, borð og nokkrir stóla'r, allt úr birki. Allir þessir munir voi-u úr búinu hennar. En svo var þar líka laust, lítið rúm. Það var nýtt, brúnmálað og með út- Skornum fótum. Þar átt; ég að sofa. Nú vorum við mamm.a á. leið inni til þess staðar, sem verða skyldi fyrsta heimili ókkar, Við komum að hvífkölkuðu húsi. Það stóð í brekku og það voru geysimargar tröpp- ur upp að dyrunum. Innan til við- gluggatjöldin sáum við forvYtnum andliltum þregðlíf* fyrir. Mamma tók upp lykil og lauk upp fyrstu dyrunum til vinstri í forstofunni. Ah, ha, sagði ég bara. Mlimma haf ði Verið þar daginn áður að koma öllu fyrir. Það voru drifhvít tjöld fyrir gluggunum, og þeir voru meira .að seigja tveir. Það voi-u að vísu gömul glugga- tjöld, sem amma hafði látið hana fá, en þau voru hvít- þvegin og stífuð og alveg heil. Það var hvít ábreiða yf- ir rúminu, hvítur dúkur á borðinu og nýjar smáábreið- ur innan við dyrnar og fram- an við stóra rúmið, sem R 11701—R 11850 R 11851—R 12000 R 12001—R 12150 R 12151—R 12300 R 12301—R 12450 R 12451—R 12600 R 12601—R 12750 R 12751—R 12900 R 12901—R 13050 R 13051—R 13200 R 13201—R 13350 R 13351—R 13500 R 13501—R 13650 R 13651—R 13800 R 13801—R 13950 R 13951—R 14100 Auglýsing um skoðun bifreiða og bifhjóla í lögsagnar- umdæmi Reykjavíkur. Aðalskoðun bifreiða og biflhjóla í lög'sagnar- umdæmi Reykjavíkur mun fara fram 20. júlí til og með 21. ágúst nik., sem 'hér segir: Mánudaginn 20. júlí Þriðjudaginn 21. júCLí Miðvikudaginn 22. júlí Fimmtudaginn 23. júilí Föstudaginn 24. júlí Mánudaginn 27. júlí Þriðjudaginn 28. júlí Miðvikuldlaginn 29. júlí Fimimtudaginn 30. júlí Föstudaginn 31. júlí Þriðjudaginn 4. ágúst Miðvikudaginn 5. ágúst Fimmtudaginn 6. ágúst Föstudaginn 7. ágúst Mánudaginn 10. ágúst Þriðjudaginn 11. ágúst Miðvikudaginn 12. ágúst R 14101—R 14250 Fimímtudaginn 13. ágúst R 14251—R 14400 Fclstudaginn 14. ágúst R 14401—R 14550 Mánudaginn 17. ágúst R 14551—R 14700 Þriðjudaginn 18. ágúst R 14701—R 14850 Föstudaginn 21. ágúst R 14851—R 15000 'Bifreiðaeigendum ber að koma með toifreiðar sína - til toifreiðaeftirlitsins, (Borgartúni 7, og vcrður skoðun fram- kvæmd þar alla Vhka daga ki 09.00 til 16.30, einnig í hádeginu, nema mánudaga til fcl. 17,30 til 30. apríl, en til 16,30 frá 1. maí til 1. okt. Aðalskoðun verður ekki framkvæmd á laug ardögum. ) Festivagnar, tengivagnar og farþegatoyrgi skulu fylgja toifreiðunuim til skoðunar Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fuil- giid ökuskírteini. Sýna 'bler skilríki fyrir því, að bif- reiðaskaltur og váti-yggingariðgjald ökumanna fyrir árið 1970 séu greidd og lögboðin vátrygging fyrir hverja bif- reið sé í gildi. Þeir bifreiðaeigendur, sem hafa viðtæki í bifreiðum sín- um, skulu sýna kvitbun fyrir greiðslu afnotagjálda til ríkisútvarpsins fyrir árið 1970. Ennfremur ber að fram- vísa vottorði frá viðurkenndu viðgerðarverkstæði um að Ijós ’bifreiðarinnar hafi verið stillt. Athygli skal vakin á Iþví, að skráningarnúmer skulu vera vel læsileg. Vanræki eirhver að konia bifreið siiini til skoðunar á réttum degi, verður hann lálinn sæta sektum samkvæmt nmferðarlögtvn og lögum um bifreiðaskatt, og bifreiðin tekin úr umferð, hvar sem til hennar næst. Þe'tta tilkynnist öllum, sem 'hlut eiga að máli Lögreglustjórinn í Rgykjavík, 16. júlí 1970. Sigurjón Sigurðsson. m vmna Upplýsingar í síma 18892. Tökum að okkur breytingar, viðgerðir og húsbyggingar. ! Áskriflarsíminn er 14900

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.