Alþýðublaðið - 18.08.1970, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 18.08.1970, Blaðsíða 10
10 Þriðjuda'gur 18. ágúst 1970 MOA MA RTINSSON: 20. gegnum Gstsemane skaltu, þú skalt gexa iðrun og afplána þina synd . . . Foreldrar þín- ir dóu úr kólerunni, af því að drottinn guð var þeim reiður þvi að þau voru óguð- leg; og syndari ert þú og kall ar böl og óhamingiu yfir mitt fólk og mitt hús“. Þannig lét hann dæluna ganga, sá hund- ur. Amma var hás og röddin var gróf, þegar hún líkti eftir hinum siðavanda frænda sín- um. I | „Þama skaltu liggja og sveitast blóðinu, skækjan þín“. Víst hvert hús í nágrenn- inu, eins heyrðust hljóðin í henni inn í og þess vesalingur líka grét og hrópaði og kall- aði á hjálp, og ekki heyrðist minna í honum, eins og hann' líka æpti og ösknaði. En það voru mest fátækir aumingjar, nágrannarnir, og enginn þeirra þorði að skerast í leik- inn ög koma henni til hjálpar; enginn, alls enginn . . . Seinni hluta næstu nætur steig hún upp úr rúminu, hún systir min. Ég ætla niður að ánni tíl þess að þvo á mér bakið, sagði hún. Það svíður svo á mér bakið, að ég heid að ég deyi, ef ég get ekki þvegið á mér bakið. Hún skreið út um gluggann. Það var búið að hýða okfeur bróðir minn og mig svo rækilega hennar vegna, að hvorugt ofekar þorði að elta hana til þess að fylgjast með því, hvert hún færi og hjálpa henni að þvo á sér bakið. Hún dróst ein frá húsinu: maður þorir aldrei neitt þegar maður er kúgaður. Svo flaug okfeur lífea í hug, að hún ætlaði að komast til kærastans. Og þá máttum við ekki trufla. En það gerði hún ekki. (Við hóldum að hún ætlaði að komast til kærastans, flétt aði ég inn í hér og þar, þegar ég sagði Hönnu litlu frá þessu otftar en einu sinni síðar). Nei, það gerði hún ekfei. Hún gekk rakleiðis niður að gljúfrinu og fleygði s.ér þar fram af. Það var langt niður að ánni og þangað géfck hún ein í angist og fcvöl, heila milu. Það var algengt að fólfc drekkti sér þaraa, og þess vegna fylgdist lögr-eglan vel með ánni fyrir neðan gljúfrið, þar sem hún flóði út á eyr- arnar. Enda fundu þeÍT hana strax daginn etftir. Þú heldur kannske að lögreglan hafi haft orð á því, að henni hafi verið misþyrmt; það hafi líkið henn ar sagt til um? Ónei. Hún steinhélt kj'afti, lögreglan, eins og hennar var von og vísa. (Þú heldur kannske að lög- reglan hafi haft orð á því að bakið á henni hafi borið þess merki, að henni hafi verið misþyrmt? Nei, ónei, þú mátt reiða þig á að það gerði hún ekki, lögreglan, sagði ég Hönnu litlu, og svo grét hún og var með efeka af sorg, með 'an ég hugleiddi hvaða hefnd- um ég gæti komið fram á hendur lögreíglunni.) Þeir báru hana til kapeli- unnar, og við urðum að fara þangað og vitna, að hún væri systir okkar. Ég gleymi aldrei bakinu á henni, Hedvig, — ég-er nú orðin sjötíu o!g fjög- urra ára, og orðin eins og þvottabreitti. Blóðugar gróp- arnar hver við hliðina á ann- arri í löngum röðum. En það var enginn, sem sá það eða vildi sjá það. Þá voru öll börn hvort sem var hýdd. Enginn fékkst um lítið bak, sem hefði orðið fyrir misþyrm- ingu. ' Hún systir min fyrirlfór sér bara vegna þess, að þetta kvikindi hýddi hana naktai Kærastinn hennar vogaði sér ekki að gefa sig fram og kæra' hana. Hann var efcki einu’ sinni við jarðarförina. Ég vissi ald-rei, hvar þeir grófa hana, því við flýðum -nóttina eftir að hún fannst, bróðir minn og ég. Okkur var ekki veitt eftirför. Það hefur víst orðið því fegnasit, fólkið, að vera laust við ökkur. Því nú varð jörðin eign mannsins, sem í rauninni varð systur cxkkar að bana. Enginn vissi hvar elzti bróðirinn, sjóliðs- foringinn, var niður kominn eða hvort hann var dguður eða lifandi. Já, Hedvig mín, — hvað er það ekki, sem ég síðan hetf orðið að gegnum ganga, öllu heldur skríða í gegnum, stökkva í gegnum; oftast hef ég að vísu reynt að sneiða hjá að mæta eríiðleik- unum, en það tekst aldrei, maður verður alltaf að horf- ast í augu við erfiðlteikana; — annars yfirstígur maður þá ■ ekki eða síður að minnsta- kosti. Og svo varð það, að yngri bróðir minn fyrir hreina tilviijun varð sótari, -en ég gerðist vefari í verksmiðju. Það munaði litlu að úr méi’ yrði allt annað . . . Eftir að bróðir minn varð fjórtán ára var hann varla ódruk-kinn. einn einasta dag, og svo flækt:st hann til Belgíu. Ég frétti til hans þaðan og ég gat ekki vitað hann þar umhirðu- lausan í óreglu og það endaði með því að ég mátti skrapa - saman handa mér fyrir tfari með hriplekri skútu þangað til þess að sækja hann. Já, það er sprúttið, sem hefur ' eyðilagt hann eins og fleiri. Hann igat ekki lifað án víns; hann gat ekki unnið handtak án þess að hafa bragðað meira eða minna vm,. Ég reyndi einu sinni, hvernig það væri að drefeba vín; hvort manni veitt ist léttara að bera lífsins byrð ar. Það var nóg og ódýrt vín á boðstólum; ég var þá þrett- án ára og gætti svína suð- ur í Stegeborg. En það er nú einu sinni svona, að við kon- umar höfum víst ekki. smekk fyrir brennivín. (Það. er nú svona, að við konumar höfum efeki smekk fyrir brennivín, fræddi ég Hönnu litlu seinna mleir>. Mér þótti vænt urn.' hann bróðir minn og vildi allt fy-r- ir hann gera. Og svo var iann- að: Han-n var sá einasti, sem ég gat snúið mér til: lík-a sá Hver býður betur? Það er fojá okkur sem þið getið fengið AXMINSTEE teppi með aðeins 10% útborgun AXMINSTER — annað ekki. AXMINSTER ANNAÐ EKKI Grensásvegi 8 —Sími 30676 Laugavegi 45B — Sími 26280. Volkswageneigendur Höfum fyiirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok —Geymslulok á VoUcswagen í all- flestum litum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. Reynið viðskiptin. Bflasprautim Garðars Sigmundssonar Skipholti 25, Símar 19099 og 20988. KJÖTBUÐIN Laugavegi 32 Nautahakk kr. 167,00 kg. — Nýtt hvalkjöt kr. 60,00 fcg. — Eitt bezta saltkjöt borgarinn- ar kr. 138,00 fcg. — Ávallt nýreykt hangikjöt, sérstök gæðavara. — Læri kr. 168,10 kg. Frampartar kr. 120,00 kg. KJÖTBÚÐIN Laugavegi 32 BÍLASKOÐUN & STILLING Skúlagötu 32. HJÓLASTILLINGAR MÚrOHSTILLIMfiAB L J ÚS ASTILLIN G A R Simj LátiS stilla í tima. <| Q 4' fl Fljót og örugg þjónusta. ' I W ; I U U r f Askriftarsíminn er 14900

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.