Helgarpósturinn - 03.04.1995, Blaðsíða 16
IÞROTTIR
MWNUÐWGUJFF3
^igiirrSnr ^\/pinccnn einn af lykilmönnum hand-
boltalandsliðsins, er að skríða saman
Hef verið vafinn í bómull
segir kappinn.
• Handboltakappinn góökunni, Sigurður Sveinsson, einn af
burðarásum íslenska landsliðsins, fékk á dögunum heiftar-
lega í bakið. Þursabit Sigurðar veldur handboltaunnendum
að sjálfsögðu miklum áhyggjum, sérstaklega þar sem hann
hefur einnig átt við meiðsl í olnboga að stríða og aðeins er
rúmlega mánuður þar til heimsmeistarakeppnin hefst hér á
landi.
pósturinn getur hins vegar
fært aðdáendum Sigurðar
þær gleðifregnir að hann býst
við að geta hafið æfingar í vik-
unni.
„Þetta hefur komið oft áður
fyrir mig. Það er bara misjafnt
hvað ég er fljótur að ná þessu
úr mér, þetta var npkkuð
slæmt í þetta skiptið. Ég hef
verið í nuddi og hnykkingum
og það má segja að ég hafi
verið vafinn í bómull undan-
farið. En ég ætla að reyna að
byrja að æfa í byrjun vikunn-
ar.“
En hvað segir Sigurður af
olnbogameiðslunum sem
voru að hrjá hann í úrslita-
keppninni?
„Eg er ekkert byrjaður að
reyna á olnbogann og hef ekk-
Sigurður Sveinsson fékk heift-
arlegt þursabit á dögunum en
býst við því að geta hafið æf-
ingar í vikunni.
ert kastað á mark að viti. En
ég held að það líti bara ágæt-
lega út líka.“ ■
Sá hæstlaunaði í Noregi
■
Norskir fjölmiðlar segja
hann sé með milljón á mánuði
hjá 1. deildar liðinu Stabæk og
þar með sá hæstiaunaði í
norskri knattspyrnu. Það hnuss-
ar bara í Tommy Svindal Larsen
þegar hann er spurður um þetta
en hann játar að launin séu góð.
Larsen, sem er 21 árs, er fyrir-
liði Ólympíuliðs Norðmanna
sem burstaði meðal annars Lux-
emborg 8-0 fyrir skömmu og
það á útivelli. Hann fékk nýjan
samning fyrir skömmu. „Ég er
sannfærður um að ég sé með
besta samninginn í Noregi." Þá
má geta þess að Borusia Dort-
Tommy Svindal Larsen er talinn
sá efnilegasti í Norggi.
mund er með piltinn undir smá-
sjánni núna en það er spurning
hvort þeir geti keppt við þessi
laun. ■
Fá KR-ingar Geir?
Geir í þjálfun
Því er staðfastlega haldið
fram að Geir Sveinsson, fyr-
irliði Valsmanna og lands-
liðsins, œtli að hefja þjálf-
araferil eftir heimsmeist-
arakeppnina. Hefur KR
verið nefnt þar til sögunn-
ar en faðir Geirs, Sveinn
Björnsson, forseti ÍSÍ, var
mikill KR-ingur. Ljóst er
að KR-ingar sem hafa efni-
legt lið, meðal annars
fjóra leikmenn í 21 árslið-
inu, munu skipta um þjálf-
ara þarsem Ólafur Lárus-
son þjálfarþá ekki áfram.
En fleiri hafa verið nefnd-
ir til sögunnar í kringum
handknattsleikstið KR,
nefnilega Valdimar Gríms-
son hornamaðurinn eitraði
sem ku geta hugsað sér að
verða spilandi þjálfariM
Græða vel á
PÓLITÍKINNI
Körfuknattleiksliðin á
Suðurnesjum standa flest
sœmilega fjárhagslega
enda mikill stuðningur við
íþróttina þar suður frá. Ný
tekjulind hefur rekið á
fjörur þeirra Suðurnesja-
manna undanfarið þar
sem eru pólitískar auglýs-
ingar, en ekki hefur verið
þverfótað fyrir þeim í
íþróttahúsunum í úrslita-
keppninniM
Féllu en löguðu
ÁRSREIKNINGINN
Úrvalsdeildarlið Snœfells
í körfuknattleik ákvað að
eyða ekki miklum pening-
um þetta tímabilið. Leik-
mannakaup voru í lág-
marki og fór því sem fór
að liðið féll úr úrvalsdeild
en með ágœtlega efnilegan
mannskapM
Flytur
Teitur sig?
Það er engum blöðum um
það að fletta að Teitur Ör-
lygsson hefur leikið frá-
bœrlega með Njarðvíkurl-
iðinu þetta tímabil. þegar
hefur heyrst afþví að
hann muni hugsa sér til
hreyfíngs eftir tímabilið
enda Ijóst að hann mun
geta gert góða samninga
ef honum býður svo við að I (t
horfa.W Lm
A það til að stökkva upp á
borð á miðjum samninga-
fundum.
Hér á landi eru hundruð ef
ekki þúsundir gamalla hand-
bolta- og fótboltakempa sem
nota hvert tækifæri til að lýsa
vanþóknun sinni á körfuboltan-
um. Hvernig stendur á því að
stór hluti íslenskra ungmenna
hrífst svo mjög af heimskuleg-
um leik þar sem markmiðið er
að henda, ljótum, appelsínugul-
um bolta ofan í körfu? Og hvern-
ig stendur á því að fyrirmynd-
irnar eru ekki lengur Geir Hall-
steinsson, Siggi Dags og Atli Eð-
valdsson heldur forríkir svert-
ingjaslánar sem hafa ekkert
betra við frítíma sinn að gera en
að gaula rappsöngva? Ef þið,
fótboltafríkin, þurfið einhvern
til að kenna um þessa vitleysu
þá er rétti maðurinn David Stern,
framkvæmdastjóri NBA- deild-
arinnar.
David Stern er sannkallaður
kraftaverkamaður. Þegar NBA-
David Stern og Julius Erving
(Dr. J) kampakátir.
deildin rambaði á barmi gjald-
þrots og útlit var fyrir að fækka
þyrfti liðum úr 23 í 16 kom Stern
eins og fyrirliði riddaraliðsins til
bjargar. Stern er 175 sm á hæð
og í laginu eins og körfubolti.
Pabbi hans rak matvörubúð í
Chelsea-hverfinu í New York,
nokkrum húsalengjum frá Madi-
son Square Garden, heimavelli
New York Knicks, mekku körfu-
boltans. Foreldrarnir sendu
hann í laganám og hóf hann
snemma störf á lögfræðiskrif-
stofu. í gegnum atvinnuna fékk
hann töluverð kynni af NBA-
deildinni og hóf störf þar árið
1978. Stern sá snemma þá
möguleika sem fólust í deildinni
og fljótt fengu aðrir trú á hon-
um. Hann var gerður að varafor-
seta deildarinnar þremur árum
síðar og tók svo við sem fram-
kvæmdastjóri 1. febrúar 1984.
NBA-deildin hefur ekki verið
söm síðan.
Undir stjórn Stern hefur velta
deildarinnar um það bil fjórfald-
ast. Öll liðin skila árlega miklum
hagnaði og flest lið hafa meira
en þrefaldast í verði. Frá því að
hann tók við skipstjórninni hef-
ur liðum deildarinnar fjölgað
um fjögur og nú eru tvö kanad-
ísk lið á leiðinni, Toronto Rap-
tors og Vancouver Grizzlies,
sem hvort um sig borgaði yfir
átta milljarða til að fá inngöngu.
Deildin er sú best rekna og
aðrar stórar deildir í Bandaríkj-
unum hafa margoft reynt að fá
Stern til liðs við sig; til dæmis
hefur bandaríska ruðningsdeild-
in, NFL, fjórum sinnum reynt að
semja við hann. Hann er með yf-
ir 400 milljónir í árslaun hjá NBA
sem er álíka og bestu leikmenn-
irnir fá.
Stern stjórnar deildinni af
mikilli festu. Hann var lykilmað-
ur í því að koma á launaþaki,
sem bjargað hefur mörgum lið-
um frá gjaldþroti. Samningarnir
sem hann gerði við leikmenn
hljóðuðu upp á að 53 prósenta
tekna skildu renna í vasa leik-
manna. Þetta hefur skilað því að
nú eru meðallaun í NBA 1,2
milljónir dala. Þegar hann hóf
störf voru meðalárslaunin 325
þúsund. Nú eru samningar við
leikmenn lausir og ljóst að erfitt
verður að viðhalda þessu kerfi.
Liðin standa mun betur að vígi
fjárhagslega og því er krafa leik-
manna að segja skilið við þetta
kerfi því þannig sjá þeir mögu-
leika á að hækka launin enn
frekar.
Annað sem Stern hefur gert er
að koma á ströngu eiturlyfjaeft-
irliti í deildinni. Eitt sinn var það
helsta vandamál deildarinnar
að allir litu á hana sem gróðrar-
stíu saurlífis. Fullyrt var í blaða-
grein, í Los Angeles Times, árið
1982 að 75 prósent leikmanna
deildarinnar neyttu eiturlyfja.
Nú er öldin önnur.
Stern þykir einkar viðkunnan-
legur. Hann þekkir hvern ein-
asta starfsmann deildarinnar
með nafni og þekkir störf hvers
og eins fullkomlega. Hann á það
þó til að láta menn heyra það en
missir þó ekki stjórn á skapi
sínu. Sagt er að hann hafi hringt
til framkvæmdastjóra CfíS-sjón-
varpsstöðvarinnar daglega til
að skamma þá fyrir hve illa hafi
verið staðið að málum í útsend-
ingum frá leikjum. Hann er harð-
ur í samningum og hefur allar
staðreyndir á hreinu. Forstjórar
fyrirtækja bera virðingu fyrir
honum enda sínir hann mikla
hollustu. NBA-deildin hefur ver-
ið þekkt fyrir að kaupa frekar
vörur hjá liðum sem auglýsa hjá
þeim heldur en öðrum þrátt fyr-
ir að tilboðið sé kannski ekki
eins hagkvæmt. Stern er hinn
nútímastjórnandi sem fórnar
ekki langtímamarkmiðum fyrir
skammtímagróða.B
Keilulands-
liðið valið
Landsliðsnefnd Keilusam-
bands íslands hefur tilkynnt ís-
lenska landsliðið sem keppir á
heimsmeistaramótinu sem fram
fer í Reno í Bandaríkjunum í
sumar.
Þessir skipa landsliðið: Ásgeir
Þ. Þórðarson ÍR, Ásgrímur H. Ein-
arsson KFR, Björn G. Sigurðsson
KR, Halldór Ragnar Halldórsson ÍR,
Kristján Sigurjónsson KR og Val-
geir Guðbjartsson KFR. Kristján er
nýliði, enda aðeins 18 ára gam-
all, en hinir eru allir margreyndir
landsliðsmenn. ■
Smáþjóðaleikarnir
Ekki verður
skotið
Smáþjóðaleikarnir verða
haldnir á íslandi í byrjun júní
1997. Júlíus Hafsteins, formaður
Ólympíunefndar íslands, segir
að keppt verði í öllum þeim
greinum sem hingað til hefur
verið keppt í að undanskilinni
skotfimi. Júlíus segir ástæðuna
vera þá að ekki sé hægt að
tryggja að keppnisaðstaða verði
til staðar þegar leikarnir verða.B
Carl gerir
allt vitlaust
Skotkappinn Carl J. Eiríksson
hefur haft mikil áhrif með kæru-
gleði sinni. Svo er komið að þeir
sem taka að sér að starfa í dóm-
stóli íþróttabandalags Reykja-
víkur þreytast fljótt og eiga erfitt
með að starfa vegna fjölda kæru-
mála, sem flest koma frá Carli.
Engin íþróttagrein á líkt því
eins mörg kærumál hjá dóm-
stólnum og skotíþróttin, og er
það allt vegna þessa eina manns,
Carls. J. Eiríkssonar.B