Helgarpósturinn - 03.04.1995, Blaðsíða 9
TOPRIffMiflN U ÐWGUJ R1
UTLOND
g
,Svo ég er komin meö
munk á listann hjá mér en ég
sé ekki aö þaö sé neitt stór-
mál.“
Þetta segir danski hörpuleik-
arinn Eva Henriette Kaldan. Hún
hefur gengist við því að hafa
sængað með tælenskum búdda-
munki sem hefur verið í fréttun-
um að undanförnu fyrir að hafa
verið kvensamari- en góðu hófi
gegnir. Venjulega er búdda-
munkum uppálagt að stunda
skírlífi.
Munkurinn, Pra Yantra Amaro,
er 44 ára. Hann þykir mikill and-
legur leiðtogi og á milljónir fylg-
ismanna víða um heim. Eva,
sem er 33 ára, vill sem minnst
um málið tala en hún hefur sent
bréf til stjórnar andlegs ráðs
Itælenskra búddamunka þar
sem húnhefur gagnrýnt Amaro
harðlega. Hún segist mjög ósátt
við umfjöllun fjölmiðla um mál-
ið.
• f ÝSNIRNAR TÓKU VÖLD
Eva Henriette Kaidan hitti
Amaro' á strikinu í Kaupmanna-
höfn en þar var hann í heim-
sókn. í upphafi var samband
þeirra á andlegum nótum en
smátt og smátt tóku líkamlegar
fýsnir yfirhöndina. Um hríð áttu
hörpuleikarinn og munkurinn í
heitu og lostafullu sambandi.
Áttu þau ástarfundi í musteri
búddatrúarmanna í Dragör.
Samkvæmt bréfinu krupu þau á
kné og báðu guðina um fyrir-
gefningu áður en þau berhátt-
uðu og elskuðust.
ENGINN MUNUR
Eva Henriette Kaldan hefur
Jtælenskra buddamunka þar Eva Henriette Kaldan hefur venjulegur maður.B
verið spurð að því hvort hún
hafi fundið einhvern mun á því
að njóta ásta með munki en
með venjulegum karlmanni.
Hún veltir vöngum og roðnar en
svarar svo: „Nei, það held ég
ekki.“ Að öðru leyti vill hún ekki
tjá sig um málið sem hefur kom-
ið sér afar illa fyrir Amaro og
meira að segja nánast fellt ríkis-
stjórnina í Tælandi. Einhverjir
ráðherrar kunna að þurfa að
segja af sér vegna málsins.
„Málið snýst ekki um kynlíf,
heldur um mannlega breytni,“
segir Eva Henriette Kaldan. „Um
fjölda fólks sem fylgir leiðtoga
sem svo reynist allt annar mað-
ur en hann gaf sig út fyrir að
vera. Hún leggur áherslu á að
það hafi ekki verið neinn dýr-
lingur sem skreið upp í til henn-
ar við háttamál, heldur ofur-
venjulegur maður.l
Norðmenn treysta
EKKI SJÁLFUM SÉR
Norðmenn eru þekktir fyrir annað en
velgengni í Evrópusöngvakeppninni
og er árangur þeirra þar enn hrak-
smánarlegri en íslendinga. Nú hafa
íslendingar sem kunnugt er fengið út-
lending til að semja lag fyrir sig og
Norðmenn hafa gripið til svipaðs
ráðs. Þeir fengu nefnilega þrjá íra til
að sitja í nefndinni sem velja skyldi
lagið sem þeir senda í keppnina. írar
hafa unnið í keppninni sex sinnum og
þykirþví skynsamlegt að leita ráða
hjá þeim.U
rEVO-STIK
ÁRVÍK
ÁRMÚU 1 • REYKJAVÍK • SÍMI 568 7222 • MYNDRITI 568 7295
ÞRÆLSTERK OG
VIÐURKENND LÍM
TIL MARGVÍSLEGRA
NOTA FYRIR
TRÉIÐNAÐ
VlCKY OG BARRY HLAKKA TIL
AÐ EIGNAST BARN.
Barnungir
FORELDRAR
Foreldrar gerast víst
ekki öllu yngri en Barry
Grubb og Vicky Reid sem
búsett eru í Bonnybridge
á Englandi. Þau eiga von
á barni í september
nœstkomandi. Vicky er
aðeins þrettán ára en
Barry er ári eldri. Eitt
kvöldið voru þau orðin
leið á því að kela og
kyssast og ákváðu að
fara ögn lengra, með áð-
urnefndum afleiðingum.
Þau segjast ekki hafa
trúað að þetta gœti gerst
en um jólin varð lát á
því að Vicky hefði blœð-
ingar. Móðir hennar
sendi hana strax til
lœknis sem sagði henni
hvað vœri á seyði. Þetta
var eðlilega nokkurt
áfall en ungmennin hafa
ákveðið að halda barn-
inuM