Helgarpósturinn - 08.06.1995, Síða 19
sund
MEÐ GATI
MIÐJUNNI
Ed Wood
BIóborgin
★★★
Gallinn við Ed Wood er að það
er gat inni í myndinni og inni í
gatinu er söguhetjan, leikin af
Johnny Depp. Maður þarf í raun-
inni að reyna að geta sér til um
hvort hann er bjáni, einhvers
konar annarlegur snillingur —
nú eða þá heilagur maður, svona
eins og Broadway Danny Rose í
svonefndri mynd Woody Allen.
Stundum er ýjað að því að þetta
sé tragísk persóna: hann býr til
verstu myndir í heimi, hann
klæðist kvenmannsfötum og
hann deyr úr alkóhólisma. Sem
leikari hefur Johnny Depp hins
vegar varla karakter til að sýna
þessa eða aðrar hliðar á persón-
unni; hann er svosem nógu sæt-
ur, með undirskálaaugu, smá
hvolpafitu í andlitinu og pínulít-
inn skegghýjung — en, líkt og í
ýmsum fyrri myndum sínum,
verður hann eins og innantómt
hylki þegar hann er andspænis
burðarmeiri leikurum. í þessu
tilfelli Martin Landau sem leikur
Beia Lugosi, sálufélaga Ed Wood,
með innlifuðum grettum og
handapati svo þessi falleraða
hryllingsmyndastjarna fær all-
nokkra reisn mitt í gráthlægilegri
tilfinningasemi sinni.
En kannski var heldur ekki lagt
upp með þeim tilgangi að skoða
sálariíf Ed Wood. Það er fremur
eins og leikstjórinn, Tim Burton,
hafi álitið sig vera að uppgötva
kúlthetju sem er afar passleg fyr-
ir tíma þegar bjánar eins og Forr-
est Gump vekja ómælda aðdáun
(heitir það ekki aumingjadýrk-
un?) og dægurkúltúrinn er eins
og sjoppa sem gnæfir upp í him-
ininn, full af notuðu skrani.
Kannski er hérna ákveðin
þversögn: Þetta er dýr og afar
natnisleg mynd um bjána sem
gerði algjörar skranmyndir fyrir
engan pening og tók aldrei neina
senu tvisvar ef hægt var að kom-
ast hjá því. Allt sem er á útjöðr-
unum — fyrir utan gatið — ber
vott um nær óaðfinnanlegt hand-
verk. Áferðin er augnayndi:
Myndin er í glæsilega tærum
svarthvítum lit, Burton er ein-
staklega fundvís á snjöll sjónar-
horn fyrir myndavélina, tónlistin
ferlega sniðug. Aukapersónurn-
ar sem Wood er látinn draga upp
til að leika í myndunum sínum
eru forkostulegar. Verður þess
þá langt að bíða að við fáum að
sjá helstu verk hans — til dæmis
Glen or Glenda eða Plan 9 From
Outer Spacel
-EGILL HELGAS0N
kynnir
adidas® STREETBALL ‘95
Stærsta 3 á móti 3 mót hingað til, í Laugardalnum þann 10. júní. Þetta verður sannkölluð fjölskylduhátíð,
með karnívalívafi. Fyrir utan hina stórskemmtilegu íþrótt Streetball (götubolta) er boðið uppá mjög
fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa, t.d. leikrit, söngleik, dans, körfubolta á línuskautum, leiki og
þrautir. Allir þátttakendur í STREETBALL fá STREETBALL í Reykjavík-bol og verðlaun eftir árangri,
drengja- og stúlknalið á aldrinum 16-20 ára eiga síðan kost á að vinna sér inn ferð til Barcelona í haust.
Stórtónleikar eru síðan um kvöldið eftir mót. Láttu þig ekki vanta.
Skráning og upplýsingar í síma 587-5287.
Bein útsending á FM
FJOLNIR
VIÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR
SVEIGJANLEIKINN ER FORSENDA ÁRANGURS
I i
STRENGUR hf.
- í stöðugri sókn
Stórhöföa 15, Reykjavík, sími 91 -875000
EKKERT
SÉR-
STÖK
SUÐURBÆJARLAUG
Hafnarfjarðar
★★
Suðurbæjarlaug Hafn-
arfjarðar er eiginlega
hvorki fugl né fiskur. Það
eru aðeins rúm fimm ár
síðan þetta 200 milljóna
króna mannvirki var tekið
í notkun en erekki eins
gott og mörg önnur sem
byggð hafa verið á svip-
uðum tíma. Sundlaugin
sjálf er 25 metrar en mik-
ið klórmagn sker í augun.
Barnalaugin er köld og
rennibrautin lítil og ein-
staklega hægfara. Sól-
baðsaðstaða er lítil en
ágætir pottar við bakk-
ann. Um starfsfólkið verð-
ur seint sagt að það sé
glaðlynt.
Innilaugin er 100 fer-
metrar að stærð, hlý og
vinsæl meðal barnanna
en þeir mættu taka ná-
granna sína í Kópavogi til
fyrirmyndar hvað leiktæki
varðar. Gufubaðið er
mjög gott en greiða þarf
sérstaklega í það þótt
fæstir geri það. Heitt vatn
í gólfi þurrkunaraðstöð-
unnarertil fyrirmyndar.
Vel þokkaleg laug en svo
sem ekkert sérstök.
-pj
Kópavogslaugin
★★★★
Langbesta laugin. Mjög
góð 50 metra laug og frá-
bær aðstaða fyrir börn.
Lélegir búningsklefar.
Laugardalslaugin
★★★
Stærst og mest. Fjöl-
breytnin í fyrirrúmi en
köld barnalaug og slöpp
sundaðstaða.