Helgarpósturinn - 08.06.1995, Page 26

Helgarpósturinn - 08.06.1995, Page 26
Davio Oddsson ræour frænda sinn sem aðstoðarmann AJ! „Það er erfgjfi spilling i kringum ráðningu mina^Éi kem til dæmis mc vmnuna," segjr Kristinn Daviðsson !y íkciííimr segir Kristinn Davíðsson, fyrrum vörubílstjóri REYKJAVÍK, 7. JÚNÍ „Mér dettur ekki í hug að ráðleggja Davíð í stjórnmálunum," segir Krist- inn Davíðsson, fyrrum vörubílstjóri og náfrændi Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra, sem nýverið var ráð- inn sem aðstoðarmaður í ráðuneyt- inu. „Ég á aðallega að vera í kaffinu." Kristinn rak um tíma eigin vörubíl en missti hann á uppboð. Hann seg- ist hafa þekkt Davíð frá því hann var gutti. „Ég kom honum til dæmis upp á bragðið með að drekka kaffi,“ segir Kristinn. „Það er enginn spilling eða klíka í kringum þesa ráðningu," segir Davíð Oddsson. „ Ég held að allir þeir sem hafa smakkað kaffið hérna í stjórnar- ráðinu hljóti að vera sammála mér um nauðsyn þess að endurskoða þau mál. Það að Kristinn er frændi minn kemur þessu máli ekki við. Hann er einfaldlega besti uppáhell- ari sem ég þekki.“ Ungur maður sofnaði í Heiðmörk þegar björgunarsveitaæfing stóð þar yfir „Fyrír utan þetta atvik gekk æfingin vel,“ segir Sveinn H. Lárusson æfingastjórí. Ljósmyndari Gulu pressunnar tók þessa mynd þegar björgunarsveitamenn fluttu á spítala það sem þeir héldu að væri dúkka en var í raun Finn- ur Pálsson Iðnskólanemi, sem hafði sofnað í biíð- viðrinu í Heiðmörk á þriðjudaginn. REYKJAVlK, 7. JÚNl „Það tóku þrjú hundruð manns þátt í þessari æf- ingu, tuttugu og sjö spor- hundar, að ógleymdum óteljandi tækjum og tólum. í öllum þessum hasar sá- um við yfir þetta eina at- riði. Ég skil því ekki hvers vegna á að gera eitthvert stórmál úr þessu," segir Sveinn H. Lárusson björg- unarsveitarmaður, en hann stjórnaði stórri æf- ingu á þriðjudaginn þar sem sett var á svið flugslys í Heiðmörk. Atvikið sem Sveinn vísar til gerðist þegar Finnur Pálsson, 19 ára Iðnskóla- nemi, sem hafði sofnað í sólinni í Heiðmörk, var fluttur á spítala og skorinn upp eins og lungun í hon- um hefðu fallið saman og hann væri með opið mjaðmagrindarbrot. „Fólk verður að átta sig á að björgunarsveitamenn- irnir þurftu að flytja þrjú- hundruð og fimmtán brúð- ur á sjúkrahús og gátu því ekki skoðað þær allar gaumgæfilega áður. Auk þess má benda á að þessar brúður eru hreint ótrúlega vel gerðar og mjög Iíkar venjulegu fólki,“ segir Sveinn. „Við berum enga sök á þessu máli,“ segir Viðar Gylfason, læknir á Borgar- spítalanum. „Manninum var einfaldlega trillað inn á skurðstofu og okkur sagt hvað væri að honum. Þess vegan skárum við hann.“ Líðan Finns er eftir atvik- um góð og hann er ekki í lífshættu. „Hann sagði við mig þegar hann vaknaði af deyfingunni að hann ætl- aði aldrei að sofna upp í Heiðmörk aftur," segir Birgitta Nikulásdóttir, móðir Finns. Kraftaverk á hvítasunnu „Ekki ósvipað og láta hella yfir sig hálfvolgu cappuchino," sagði að Friðrik Sophusson fjármálaráðherra á ítölsku eftir atburðinn. BESSASTAÐAHREPPUR, 4. MAÍ „Acch uuuj iilljh trraac- hjst,“ var það eina sem Davíð Oddsson forsætis- ráðherra gat sagt eftir að hann og aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar fengu yf- ir sig heilagan anda á tröppunum fyrir framan Bessastaði á hvítasunnu- dag. Því miður hefur Gula pressan enn ekki getað fengið þessa setningu þýdda þar sem sérfræðing- ar hafa enn ekki áttað sig á hvaða tungumál þetta er. Sumir þeirra efast meira að segja um að þetta tungu- mál sé talað í dag, ef það hefur þá einhvern tímann verið til. Eini ráðherrann sem tal- aði tungumál, sem einhver viðstaddra skildi, var Frið- rik Sophusson fjármálaráð- herra. Hann lýsti reynslu sinni sem svo, að það hefði verið eins og yfir hann hefði verið steypt fimmtán lítrum af hálfvolgu cappuc- hino. Meira vildi hann ekki um málið segja. Eftir atburðinn hurfu ráðherrarnir hver til síns heima, enda voru öll sam- skipti þeirra á meðal til lít- ils. Þrátt fyrir þessa skyndi- legu tungumálaþekkingu hvers og eins virtust þeir eiga jafn erfitt og aðrir með að skilja hvern annan. En hvaða áhríf hefur þetta á stjómarsamstarfið? „Það er mjög erfitt að dæma um það á þessari stundu,“ segir Geir H. Ha- arde, formaður þingflokks sjálfstæðismanna. „Ég hef reynt að ræða við formann flokksins en Iítið getað átt- að mig á hvað hann vill. Þó finnst mér á svipnum á honum að hann vilji ekki meiri vandræði að svo stöddu en þegar eru orð- in.“ Heilagur andi steyptist yfir ríkisstjórnina þar sem hún stillti sér upp fyrir Ijósmyndara á tröppunum fyrir framan Bessastaði. í gær mátti enn sjá heil- agan anda steypast ofan í höfuðið á Davíð Oddssyni þar sem sat og drakk kaffi sem aðstoðarmaður hans hafði fært honum. Kona sem fékk sjónina Engar atvinnuleysis- bætur fyrir hundinn „ Verkefnislaus blindrahundur er alveg eins miður sín og atvinnulaus múrari," segir Þuríður Kjartansdóttir húsmóðir, sem fékk sjónina nýverið eftir velheppnaða aðgerð á Borgar- spítalanum. KÓPAVOGUR, 7. JÚNl. „Þetta er algjör óvirðing við allt sem hann hefur verið að gera og það sem hann hefur staðið fyrir,“ segir Þuríður Kjartansdótt- ir, húsmóðir í Kópavogi, eftir að henni hafði verið neitað um atvinnuleysis- bætur fyrir hundinn sinn Klett, sem er þjálfaður blindrahundur og aðstoð- aði hana allt þar til hún fékk sjónina eftir vel- heppnaða aðgerð á Borg- arspítalanum. „Ég fór um daginn í at- hvarf atvinnuleysingja í kirkjunni okkar um daginn og leit yfir söfnuðinn," seg- ir Þuríður. „Ég sá ekki einn einasta sem átti fremur skilið að fá bætur en hann Klettur minn.“ „Ég finn til með Kletti og Þuríði en því miður er fátt sem ég get gert,“ segir Páll Pétursson. „Að vísu hefur ------------------------------------1------------ m'y'- §£-£• íTT i - v _. vv Þuríður Kjartansdóttir og hundur Klettur. „Hann hang- ir mest heima enda á hann hvorki fyrir skemmtunum né endurmenntun," segir Þuríður um líðan Kletts. sjálfstæðum atvinnurek- endum, sem ekki hafa greitt í verkfallssjóði, verið gert kleift að fá atvinnu- leysisbætur en hvorki lög né reglugerðir ná til þess starfs sem Klettur stund- aði.“ „Þetta er píp,“ voru við- brögð Þuríðar við ummæl- um Páls. „Hvað var hann annað en leiðsögumaður? Hvað var hann annað en gangbrautarvörður? Hvað vann hann annað en heimahjúkrun? Miðað við þessi ummæli Páls ætla ég að sækja um þrefaldar bætur handa honum Kletti mínum." Afrek á stúdentsprófi rálÉmílí SELFOSS, 7. JÚNl „Það er skiljanlegt að margir undrist yfir þess- um árangri. En þeim sem þekkja til Hjalta kemur þetta ekkert á óvart,“ seg- ir Ingvar Daníelsson, kenn- ari við Fjölbrautaskólann á Selfossi, um þann árang- ur Hjalta Erlingssonar, nemanda við skólann, en hann fékk núll komma núll í einkunn í öllum prófum í vor. „Hann hefur setið stærðfræðitíma hjá mér undanfarin átta ár og um r1 JJ að gefa honum einn eða tvo til að brjóta hann ekki niður. En svörin hjá hon- um voru einfaldlega svo vitlaus að ég gat það ekki af faglegum ástæðum." „Auðvitað er ég leiður yfir þessu. Ég var búinn að kaupa mér húfu og allt,“ segir Hjalti. „En mamma segir alltaf að það þýði ekki að leggja árar í bát svo ég ætla að reyna aftur í haust.“ „Það verður gaman að fá Hjalta aftur,“ segir Ing- „Ég vissi að mér hafði ekki gengið neitt sérstak- lega vel en ég átti alls ekki von á þessari út- reið," segir Hjalti Erlings- son sem hefur stundað nám við Fjölbrautaskól- ann á Selfossi undanfarin átta ár. var. „Hann er afreksmaður á sínu sviði og við erum stolt af honum. Við höfum sjaldan haft mikla afburð- arnámsmenn hér við skól- ann en það slær enginn honum Hjalta okkar við.“

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.