Helgarpósturinn - 06.07.1995, Blaðsíða 6
Þaö er líðinn aldarfjórðungur frá því Andrew Lloyd Webber og Tim Rice heilluðu heimsbyggðina með rokk-
óperu sinni Jesús Kristur Súperstar. í tilefni afmælisins eru sviðssetningar af verkinu nú sýndar víða um heim.
Hér á landi verður söngleikurinn frumsýndur í Borgarleikhúsinu 14. júlí.
„Meginforsendan fyrir því að
hægt er að ráðast í þetta verk
er að hafa söngraddir sem
hægt er að treysta. Að því leyt-
inu til er verkið skrifað eins og
hver önnur ópera,“ segir Páll
Baldvinsson, leikstjóri Súperst-
ar í Borgarleikhúsinu.
„Hvert einasta hlutverk er
skrifað fyrir ákveðið raddsvið
og það er nánast ómögulegt að
breyta því nema endurupp-
skrifa allt verkið. Webber notar
klassíska menntun sína til þess
að skrifa verk sem er meira en
venjulegur söngleikur, inn í
það blandast mun fleiri teg-
undir af tónlist. Að því leyti
unnu þeir félagar ákveðið bylt-
ingarstarf á söngleikjaforminu.
Söngleikir höfðu alveg fram-
undir 1970 verið yfirráðasvæði
fólks sem var fætt fyrir stríð og
það er ekki fyrr en þessi kyn-
slóð manna kemur fram sem
samin eru söngverk fyrir þær
kynslóðir sem fæddar voru eft-
ir stríð og aldar upp við allt
aðra tónlistarhefð.
Sá tími sem þessu verki hef-
ur verið valinn í sviðsetningu
er tíminn frá því að þessir at-
burðir gerðust til okkar daga.
Sumt í henni er með mjög sí-
gildum svip og vísar beint til
hins forna sögutíma meðan
annað gæti allt eins verið að
gerast á Balkanskaganum í
dag.
Eg held að hver sá sem reyn-
ir að túlka píslarsöguna hvar
sem hann er staddur reyni að
gera það út frá forsendum sem
hann telur vera algildar. Hann
kemst ekki hjá því. Þess vegna
er þessi saga eilíf af því að hún
á erindi og hefur boðskap að
færa.“
•f
Pétur örn Guðmundsson í hlutverki Krists í hópi lærisveina.
Guðmundur Pétursson, fremsti
blúsgítarleikari landsins.
EIIMS OG AÐ FÁ
DRAUIVa
UPPFYLLTAIU
„Að taka þátt í þessu verki,
ég tala ekki um að fá þetta
hlutverk, er eins og að fá
draum uppfylltan," segir Stef-
án Hilmarsson sem fer með
hlutverk Júdasar. „Frá því ég
man eftir mér hefur tónlist
verksins verið í uppá-
haldi hjá mér og verið
mikið spiluð á mínu
heimili, svipað og tón-
list Bítlanna. Það er
upprunalega uppfærsl-
an sem ég hef mest dá-
læti á með Murray Head
og lan Gillan, og hún
varð þess valdandi
seinna meir að ég leit-
aði uppi plötur Murray
Head sem ég hef tekið
miklu ástfóstri við.“
Stefán segir verkið
margbúið að sanna sig
og óhætt sé að telja
það klassískt. Hann
segist hafa haft gaman
af kvikmyndaútfærslu
leikstjórans Norman Jewison:
„En hrifning mín er mest á
upprunalegu sviðsuppsetning-
unni tónlistarlega og þótt hlut-
verk Júdasar hafi verið sungið
þar mjög vel þá er ég alltaf
Murray-maður. Og kannski
varð ég fyrir örlitlum von-
brigðum með kvikmyndina
vegna þess að mér fannst hún
Tónlistarstjórn er
í höndum Jóns ólafssonar'
svo langt frá sviðsverkinu, en
það stafaði líklega af því að ég
drakk tónlistina úr þeirri upp-
færslu með móðurmjólkinni, ef
svo má segja."
Þegar Stefán er spurður
hvort hlutverk Júdasar reyni á
hann sem söngvara segir
hann: „Það er erfitt, nokkuð
um öskur og miklar tilfinningar
en um leið mjög skemmtilegt.
Ég þarf að gæða persónuna
mannlegum breyskleika og
vona að það takist, með að-
stoð leikstjóra. Persónan Júd-
as er breysk, allt að því buguð
og harmi siegin á köflum. Það
er ekki mikil gleði í þessum ka-
rakter, enda óhætt að segja að
hann hafi verið ógæfumaður af
guðs náð.“
EKKI AUDVELT AÐ
GAIUGA I ÞETTA
HLUTVERK
Pétur Örn Guðmundsson syng-
ur hlutverk þekktustu persónu
mannkynssögunnar, Jesú
Krists, en faðir hans, Guðmund-
ur Benediktsson, lék einmitt
T