Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 14.03.1996, Qupperneq 8

Helgarpósturinn - 14.03.1996, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR14. MARS1996 j nýbyggöu braggahverfi á Seltjarnarnesi er nú verið aö taka upp dýrustu kvikmynd sem íslendingar hafa gert, „Djöflaeyjuna". Eiríkur Bergmarm Einarsson átti orðastað við leikstjórann Friðrik Þór Friðriksson og handritshöfundinn Einar Kárason um Thulekampinn, utangarðsfólk, íslenska kvikmyndagerð og erlend áhrif. Jafnframt bar á góma að Einar er af sumum talinn hafa sömu hæfileika og Halldór Laxness, að geta gert grín að íslendingseðlinu: smáborgaraskapnum og hræsninni í samfélaginu... „Ekki leéeja nafn Guðs við hégóma“ - skýtur Friðrik Þór sposkur inn í samtalið eftir að Einar segir vandræðalegur að það sé óþarfi að blanda Halldóri í málið. Hér sést örlítill hluti braggahverfisins til- búna á Seltjarnarnesi. Það gæti tæpast verið raunverulegra, meira að segja blokkin fyrir miðju er hluti af leik- mynd sem reist hefur verið á undanförnum tólf mánuðum. Tökur standa nú yfir á kvik- myndinni Djöflaeyjunni, sem er dýrasta mynd sem framleidd hefur verið á íslandi. Handritið skrifaði Einar Kára- son upp úr metsölubókum sín- um, Þar sem Djöflaeyjan rís og Gulleyjunni. Leikstjóri myndar- innar er Friðrik Þór Friðriks- son. Verkið segir sögu fjöl- skyldu sem býr í bragga í Thulekampi í Reykjavík og er henni fylgt eftir í gleði og sorg. Einvalalið leikara leggur mynd- inni lið. Gömlu hjónin leika þau Gísli Halldórsson og Sigurveig Jónsdóttir. Með hlutverk dótt- ursona hennar fara Baitasar Kormákur í hlutverki töffarans Badda og Sveinn Þórir Geirs- son sem leikur Danna. Systur Jreirra, Dollýju, leikur Halldóra Geirharðsdóttir. Aðrir leikarar eru þau Magnús Ólafsson, Ing- var Sigurðsson, Sigurður Sig- uijónsson, Óskar Jónasson, Guðrún Gísladóttir og Pálína Jónsdóttir. Stefnt er að því að tökum á myndinni ljúki 1. maí og hún verði frumsýnd í kvik- myndahúsum 21. september. Blaðamaður Helgarpóstsins hitti þá félaga, Friðrik og Einar, í skrifstofuhúsnæði íslensku kvikmyndasamsteypunnar og bað Einar að rifja upp fyrir þjóðinni út á hvað sagan geng- ur: „Myndin byggist á bókunum Þar sem Djöflaeyjan rís og Gull- eyjunni. Sagan gerist á síðari hluta sjötta áratugarins og fyrri hluta þess sjöunda, og fer að mestu leyti fram í braggahverf- inu Thulekampi. í miðju hverf- inu, í stærsta húsinu, býr fjöl- skylda Karólínu spákonu og Tomma. Þau eru aðalpersónur myndarinnar ásamt þremur barnabörnum Karólínu. Baddi, sem er að nokkru alinn upp hjá móður sinni í Ameríku, kemur heim til íslands með nýja tíma með sér — keyrir um á amer- ískum kagga og vitnar stöðugt í Elvis. Yngri bróðir hans, Danni, fellur í skuggann. Og svo er það systir þeirra, sem heitir Dollý. Hugmyndin að þessari sögu kviknaði þegar ég heyrði sögur af þeim fræga manni Bóbó á holtinu, sem er sumpartinn fyr- irmynd Badda. Ég þekkti þó ekkert til Bóbós fyrr en ég var búinn að skrifa söguna, þannig að þetta er ekki saga hans. En þeir sem urðu þeirrar gæfu að- njótandi á þessum árum að fara til fyrirheitna landsins Ameríku — sem í raun var í öðru sólkerfi miðað við sveitasamfélagið ís- land — þóttu náttúrlega nokk- uð merkilegir þegar þeir komu helm aftur. Islenskt nútímasam- félag var í raun að verða til á þessum árum og í braggahverf- unum bjuggu mörg þúsund manns sem litið var niður á. Og mig langaði til að skrifa um fólk í jaðri samfélagsins." Þúsundir manna bjuggu í heilsuspillandi bröggum. Breytist sagan mikið frá bókum til handrits? „Við vildum hafa dálítið aðrar áherslur í myndinni," segir leik- stjórinn Friðrik Þór, „en þar sem Einar skrifar handritið verður það mjög trútt sög- unni.“ „Þótt ég skrifi handritið er frásagnarhátturinn og áferð- in vitaskuld ákvörðun sem við tökum saman. Ég fer að sjálf- sögðu eftir hugmyndum leik- stjórans um hvernig mynd hann vill búa til,“ segir Einar. „Það má segja að sagan í bók- unum sé nokkuð sjónræn," seg- ir Friðrik. „Maður sér bragga- hverfið fyrir sér og Áraa Páli Jóhannessyni, sem byggði hverfið fyrir myndina, hefur tekist mjög vel upp. Til dæmis fauk ekki. ein einasta plata í óveðrinu um daginn, sem sýnir hversu vel þetta er byggt. Fólk sem hefur búið í braggahverf- unum upplifir það eins og flash- back að labba þarna í gegn. Það ætti í raun að viðhalda þessu hverfi og gera það að einskonar safni, því þessi hverfi hafa öll verið rifin og við eigum engar minjar um þau. Fólki hefur fundist þetta vera niðurlæging- artímabil í sögu þjóðarinnar og viljað gleyma þessum þætti í byggingarsögunni. Borgaryfir- völd kepptust við að útrýma þessum bröggum, enda heilsu- spillandi húsnæði. Þess vegna varðveittist ekkert og mér finnst að komandi kynslóðir eigi að vita að þúsundir for- feðra þeirra bjuggu í svona hús- um. Sökum þessa tilbúna braggahverfis verður myndin mjög dýr. Til dæmis höfum við þurft að byggja suma bílana frá grunni og það er alltaf mun dýr- ara að gera mynd sem gerist á öðru tímabili. Bygging leik- myndarinnar hefur tekið heilt ár og á endanum verður þetta dýrasta mynd sem gerð hefur verið á íslandi,“ segir Friðrik. Kvikmyndasjóður neitaði að styrkja verkefnið í upphafi Hvernig kom það til að þið fóruð að breyta þessum sög- um í kvikmynd? „Það gerðist nú mjög snemma. Ég man að þegar við gerðum saman handritió að Skyttunum árið 1984 þá vorum við að tala um að gera þetta að kvikmynd," segir Friðrik. Og Einar bætir við: „Ef ég man rétt þá kviknaði hugmyndin nokkru fyrr. Þegar ég bjó í Kaupmanna- höfn kom Friðrik þangað til að fullgera Rokk í Reykjavík. Þá hittumst við og Friðrik fór að segja mér að hann vildi gera kvikmynd um utangarðsmenn sem brytust inn í skotfæra- verslun og úr því varð Skytturn- ar. Þá sagði ég honum að ég væri að vinna að skáldsögu um fólk í útjaðri samfélagsins; um spákellingu og ameríkaníserað- an töffara. Og við áttuðum okk- ur á að við vorum á svipaðri bylgjulengd og varð það að samkomulagi að hann myndi einhvern tímann kvikmynda skáldsöguna, en á móti myndi ég leggja honum lið við hand- ritsgerð Skyttanna. Ég skrifaði fyrsta handritið að Djöflaeyj- unni 1990, ári eftir að ég kláraði síðustu bókina í trílógíunni, sem hlaut nafnið Fyrirheitna landið. Myndin byggist þó ekki á þeirri bók. Ég sendi svo allar bækurnar þrjár, sem búið var að gefa út í Stórbók hjá Máli og menningu, inn til Kvikmynda- sjóðs íslands, en fékk ekki styrk til handritsgerðar." „Við feng- um svo styrk frá Menningar- sjóði,“ bætir Friðrik við. „Mynd- in er að mestu framleidd fyrir erlent fé, en við sendum svo handritið til Kvikmyndasjóðs, sem styrkti okkur um fimmtán prósent af framleiðslukostnað- inum. Til að eignast einhvern hlut í þessari mynd þurfum við hins vegar að leggja alla okkar vinnu, tæki og tól í hana. Og til að dæmið gangi upp fjárhags- lega þurfum við 70 þúsund áhorfendur, þannig að þetta er talsverð áhætta. Það hefur tek- ið mörg ár að fjármagna þessa mynd og menn höfðu almennt ekki trú á að við gætum það.“ Ekki eimreið fyrir hlass af mórölskum fordómum Er einhver boðskapur með þessu verki; ákveðin saga sem þið eruð að reyna að koma til skila? „Friður á jörð,“ svarar Friðrik að bragði með glott á vör. „Þeg- ar ég byrjaði að skrifa þessa sögu langaði mig til að fjalla einu sinni um þetta tímabil í sögu þjóðarinnar án þess að vera í hlutverki hins móralska mannabústöðum sem enginn verkamaður hafði efni á að kaupa. Það voru ekkert nema heildsalar og ríkis- starfsmenn sem bjuggu þar. Djöflaeyjan er þannig næsta stig fýrir neðan það í þjóðfélaginu.“ Einar Kárason: „Þegar ég byrjaði að skrifa þessa sögu langaði mig til að fjalla einu sinni um þetta tímabil í sögu þjóðarinnar án þess að vera í hlutverki hins móralska predikara. Ég hafði áhuga á að leyfa þessu fólki að lifa sem söguefni á eigin forsendum." Félagarnir Ingvar Sigurðsson og í Baltasar Kormák- ' ur fara með stór hlutverk í Djöfla- eyjunni, sér í lagi sá síðarnefndi, sem leikur erki- töffarann Badda. predikara,“ segir Einar. „Allt sem snerti svona fólk hafði ver- ið sjálfvirkt tilefni til að vara við hvert íslenskt samfélag væri að fara: til andskotans. Hvort sem það var nú ameríkaníseringin, þar sem fólk var að vinna á Vell- inum og reyndi að smygla sem mestu þaðan út. Það horfði á kanasjónvarpið. Konur giftust Ameríkönum og fluttust þang- að — sem verður reyndar nokkuð afdrifaríkt í þessari sögu. Og það þótti mikil niður- læging fyrir nýsjálfstæða þjóð að fólk skyldi búa í herskálum. Þannig að allt sem þessu við- kom var tilefni til að vara við. Njörður P. Njarðvík skrifaði grein í Morgunblaðið um daginn þar sem hann spyr: Eruð þið sú þjóð sem mig hefur dreymt um? Eg held að einhver þannig hrokaspurning sé inntakið í boðskap réttsýnna manna sem litu yfir þann lýð og það líferni og hugsunargang sem þreifst á þessum stöðum. Ég hafði því áhuga á að leyfa þessu fólki að lifa sem söguefni á eigin for- sendum og nota það ekki eins og einhverja eimreið til að draga allt mitt hlass af mórölsk- um fordómum. í mínum augum var þetta fólk spennandi og skemmtilegt." Draga augað í pung og horfa glottandi yfir sviöið Margir hafa sagt að þú, Einar, hafir sömu hœfileika og Halldór Laxness, að geta gert grín að íslendingseðlinu eins og það birtist: smáborg- araskapnum og hrœsninni í samfélaginu. Ertu með þessu verki að deila á smáborgara- skap og hrœsni? „Það er nú óþarfi að blanda Halklóri Laxness inn í þetta,“ segir Einar, og Friðrik skýtur sposkur inn í: „Ekki leggja nafn Guðs við hégóma.“ „Að mínu mati er þetta aðeins klassískt form góðrar frásagnarlistar, með örlítilli írónískri fjarlægð, eins og höfundar íslendinga- sagnanna gerðu. Ef menn eru svo alvarlegir að þeir missa sjónar á því sem er fyndið og skemmtilegt í samfélaginu þá eru þeir á villigötum. Eg er nú ekkert sérstaklega að sýna fram á einhverja hræsni í samfélag- inu heldur leyfi ég henni að vera bara á sinni hillu og grass- era þar sem henni sýnist. Ég nenni ekki að fara að gera hana að einhverju málefni sem ég væri að blanda mér inn í,“ segir Einar. Myndin getur virkað sem skopvinkill á samfélagið Þú virðist nú hafa fengist við þetta sama þema áður, Friðrik. Til dœmis taka Bíó- dagar á þessari skyndilegu opnun samfélagsins þegar kanamenningin flœðir yfir landið og átökin harðna milli Ameríku- og Sovétsinna. „Þessar myndir fjalla að nokkru leyti um sama tímabil í sögu þjóðarinnar, en Bíódagar eru mun persónulegri mynd, sem fjallar um upplifanir mínar og æskuminningar. Ég er alinn upp í verkamannabústöðum sem enginn verkamaður hafði efni á að kaupa. Það voru ekk- ert nema heildsalar og ríkis- starfsmenn sem bjuggu í þess- um verkamannabústöðum þeg- ar ég var að alast upp. Djöfla- eyjan er þannig næsta stig fyrir neðan það í þjóðfélaginu. Bíó- dagar er meiri kellingamynd, því hún fleytir kellingar á því sem er að gerast í samfélaginu. Djöflaeyjan tekur hins vegar dýpra á þessum málum. Það skemmtilegasta er að fólk virð- ist ekki þurfa að hafa neinn sér- stakan snertiflöt við þennan tíma til að njóta hennar. Að minnsta kosti las fólk úr öllum stigum þjóðfélagsins þessar bækur og hafði gaman af. En hver maður verður að sjá þetta með eigin augum. Einnig er þó hægt að líta alvarlega á þetta, en það er algerlega undir áhorf- andanum komið. í myndinni reynum við fyrst og fremst að ná andrúmsloftinu í sögunni og skapa það andrúmsloft sem var á þeim tíma. Fólk nálgast hins vegar svona sögu á sínum eigin forsendum og les það úr henni sem því sýnist. Til dæmis sáu Ameríkanar einhvers konar pólitískan vinkil út úr Bíódög- um; að myndin væri svona anti- amerícan, sem ég hafði ekki gert mér grein fyrir. Þannig opna kvikmyndir möguleika fyrir fólk til að skilja myndirnar í samræmi við bakgrunn sinn. Til dæmis náðu Púertó-Ríkanar Bíódögum miklu betur og hlógu allan tímann, því þeir hafa einnig ameríska herstöð. Ameríkanar hafa nú mikinn móral yfir hvað Ameríka og am- erísk menning hafa gert öðrum menningarheimum og allir þar- lendir háskólamenn eru með einhverjar afsakanir um það. Hins vegar hefur ameríska menningarinnrásin verið mjög góð fyrir íslenska menningu. Ef það hefði ekki gerst væri hérna álíka mikil djass- og rokkmenn- ing og í Færeyjum. Og líklegast hefði hún komið gegnum Dan- mörku. Til dæmis gerðust hlut- irnir miklu seinna í Danmörku en hér. Þegar Rokk í Reykjavík var sýnd þar skildu menn ekk- ert í hversu framarlega rokkið var á íslandi,“ segir Friðrik. „Við megum þó ekki gleyma öll- um þeim slæmu áhrifum sem amerísk menning og herstöðin hafa haft á íslandi," skýtur Ein- ar inn í og hneykslast sposkur á svip yfir körfuboltaæðinu á Suðurnesjum, sem hann segir mjög svo óþjóðlega íþrótt. „Það sem ég er að segja er að herstöðin er svo mikill hvati á allt menningarlíf í landinu. Hún er uppspretta fyrir frjótt menn- ingarlíf, því hún er svo sýnileg, og auðvelt er að spinna út frá áhrifum hennar. Einhvern tím- ann var ég spurður í útvarps- pviðtali í Danmörku af hverju rokkið væri svona sterkt á Is- landi. Ég sagði að það væri vegna herstöðvarinnar og benti þeim á að skynsamleg- asta leiðin fyrir hin Norður- löndin til að komast á blað í rokkheiminum væri að koma skipulega upp svipuðum her- stöðvum. Þessi yfirlýsing gekk að vísu mjög illa í Danina. Það sama á við um kvikmyndagerð- ina: Við hirðum það besta úr amerískri kvikmyndagerð og flytjum myndmálið yfir á ís- lenskan veruleika.“

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.