Helgarpósturinn - 14.03.1996, Síða 10

Helgarpósturinn - 14.03.1996, Síða 10
FIMMTUDAGUR14. MARS1996 HELGARPÓSTURINN Útgefandi: Miðill hf. FrEunkvæmdastjóri: Þorbjörn Tjörvi Stefánsson Ritstjóri: Stefán Hrafn Hagalín Ritstjórnarfulltrúi: Guðrún Kristjánsdóttir Setning og umbrot: Helgarpósturinn Filmuvinnsla og prentun: Prentsmiðjan Oddi hf. Sukkað í íþróttum Otæpileg áfengisneysia er einn af uggvænlegri fylgifiskum íþróttaiðk- unar og hefur svo verið um langt skeið. Þetta er staðreynd, hvað sem því líður, að ætla mætti að íþróttafólk hefði hópa ríkasta ástæðu til að halda sig fjarri flöskunni. Áfengi er þannig óspart notað til að þjappa liðum saman á erfiðum stundum og ná upp baráttuandanum — og eins til að fagna sætum sigrum eða drekkja sárum vonbrigðum. Þetta veit hvert mannsbarn sem eitthvað þekkir til í íþróttaheiminum. * \ fengisneyslan er afturámóti nokkuð mismunandi milli íþrótta- /Agreina og samkvæmt rannsóknum virðast boltamenn vera stórtæk- ari en til dæmis frjálsíþróttamenn, sundfólk og hlauparar. Það þarf í öllu falli ekki ýkja séðan rannsóknarblaðamann til að uppgötva, að áfengisneyslan loðir jafnt við hágæða handknattleiksmenn sem fjórðu deiidar knattspyrnumenn. Það skal tekið fram, að íþróttamenn líkjast sjómönnum að því leyti til, að þeir fá sér sjaldnar í glas en margir aðrir og þá gjarnan eftir langar og strangar tarnir; fara þá tíðast um í hópum og eru áberandi og hávaðasamir. Vafasamt er að draga samasemmerki milli þessa mynsturs og ofdrykkju viðkomandi hópa. Hinsvegar er greinilegt af rannsóknum, að sá áróður að iðkun íþrótta komi í veg fyrir neyslu vímuefna — áróður sem oftast er hafður uppi af forystumönnum íþróttahreyfingarinnar í tengslum við þéttriðið kröfunet til að góma í fjárveitingar — er gjörsamlega falskur. Rann- sóknir þær sem hér er vitnað til gerði Þórólfur Þórlindsson prófessor og þar kemur glögglega fram, að lítill munur er á áfengisdrykkju þeirra íslensku ungmenna sem stunda íþróttir og þeirra sem sporlatari eru. „Ég tel að það þyrfti að leggja meiri áherslu á að íslenskir íþróttamenn neyti ekki áfengis, í fyrsta lagi til þess að þeir nái betri árangri og í öðru lagi samræmist áfengisneysla ekki hugsjónum íþróttanna," segir Þór- ólfur og fellir þannig þungan dóm yfir íþróttahreyfingunni. * Iumfjöllun Helgarpóstsins um íþróttir og áfengisneyslu í dag er ásamt Þórólfi rætt við Þórarin Tyrfingsson, yfirlækni SÁÁ. Hann bendir á að vitaskuld sé það lítið annað en goðsögn, að þeir sem stundi íþróttir eigi síður í vandræðum með áfengi, þráttfyrir að lítið sé um að keppnis- menn á toppi ferils síns leiti sér hjáipar vegna óhófsdrykkju. Þeir koma einfaldlega ekki til meðferðar fyrren í ógöngur er komið. Blaðið ræddi ennfremur við nokkra af fremstu íþróttamönnum þjóð- arinnar í dag eða áðurfyrr, sem allir eiga það sameiginlegt að hafa kynnst áfengisneyslu koilega sinna náið. Að einum undanskildum hafa þeir allir leitað sér hjálpar vegna ofneyslu. Veldur þar margt, en vafa- laust einkum álag frá keppninni sjálfri og þrýstingur frá félögum í góð- um og samstilltum hópi. Flestir sem blaðið ræddi við vegna málsins voru sammála um að íþróttahreyfingin þyrfti að taka sig á hvað varðar hugarfar gagnvart áfengisneyslu íþróttamanna; sérstaklega þarfnaðist unga fólkið fræðslu. * Akveðið hlutfall af þjóðinni ræður ekki við áfengisneyslu sína og áfengissýki fer ekki í manngreinarálit. „Það þýðir ekkert að setja menn í bindindi og síðan ekki söguna meir. Forvarnarstarf innan íþróttahreyfingarinnar verður líka að vera markvissara en það hefur hingað til verið. Það er ekki nóg að segja að gott sé að fara í íþróttir því þá verði maður góður og heilbrigður,“ segir Hermann Gunnarsson, en hann var einn af landsliðsmönnum okkar í íþróttum um langt árabil og hallaði sér um of að flöskunni. Hermann bendir í máli sínu á grimmilega harða samkeppni sem hefj- ist alltof snemma og veltir fyrir sér örlögum þeirra fjölmörgu barna, sem ekki „fá að vera með vegna þess að þau eru ekki nógu góð“. Að sjálfsögðu bera þau harm sinn í hljóði og margir lenda jafnvel inni á braut vímuefna því enginn kemur þessu fólki til hjálpar, „...síst af öllu íþróttahreyfingin“, segir Hermann og bætir við: „Það þarf að endur- skipuleggja starfsemi íþróttafélaganna til að hægt sé að segja að heil- brigð sál íhraustum líkama endurspegli starf íþróttahreyfingarinnar.“ Þetta er hörð gagnrýni frá manni sem gjörþekkir til í íþrótta- heiminum. Stefán Hrafn Hagalín Helgarpósturinn Borgartúni 27, 105 Reykjavík Sími: 552-2211 Bréfasími: 552-2311 Netfang: hp@centrum.is Bein númer: Ritstjórn: 552-4666, símbréf: 552-2311, fréttaskotið: 552-1900, tæknideild: 552-4777, auglýsingadeild: 552-4888, símbréf: 552-2241, dreifing: 552-4999. Áskrift kostar kr. 800 á mánuði efgreitt er með greiðslukorti, en annars kr. 900. Báknin burt! Pátt er nú frekar rætt um manna í milli en forsetakjör og biskupsmál, og taka þær umræður allar mikinn tíma frá þarfari efnum. En til er ráð til þess, að þessum umræðum ljúki. Hún er að leggja niður forsetaembættið og skilja að ríki og kirkju. Ég ætla hér að reifa nokkur helstu rökin fyrir því að flytja þessi tvö bákn burt af opinberum vettvangi. Leggjum niður forsetaembættið Forsetaembættið var stofn- að árið 1944 með því einfalda bragði að setja alls staðar í stjórnarskrá landsins orðið „forseti", þar sem áður hafði staðið „konungur". En slíkt embætti á illa við í landi, þar sem hugsjónin um jafnan rétt allra manna er rík. Og það er í senn kostnaðarsamt og óþarft, auk Jress sem margvíslegur hé- gómi, tildur og prjál þrífast í kringum það. Forseti Alþingis gæti sem hægast gegnt þeim skyldum, sem þjóðhöfðingi íslands hef- ur, sem er að veita fólki viðtöl, taka á móti erlendum gestum og fara í opinberar heimsóknir til útlanda. (Slíkar heimsóknir fara jafnan fram á sumrin, þeg- ar forseti Alþingis er hvort sem er starfslaus.) Margir halda því fram, að forsetinn sé ómissandi land- kynning og stuðli að auknum útflutningi. Ég ætla ekki að ve- fengja það. En gætum við ekki fengið jafngóða landkynningu á annan hátt fyrir allt það fé, sem rennur í forsetaembættið? Besta ráðið til þess að auka útflutning er líka að selja góða og ódýra vöru, og það geta ís- lendingar, ef þeir reka útflutn- ingsfyrirtæki sín við góð al- menn skilyrði. Svisslendingar flytja kynstr- in öll út af úrum og matvælum og öðrum vörum, þótt enginn viti, hver þar er forseti hverju sinni. Þar er sá háttur hafður á, að ráðherrar ríkisstjórnarinn- ar skipta forsetatigninni með sér, einn á hverju ári, svipað og dómarar í Hæstarétti ís- lands gegna forsetastöðu þar, hver á tveggja ára fresti. Skiljum að ríki og kirkju Samkvæmt stjórnarskránni er evangelísk-lúterski söfnuð- urinn á Islandi þjóðkirkja, og þurfa Iandsmenn að greiða gjald til hans, nema þeir geri „Fátt er nú frekar rætt um manna í milli en forsetakjör og biskups- mál, og taka þærumræð- ur allar mikinn tíma frá þarfari efnum. En til er ráð til þess, að þessum umræðum ljúki. Hún er að leggja niður forseta- embættið og skilja að ríki og kirkju. Ég ætla hér að reifa nokkur helstu rökin fyrir því að flytja þessi tvö bákn burt af opinber- um vettvangi.“ sérstakar ráðstafanir til ann- ars. Mér finnst ekki fara vel á þessu. Þetta er í raun í and- stöðu við það ákvæði stjórnar- skrárinnar, að hér skuli vera fullt trúfrelsi. Einum söfnuði er ívilnað umfram aðra. Kirkjan hefur ekki heldur haft gott af faðmlaginu við rík- ið, sem hefur að sumu leyti verið andlegt kverkatak. í stað þess að prestar séu sálusorgarar, mega þeir ekki opna svo munninn, að þeir kvarti ekki undan kjörum sín- um. Þeir eru orðnir opinberir starfsmenn í hugsun. Kirkjan er ekki hreyfing, heldur stofn- un. Skynsamlegast væri að gera evangelísk-lúterska söfnuðinn [uminæli Karlmenn undir beltisstað.. íslenski kiljuklúbburinn sendi í vikunni frá sér kiljuútgáfu bók- arinnar „Karlafræöarinn — karl- menn undir beltisstaö" eftir Kenneth nokkurn Purvis. Þetta sýnist tilvalin bók fyrlr karla á öllum aldri og konurnar sem kynnast vilja þeim nánar. Höf- undur hefur lengi stundaö karlalækningar og kemur þekk- ingu sinni til skila á beinskeytt- an og bráðfyndinn hátt. Þýöing Stefáns Steinssonar læknis er jafnframt afbragöslipur. Viö mælum tvímælalaust meö þessari á náttboröiö og til aö glöggva áhugasama nánar völdum viö nokkra búta úr kafl- anum „Stolt karimannsins og þungamiöja — hreðjar í miðju alheims". Þetta eru ummæli vikunnar að þessu sinni; til- breytingarinnar vegna: „Flestir karlmenn vita svona nokkurn veginn hvar þeir væru staddir án eistnanna: í heimi þar sem hakan væri snoðin og röddin skræk.“ „Líffærið sem hangir fremst er oftast í sviðsljósinu en á bak við það sitja tveir leik- stjórar sem stjórna sýning- unni og sjá um að sirkus karl- mannsins fari ekki úr böndun- um.“ „Á þeim tímum þegar Biblían var rituð þótti alvarlegt mál að vinna eið og til merkis um alvöruna lagði eiðsvarinn höndina á eistu þess manns sem var svarinn. Talið er að með þessu hafi eiðsvarinn gengið að þegjandi samkomu- lagi um að bölvun skyldi hvíla á ófæddum niðjum hans ef hann ryfi eiðinn.“ „Orð eins og testamenti og testimonium, sem þýðir vott- orð, sem og enska sögnin testify, sem þýðir að bera vitni, eru öll runnin upp úr þessum jarðvegi þar sem eistu og sannleikur eru hengd á sömu spýtu. — Þegar menn sverja eið í réttarhöldum nú til dags lyfta þeir upp hægri hendi í stað þess að stinga henni undir skikkju dómarans." „Menn sem vantaði þessi meginlíffæri gátu ekki beinlín- is kallast virtir menn í samfé- laginu. í Rómarveldi máttu þeir ekki bera vitni fyrir rétti. Ekki var um að ræða að ganga í guðshús því að í Móselögum stendur: Enginn sá, er meidd- ur hefir verið eistnamari eða hreðurskorinn, má vera í söfnuði Drottins." á íslandi að frjálsum söfnuði með sömu réttindi og skyldur og önnur trúfélög. Yrðu félagar í honum þá að standa straum af öllum kostnaði við rekstur- inn, en eðlilegt væri, að kirkj- unni væri um leið afhentar ýmsar eignir hennar, sem ríkið hefur tekið ófrjálsri hendi síð- ustu aldir. En ég tek það fram, að ég er hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju, vegna þess að ég styð kirkjuna, en ekki vegna þess, að ég sé andvígur henni: Ráðið til að efla trúarlíf er einmitt að frelsa kirkjuna undan oki ríkis- ins og gera klerkana háða söfn- uðunum, því að þá eru þeir lík- legri til að þjóna þeim betur. Þá verður líka til frjósamari jarðvegur fyrir heittrúarsöfn- uði, sem gegna mikilvægu fé- lagslegu hlutverki, því að þeir veita fólki í sálarháska nauð- synlegt athvarf eða griðastað. Höfundur er dósent í stjórnmálafræði við Háskóla íslands. „Ýmislegt virðist sýna að kon- ur til forna hafi verið hinir mestu bardagahundar og heldur illskeyttar og notað alls kyns fólskubrögð sem beindust að eistunum í hita leiksins." „í Gamla testamentinu stend- ur skrifað: Þegar tveir menn eru í áflogum, og kona annars hleypur að til þess að hjálpa manni sínum úr höndum þess, er slær hann, og hún réttir út höndina og tekur um hreðjar honum, þá skalt þú höggva af henni höndina og eigi líta hana vægðarauga." „Um svipað leyti í Assyríu: Hafi kona kramið annað eistað á manni við uppgjör skal höggva af henni einn fingur. Bólgni annað eistað eftir að læknir hefur bundið það eða ef hún hefur einnig kramið það við uppgjörið skal skera bæði brjóst af henni eða geirvörturnar." „[Geldingar] urðu oft her- stjórar, embættismenn og ráðgjafar. Meðfram því að þeir höfðu glatað svo mörg- um karlmennskueinkennum og mestöllum manndómi sín- um urðu þeir oft hrokagikkir, grimmir og tortryggnir — eft- irsóknarverðir eiginleikar ef menn ætla að öðlast frama." „Vegna beiskju og haturs í garð meðbræðra sinna urðu þeir [geldingarnir] oft dug- miklir pyntingameistarar og böðlar. í ljósi þessa geta menn velt vöngum yfir því hvað stórathafnamenn og kaupsýslumenn hafa í pungn- um — svo ekki sé minnst á leiðtoga ýmissa ríkja.“

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.