Helgarpósturinn - 14.03.1996, Side 12
RMMTUDAGUR14. MARS1396
„Sættum okkur
ekki við að aðrir
segiokkur fyrir
verkum“
Sameiningarmál hafa verið
mikið í umræðunni að und-
anfömu og er landsbyggðin
ekki undanskilin. Vinstriflokk-
arnir á Vestfjörðum hafa átt í
sameiningarviðræðum fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar 11.
maí næstkomandi, en upp úr
slitnaði þegar Alþýðuflokkurínn
á staðnum klauf sig út úr sam-
starfinu. Hinir flokkarnir, Al-
þýðubandalag, Kvennalisti og
óháðir, halda þó ótrauðir áfram.
Helgarpósturinn hafði af þessu
tilefni samband við Björn E.
Hafberg, skólastjóra á Rateyri
og forystumann Alþýðuflokks-
ins í sameiningarviðræðunum,
og spurði hvernig á þessu
stæði?
„Þaö voru vissulega mikil von-
brigði að geta ekki komiö á
þeirri breiðfylkingu jafnaöar-
manna sem við stefndum að,
en þeir afarkostir, sem okkur
voru settir, voru aö okkar mati
ekki aðgengilegir. Af þessum
flokkum er Alþýöuflokkurinn sá
langstærsti og hinir flokkarnir
lýstu yfir miklum efasemdum
meö Sigurö Ólafsson, bæjarfull-
trúa Alþýðuflokksins á ísafirði,
sem átti að vera annar maður
okkar á listanum. í lokatilboöinu
til okkar var hann settur í
fimmta sætiö, sem er baráttu-
sætiö, og fyrsti maöur okkar í
þaö þriöja. Þetta töldum við ekki
ásættanlegt og því slitnaöi upp
úr samstarfinu. Einnig var þessi
sameining ekki oröin eins fýsi-
legur kostur, því Framsóknar-
flokkurinn dró sig mjög snemma
út úr viöræöunum og þá breytt-
ust allar grunnforsendurnar þar
sem ekki var lengur raunhæfur
möguleiki á aö ná hreinum
meirihluta. Viö vorum þó stað-
ráönir í aö halda áfram, en viö
gátum náttúrulega ekki sætt
okkur viö aö aörir aðilar segöu
okkur fyrir verkum þegar viö vor-
um búnir aö velja okkar forystu-
menn.“
Hvaöa ástæöur voru gefnar fyrir
þessum efasemdum um Slgurö
Ólafsson?
Menn hafa boriö þvl viö aö hann
haft verið mótfallinn sameining-
unni í upphafi, en ég hafna því
algerlega. Eins og margir aörir
vildi Siguröur aöeins fá skýrari
svör um hvaöa framtíðarsýn
menn höföu um þessa samein-
ingu. Margir settu líka fyrir sig
aö hann heföi móögaö menn
meö skrifum sínum þar sem
hann sagöi, efnislega, að margir
litlir skítahaugar yröu ekki sjálf-
krafa aö glæsilegum fjósum
þótt þeir væru allir komnir sam-
an. Þessi samlíking— og
kannski óheppilegt orðaval —
hefur setiö alveg ótrúlega I .
mönnum, sem hafa sett þetta
fyrir sig í tíma og ótíma. En þótt
hinir flokkarnir bjóöi saman
fram þá óttumst við ekki um
okkar hag, því Alþýðufiokkurinn
er rótgróinn á Vestfjörðum."
- EBE
isafjorður, Flafeyri og Suðureyri, ásamt
hreppunum í kring, hafa sameinast i eitt sveitar*
télat með 2.700 manns á kjðrskrá. Vinstritlokkar
sveltartélagsins hafa átt í sameinínsarviðnuðum
fyrir kosningamar 11. maí. Framsóknarflokkurinn
heltist snemma úr lestinni og nú hefur
Alþýðuflokkur sagt skilið við sameininguna lika.
Poppguðinn David Bowie heldur
tónleika á Listahátíð í Laugardalshöllinni
20. júní — degi á undan Björk — og
með honum í för verður eiginkona hans,
ofurfyrirsætan Iman.
Eiríkur Bergmann Einarsson ræddi við
Ingvar H. Þórðarson, einn af
skipuleggjendum tónleikanna:
Slæmt orðspor
íslands hamlar
tónleikahaldi
Ingvar H. Þórðarson: „Við töldum ein-
faldlega að tími væri kominn til að ís-
lendingar fengju að sjá einhverja al-
mennilega súperstjörnu hér.“
Einn virtasti og vinsælasti
tónlistarmaður veraldar
hefur boðað komu sína á Lista-
hátíð í sumar. Já, þið heyrðuð
rétt. Samningar hafa nefnilega
tekist við poppguðinn David
Bowie um að hann haldi tón-
leika í Laugardalshöll 20. júní
næstkomandi. Með snillingn-
um í för verður spúsa hans,
hin fagra sómalska fyrirsæta
Iman. Parið kemur til landsins
19. júní og fer aftur 21. Þau
ætla hins vegar að nýta ferðina
rækilega og hafa í því skyni
beðið um skoðunarferð um
landið. Til upphitunar á tón-
leikunum verða íslenskar
hljómsveitir, en Bowie mun
velja þær sjálfur. ! þeim til-
gangi hafa honum verið sendar
upptökur með yfir þrjátíu ís-
lenskum hljómsveitum. Það er
Tin, fyrirtæki þeirra Ingvars H.
Þórðarsonar, Ragnheiðar
Hanson og Dísu Anderiman,
sem stendur að tónleikunum,
sem eru liður í tónleikaferða-
lagi Bowies um heim allan. Á
tónleikunum hyggst hann gera
hvort tveggja: kynna nýju plöt-
una sína 1. outside og spila
eldri lög.
Óhætt er að segja að Bowie
sé einn alfrægasti tónlistar-
maður heims. Árið 1966 gaf
hann út sína fyrstu plötu og
sló svo í gegn árið 1969 með
laginu Space Oddity af sam-
nefndri plötu. Ferill hans hefur
verið nokkuð hlykkjóttur og
margir aðdáenda töldu sig til
dæmis svikna þegar hann
gerðist diskópoppari með
plötunni Let’s Dance árið 1983.
Nýja platan þykir aftur á móti
minna meira á fyrri verk meist-
arans.
Þarf stútfulla höll til að
tónleikamir borgi sig
Þegar slegið var á þráðinn
til Ingvars H. Þórðarsonar
hjá Tin lá beint við að
spyrja: Hvernig kom það til
að Bowie fékkst til að spila
fyrir íslendinga?
„Við töldum einfaldlega að
tími væri kominn tii að íslend-
ingar fengju að sjá einhverja al-
mennilega súperstjörnu hér.
Dísa fékk þá hugmynd að
reyna að fá Bowie til að koma
til landsins. Þegar við leituðum
eftir þessu fyrst mættu okkur
óheyrilega háar kröfur frá
mönnum Bowies; kröfur sem
við hefðum aldrei getað mætt.
Ragnheiður Hanson á sem bet-
ur fer mjög góðan vin sem er
umboðsmaður rokkstjarna í
Evrópu og hann reddaði þessu
fyrir okkur í gegnum vin sinn,
sem er umboðsmaður Bowies,
þannig að það var farið svona
bakdyramegin að þessu. Menn
hafa reynt að fá Bowie hingað
áður, en aldrei tekist fyrr en
nú. Það er í raun alger heppni
að fá hann hingað. Við sendum
gífurlega miklar upplýsingar
um landið út og þar á meðal
voru myndir af fallegum kon-
um og þess háttar. Kannski
það hafi haft einhver áhrif...“
Er ekki samt sem áður
gríðarlega kostnaðarsamt
að fá slíkan risa til að spila
í þessu fámenni hér?
„Jú. Og þrátt fyrir að mörg
fyrirtæki leggi verkefninu lið
þurfum við samt að stútfylla
Höllina til að þetta borgi sig.
Þetta er náttúrulega gríðarleg
vítamínsprauta fyrir ísland
sem tónleikaland, því Bowie er
— ásamt Led Zeppelin — lang-
stærsta stjarna sem hingað
hefur komið. Kröfurnar sem
Bowie gerir eru afar stífar og
allt er skipulagt niður í smáat-
riði, þannig að engin óvissa er
um neitt. Þeir ákveða til dæmis
sjálfir miðaverðið, sem má
ekki fara yfir ákveðna upphæð.
Þeir velja upphitunarhljóm-
sveitirnar og skipta sér í raun
af flestu sem tónleikunum og
heimsókninni viðkemur.“
MTV sjónvarpar frá
tónleikunum og landinu
Nú hafa stórstjörnurnar
yfirleitt ekki komið hingað
fyrr en undir lok ferils síns,
samanber Meat Loaf, Rod Ste-
wart, Uriah Heep, Jerry Lee
Lewis og fleiri. Er heimsókn-
in hingað ekki einfaldlega
merki þess að það sé farið
að halla undan fœti hjá Bo-
wie?
„Það held ég ekki. Maðurinn
er búinn að vera á tónleika-
Gull, reykelsi og mirra í siðferðishúminu
„Þetta eru góðar fréttir. Ég er mjög
þakklátur fyrir að meirihluti þjóðar-
innar vilji að ég gegni mínu starfi
áfram. Þetta er í miklu samrœmi við
það sem við hjónin höfum fundið
með gjöfum, skeytum og símhring-
ingurn..."
TVTákvæmlega svona voru
1 > glaðhlakkaleg viðbrögð Ól-
afs Skúlasonar biskups við
þeim skelfilegu niðurstöðum
700 manna skoðanakönnunar
laugardagsblaðs Tímans, að
heil 46 prósent þjóðarinnar vilji
eindregið að hann segi af sér
embætti. Nú er svo komið — og
hefur verið um nokkurt skeið
— að helmingur þjóðarinnar
vantreystir andlegum og trúar-
legum leiðtoga sínum vegna
ásakana fimm kvenna um meint
afbrot hans.
En Ólafi finnst ofangreind
niðurstaða hinsvegar ákaflega
væn og ánægjuleg, því hann
nýtur núna stuðnings fáeinna
prósenta til viðbótar við það
sem var fyrir nokkrum dögum.
Þakka skyldi látlausri herferð
biskups og bjargvættarins
Ragnars Aðalsteinssonar á
hendur umræddum konum,
prestum sem styðja þær og fjöl-
miðlum er fjalla um málið frem-
ur en að þjóðin hafi á einhvern
hátt skipt um skoðun.
Það er annars ekki að furða
þó að létt sé yfir Ólafi þessa
dagana, enda sjaldan verið til-
tökumál hér á landi, að helm-
ingur þjóðarinnar vilji æðstu-
presta sína útí hafsauga á ein-
um tíma eða öðrum. Það þykir
einfaldlega ein af þessum
gömlu góðu staðreyndum lífs-
ins í trúmálum — líktog í menn-
ingu og pólitík — að njóta and:
úðar helmings þjóðarinnar. í
herbúðum biskups dansaði
prúðbúið fólk sjálfsagt stríðs-
dans af sigurgleði á laugardags-
kvöldið. Hahaha, gott á ljótu
vondu konurnar, hálfvitana í
prestastétt og gott á ofsókna-
róða fjölmiðlamenn. Gott á þau.
Hahaha.
En það var nú reyndar ekki
þessi makalausa skoðanakönn-
un málgagns Framsóknar-
flokksins sem ég staldraði við
þegar svefndrukknum augum
var rennt yfir blaðið á laugar-
dagsmorgni. Onei, það eru
miklu fremur þessar gjafir sem
biskupinn segir að fólk sé að
senda sér í stórum stíl sem
stinga í stúf við annað. Ég skil
ekki alveg hvað hér er á ferð-
inni því væntanlega hefði bisk-
upinn einfaldlega sagt „blóm“
ef um slíkt væri að ræða. Hann
hefur margtekið fram, að fjöldi
gjafa hafi borist, og nú vil ég fá
að vita hverskonar gjafir þarna
er eiginlega um að ræða.
Biskup hefur verið ófeiminn
við að líkja píslargöngu sinni
hálfpartinn við þjáningar ann-
ars og merkilegri mannkyns-
frelsara og því getur hugsast,
að einhverjir hugmyndaríkir
stuðningsmenn hafi orðið sér
úti um gull, reykelsi og mirru og
sent honum í hraðpósti. Og þá
vonandi líka dýrindis smyrsl
fyrir frú Ebbu til að rjóða á fæt-
ur hins aðþrengda eiginmanns
síns! Ekki er heldur ósennilegt
að þarna innanum megi finna
koníaksfleyga til að dreypa á
þegar degi tekur að halla eða
vindla til að púa í siðferðishúm-
inu. Eða eru gjafirnar hugsan-
lega samansettar á jarðbundn-
ari hátt og þá meðal annars
fólgnar í fjárframlögum til að
standa straum af óumflýjanleg-
um lögfræðikostnaði, ásamt
ostabökkum, sultukörfum,
hreinlætisvörum af ýmsasta
tagi, ilmkertum með kross-
mörkum á og ferðaaltörum sem
spila sálm þegar þau eru opn-
uð? Eru þetta ef til vill afurðir
íslensks heimaiðnaðar; hand-
prjónaðar ullarpeysur, heima-
smíðaðar kryddhillur og út-
skornar gestabækur?
Hefur almenningur ekki jafn-
mikla heimtingu á að vita hvaða
gjafir þetta eru og hverjir hafi
sent þær einsog að vita hvaða
prestar hitta tiltekin sóknar-
börn sín og hvenær? Eða hverj-
ir senda hverjum hvaða bréf og
hvenær?
Sumpartinn er það skiljan-
legt, að vinir biskups sjái sig
knúna til að senda honum gjafir
á erfiðum tímum. Eitthvað
grand verður að gera fyrir karl-
inn. Og þó. Hver man eftir því
að hafa fengið fjöldann allan af
gjöfum við sambærilegar að-
stæður? Ég lá til dæmis á
sjúkrahúsi um langa hríð fyrir
nokkrum árum og fékk þrjár
gjafir allt tímabilið — ef frá eru
taldar gjafir frá foreldrunum:
geislaspilara frá vinkonu móð-
ur minnar sem var umhugað
um að tengja við ungdóminn,
rauða peysu frá kærustu sem
síðar heimtaði hana reyndar til-
baka þegar leiðir okkar skildi
og æfingaskó frá núverandi eig-
inkonu minni (frjósöm spítala-
ferðalagi um allan heim að
undanförnu og hefur fyllt allar
hallir, ásamt því sem platan
hans nýja hefur selst gríðarvel
og fengið góða gagnrýni. En ís-
land hefur haft mjög slæmt orð
á sér síðan Bobby Harrison og
fleiri voru að flytja bönd hing-
að til tónleikahalds. Þess
vegna hafa stórfiskar ekki vilj-
að koma hingað. En vini Ragn-
heiðar tókst sem sagt að sann-
færa menn Bowies um að það
væri allt í lagi hér. Þessi hópur
tónleikahaldara í Evrópu er
mjög lítill og þröngur og um
leið og við klúðrum hlutum hér
fréttist það strax. Ennþá eru
slæmar sögur í gangi um tón-
leikahald á íslandi, þannig að
ef þessir tónleikar ganga vel þá
standa okkur allar dyr opnar.
Ef þetta klúðrast hins vegar þá
lokast margar dyr endanlega.
Það verður fylgst mjög vel með
þessum tónleikum og líklega
sjónvarpar MTV frá þeim.
Þetta mun því vekja töluverða
athygli í Evrópu, sérstaklega
vegna þess að Björk heldur
hér tónleika daginn eftir.“
vist atarna). Að öðru leyti var
ekki um gjafir að ræða fyrir ut-
an blóm í massavís, stöku bók
eða plötu og tiltölulega mein-
lausa vímugjafa.
Á biskupnum má afturámóti
helst skilja, að um meiriháttar
gjafir sé að ræða, og því er rétt
að hann greini frá eðli þeirra.
Þó ekki væri nema tií að seðja
forvitni okkar, velunnara hans.
Mér væri það bæði ljúft og
skylt, að birta gjafalistann í
blaðinu ef Ólafur eða Ragnar
sjá sér fært að senda hann. Svo
við tölum nú ekki um óskalista,
— ef Ólafur hefur hannað einn
slíkan í vandræðum sínum. Það
væri þarft mál að koma honum
á framfæri.