Helgarpósturinn - 14.03.1996, Qupperneq 15
FIMIVmJDAGUR 14. MARS1996
\
ptynlífsfræðsluhornið
Ken og Barbí
bregða á leik
Ekki er allt sem sýnist. Sumir kunna aö halda aö hér sé eitthvert Barbíklám á
ferö. Svo er alls ekki. í þessari grein er fjallaö um kosti og galla ýmissa kynlífsat-
hafna. Þar sem hins vegar ekkert „alvörufólk" fékkst til þess aö sitja fýrir var leit-
aö á náöir Kens og Barbí, sem fús tóku þátt í fræðslunni.
1. Krossfiskurinn
Fyrstu viðbrögð hennar gætu orðið
eitthvað í þessa áttina: „Heldurðu að
ég sé einhver Olga Korbut!?“ Það er
alveg þess virði að reyna þessa stell-
ingu — þótt hún kosti fyrirhöfn. Það
getur þó verið hálfafkáralegt að koma
sér í hana þessa; þessi löpp þarf að
fara yfir hina og hin yfir þessa og svo
framvegis. Þá þarf að halda áfram að
mjaka sér uns púsluspilið gengur
upp.
A góðum degi er þetta einhver besti
samruni sem um getur; ef þau ná
góðri leikni má vera að hann komist á
áður ósnertar slóðir. Hún verður hon-
um ævinlega þakklát.
4. Hundastellingin
Sé tekið mið af pólitísk-
um rétttrúnaði er svarið:
Nei, nei, nei. En miðað við
þægindi og alla þá innri snert-
ingu sem út úr þessari stellingu
fæst er svarið: Já-há. Hvort sem hún
er á fjórum fótum eins og sófaborð
eða með armana á gólfinu, líkt og hún
snúi í átt til Mekka, segja þeir sem til
þekkja að þetta sé stellingm. Flestar
konur kjósa heldur að vera alveg uppi
á fjórum tii að sjá útundan sér, en
undir lokin — um það bil sem endorf-
ínið fer að flæða — er nokkuð víst að
armarnir gefi eftir.
Þótt mörgum kunni að þykja
þessi ópersónuleg er hluti kikks-
ins að horfast ekki í augu; að geta
sett upp hvaða svip sem er án
þess að hinn sjái.
2. Lóðrétt aftan frá
Hún styður höndunum upp að
vegg, líkt og hún ætli að kasta upp fyr-
ir utan bar án þess að láta gallið lenda
á fínu skónum. Kannski má einnig
líkja þessari stellingu við lögguhand-,
töku. „Upp með hendur, niður með
brækur...“
Einhverjum kann að þykja þessi
heldur ruddaleg; -einkum finnst kon-
um þær oft vera í sporum dækju við
þessar aðstæður, en þó yfirleitt bara í
bestu merkingu þess orðs. Ef allt
gengur eins og í sögu finnur hún með
tímanum fyrir máttleysi í hnjánum og
fæturnir fara að titra. Þar með leggur
hún allt sitt traust á hann.
5. Bæði á hlið og horiast í augu
Konur heimta jafnrétti. Þetta er ein-
mitt það sem þær eiga við. Hvorki er
hætta á drottnun né uppgjöf og eng-
inn á á hættu að siasast. Sumir segja
þessa stellingu aðeins auðvelt her-
bragð, aðrir að hún sé næstum jafn-
erfið og að tína upp heilan eldspýtu-
stokk daginn eftir tremma. En þar
sem hvorugt er við sjórnvölinn getur
verið erfitt að láta hlutina ganga upp
nema skipuleggja allt fyrirfram í
þaula. Lítið má út af bregða til að allt
fari ekki úr skorðum. Gerist það er
ljóst að það getur valdið nokkurri
spennu, en hana má bara nýta sér til
góðs við næstu tilraun.
3. Á bakinu, krækir fótunum
yfir axlir hans
Þarna er konan næstum orðin eins
og mjúka vinkonan (uppblásna dúkk-
an). Ætla mætti að hann væri að
reyna að brjóta hana saman til að
koma fyrir í ferðatösku.
Mörgum konum kann að finnast
þessi stelling óþægileg, sérstaklega
þeim stirðu. Á móti kemur að þeir
karlar, sem ekki eru vel útbúnir að
neðan frá náttúrunnar hendi, geta
náð að kitla. Jafnvel minnstu tippi
geta virkað stór nákvæmlega í þessari
stellingu.
6. Konan ofan á
Þessi er í lagi, svo framarlega sem
hún tekur fljótt af. Dragist hlutirnir
hins vegar á langinn fer konan áður
en langt um líður að óska þess að
hafa haft vatnsflösku og súrefnis-
grímu við höndina.
Áhyggjuefni kvenna er að oft er
ómögulegt að vita hvenær hann er
búinn að fá það — nema hann sé
extróvert sem segir upphátt: „Þetta er
að koma, þetta er að koma.“ Að öðr-
um kosti er hætt við að konan noti
nára karlmannsins sem trampólín. Þá
finnst konum þær oft vera berskjald-
aðar við þessar aðstæður, eins og
þær séu til sýnis. Þetta er til dæmis
mjög óþægilegt fyrir konur sem njóta
þess ekki sérstaklega að láta horfa á
sig í leikfimi. Karlmönnum finnst þó
fátt meira kynæsandi en kvenmanns-
hold á hreyfingu.
Þessi stelling er þó ekki alslæm, því
undir þessum kringumstæðum ræður
konan algerlega ferðinni. Ef karlmað-
urinn tekur þátt í athöfninni af lífi og
sál og skekur mjaðmirnar gætu afleið-
ingarnar fyrir hann orðið því sem
næst himnaríki.
7. Trúboðsstellingin
Af hverju haldið þið að þetta sé vin-
sælasta stellingin? Nú, konunni finnst
hún frábær. A meðan karlmaðurinn
puðar getur hugur hennar þess vegna
verið á Akureyri hjá kynþokkafyllsta
manni íslands; löðursveittum.
Nánari samruni er vart til og því
getur snertingin orðið næsta fullkom-
in, að ekki sé talað um ef ástin er í
spilinu. Þá er hugsanlegt að þau geti
haldið áfram endalaust. Augnsam-
bandið er að auki fullkomið.
Líkt og þegar karlmaðurinn liggur á
bakinu getur konan í þessari stellingu
tekið þátt með mjaðmahreyfingum;
með þeim einum saman má gera karl-
mann vitstola af æsingi.
Ef allt er undir kontról gæti konan
þess vegna sofnað broti úr sekúndu
eftir að yfir lýkur. En það má
ekki gerast oft.
8. Andlit í bak
Þessi minn-
ir svolítið á
það þegar
konur
þurfa að
girða
niður
um
sig
og
pissa
úti í
guðs-
grænni
náttúrunni. Það
ætti þó að vera hægur
vandi að láta mjúkan
bossann hossast á nára
karlmannsins, en samt...
það er ekki alveg á
hreinu hvort þessi 360
gráða snúningur gengur
upp án aðstoðar hjálpar-
tækja.
9. í ruggustól,
hún ofan á
Þarna situr hún eins og
ofvaxið barn í kjöltu föður
síns. Þar sem þau sitja
bæði upprétt geta þau
hæglega krækt sér betur
saman en lægju þau í
rúmi. Þar að auki getur hún
tekið um höfuð hans og lagt
það að brjósti sér.
Svo að hún hafi einhvern
stuðning er betra að hafa stólinn
með örmum. Undir lokin getur
hún — geri hún sér grein fyrir hvað
er í uppsiglingu — kastað sér á hann
svo hann ýlfri af frygð.
10. Krókurinn
Þessi er án efa komin úr kvikmynd-
inni Dirty Dancing, þegar Jennifer
Grey vafði löppunum hvað eftir ann-
að um mjaðmir Patricks Swayze. Það
er einhver svona „Ég Tarsan, þú Kate
Moss“-keimur af þessari stellingu.
Þetta er að minnsta kosti góð stelling
til að komast að því hvort einhver
kraftur er í kauða.
Ætla mætti að bjarndýr hefði stokk-
ið í faðm hans og gallinn er sá að
hugsanlega fer þessi aðferð með bak-
ið á honum. Og það er ekki gott að
hafa á samviskunni. Einmitt þess
vegna eru konur tilbúnar að taka að
sér hluta erfiðisins. En þegar vel tekst
til er þetta afar, afar, afar gott...