Helgarpósturinn - 14.03.1996, Page 22

Helgarpósturinn - 14.03.1996, Page 22
FIMMTUDAGUR14. MARS1996 22 Jón Óskar opnar á laugardaginn sýningu í Listasafni Kópavogs, en Jón er í hópi okkar allra bestu listamanna. Auk þess að starfa að myndlist hefur Jón Óskar hannað fjöldamörg blöð og unnið jöfnum höndum að umbroti og listsköpun. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir plataði Jón Óskar með sér á Hótel Borg á dögunum og ræddi við hann um listina ogtilveruna. Einungis fimmtán myndlistarmenn fást við alvarlega listsköpun... Lítill strákur klifrar upp í fangið á pabba sínum og sýnir honum mynd. Pabbi hans er að læra tann- lækningar og það finnst synin- um í senn skeífilegt og heill- andi. Hann hefur teiknað mynd af manni með heljar- stóran munn og risavaxnar tennur. Pabbinn hrósar hon- um og strákurinn flýtir sér að teikna aðra mynd og hefur hana af manni með ennþá stærri munn og ennþá stærri tennur. Hann sýnir hana pabbanum í von um ennþá meira hrós. Svona eru lista- menn segir Jón Óskar Haf- steinsson í iok þessarar litlu uppriljunar og bætir við að hann hafi samt vonandi þroskast eitthvað á síðustu þijátíu og fimm árum. Hann og konan hans, Hulda Hákon, eru í fremstu röð íslenskra myndlistarmanna, en Jón Óskar opnar sýningu í Lista- safni Kópavogs nú á laugar- daginn. „Þetta eru einar tíu til tólf myndir, allar að grunni til sama myndin, og byggjast á ákveðnu mynstri í bakgrunni,“ segir Jón Óskar þar sem við sitjum yfir bjórglasi á Hótel Borg. „Ég vinn ofan á mynstrið og myndirnar verða fyrir áföllum eða skemmdum og ef þær verða fal- legar þá eyði ég því. Myndirnar eru í raun ekki ósvipaðar veggj- um sem eru mismikið útkámað- ir. Liturinn er eins og fitulag. Þetta er flötur sem fólk hefur umgengist. Það er aðalatriðið og sjálfsagt lítil skemmtun fyrir áhorfandann.“ Er það meðvituð stefna að skemmta áhorfandanum ekki? „Málverkið er konsentrerað og fullkomið form myndlistar, það eru engar blekkingar í kringum það. Þú skýlir þér ekki á bak við neitt. Ein af ástæðun- um fyrir því að ég nota mynstur er að ég er að eyða þessu hefð- bundna frásagnargildi. Það er aðgerðarleysi og sjáifhverfa mynstursins sem mér finnst heillandi. Málverk af fólki verða strax mjög krefjandi á athygii og þeim mun stærri sem þau eru þess agressífari verða þau. En þegar mynstur er notað er stærri myndin ekki endilega sterkari heldur bara stærri. Mynd getur verið svo hlutlaus að þú gangir hjá og takir varla eftir henni. Þó getur verið dramatísk saga á bak við mynstur. í Afganistan höfðu menn til dæmis ofið teppi öld- um saman og notað til þess sama mynstrið, én vegna stríðsins hafa laumað sér þar inn í teppin nýir hlutir á borð við skriðdreka og stríðsvélar, en á svo fínlegan hátt að fólk tekur ekki eftir því. Ég hef unnið mikið með andlit og fígúrur og aðdráttarafl þeirra er sjálfgefið. Á sýningunni verða þrjár mynd- ir fyrir utan þessar með mynstrinu, þ.e.a.s. fuglar og menn. Ein þeirra og um leið minnsta myndin á sýningunni er ljósmynd af manni sem á upprunalegu myndinni er ekki stærri en títuprjónshaus, en ég stækkaði andlitið upp þannig að það þekur allan flöt myndar- innar. Sú mynd verður eflaust miðpunktur eða kennileiti sýn- ingarinnar. Athygli fólks beinist að þessari mynd. Þessi þrjú við- fangsefni eru í raun algerlega óskyld, nema hvað í þeim er ég að leita að sögu og bakgrunni og saman veita þau ákveðið umhverfi og tilfinningu." En svo við víkjum að öðru. Það mátti skilja á þér áðan að myndlistarmenn hefðu óslökkvandi þörf fyrir aðdá- un og ást? „Já, en það er samt afstætt. Á sama tíma og við viljum tak- markalausa ást og athygli þá er þetta ekki nema milli 300 og 2.000 manns sem sækja sýning- ar í Reykjavík. Af þeim eru svo kannski tíu prósent sem hafa raunverulegan áhuga á mynd- list sem slíkri. Þessi athygli sem menn eru að slást um er ekki stærri en í lítilli fjölskyldu. Um daginn sat ég með Hallgrími Helgasyni og hann var að rifja upp sögu frá París af því þegar hann og Sigurður Ámi ætluðu að hitta Erró, frægasta lista- mann okkar Islendinga. Þeir voru afar spenntir þegar hann kom og settist hjá þeim en eftir smástund gekk annar listamað- ur í salinn, Jörg Immendorf, sem er súperstjarna í heimi myndlistarinnar. Hann var í hópi aðdáenda og aðstoðar- manna, allur klæddur í leður með gullkeðjur um hálsinn. Erró minnkaði samstundis og varð lítill kall og þeir sjálfir urðu agnarsmáir. Samt er Imm- endorf eingöngu súperstjarna í 2.000 manna hópi. Myndlistar- heimurinn er lítill eða sá hluti lians sem skiptir einhverju máli, kannski fimm til tíu þús- und manns. Ég hugsa að Pat- rekur Jóhannesson handbolta- stjarna sé raunverulega þekkt- ari en Immendprf. Aðdáenda- hópur hans á íslandi er litlu minni en hin þrönga myndlist- arelíta heimsins. Það hefur ver- ið umræða um fjarlægðina milli okkar myndlistarmanna og al- mennings, en hún er ekki rétt. Gífurlegur fjöldi listamanna sinnir skreytiþörf almennings en miklu færri vinna á allt öðr- um forsendum. Þetta er að ein- hverju leyti eins og innhverf íhugun. Sumir menn leggja mik- ið á sig til að uppfræða fólk og breyta því svo að listin skipi stærri sess. En ég hef enga orku í það. Mér finnst nóg að fást við eigin myndir." Fimmtán manna hópur fæst við alvarlega listsköpun Hvað eru þá margir mynd- listarmenn að fást við alvar- lega listsköpun að þínu áliti? „Ég hef ekki sett það niður fyrir mér, en ég ímynda mér að það séu svona fimmtán manns. Á sama tíma eru um 400 með- limir í Sambandi íslenskra myndlistarmanna. Þetta er eins og í bókmenntunum; fjöldi fólks hefur gaman af að setja saman vísur eða ljóð en á alls ekki heima í alvarlegri bókmennta- umræðu. Það er líka mikið af fólki sem hefur gaman af að búa til myndir. Mér finnst sjálfum ekki gaman að mála myndir. Vinnan sjálf er leiðinleg og henni fylgir meiri angist en gleði.“ Finnst þér nœgilegur áhugi á myndlist meðal almenn- ings? „Almenningur hefur engan áhuga á myndlist, sem ég skil mjög vel, og hann sér að sama skapi ekki muninn á föndraran- um og hinum. Mér finnst það í sjálfu sér í lagi, en þó væri betra ef þetta tvennt væri meira aðgreint. Myndlistar- menn ættu að geta lifað góðu lífi, þótt það sé ekki markmiðið með listinni sjálfri. Mér þætti ágætt ef yfirvöld kynnu að draga mörkin. Það vefst ekki fyrir þeim þegar skákin er ann- ars vegar. Stórmeistarar fá laun fyrir að tefla, en fjöldi fólks sem teflir sér til gamans á ekkert er- indi á starfslaun. Ég vinn fyrst og fremst að myndlistinni en svo hef ég unnið við umbrot inni á blöðum til að fjármagna myndlistina. Fyrir mér er myndlistin alvarleg vinna og hún gengur fyrir öðru.“ Finnst þér þá ekki gerðar ncegar listrœnar kröfur, til dœmis til þeirra sem ganga í Myndlista- og handíðaskól- ann? „Ég þekki skólann ekki eins og hann er í dag. Sjálfsagt er hann eitthvað svipaður því sem hann var þegar ég var í honum. Þá voru teknir inn um fjörutíu nemendur á ári en af þeim fer um helmingur í auglýsingar, vefnað eða annað. Skólinn út- skrifar kannski um tuttugu myndlistarmenn á ári og það segir sig sjálft að aðeins hluti þessa hóps lætur að sér kveða. En fólk blómstrar mishratt og stundum er talað um að við myndlistarmenn séum sein- þroska. Ef það ætti að taka færra fólk inn væri kannski ver- ið að útiloka þá sem gætu orðið brilljant síðar meir. Lífið sjálft eftir skólann virkar sem sía. Hluti þessa fólks hættir og fer að starfa eitthvað annað, en menntunin er góð og nýtist þeim engu að síður. Þetta er ekki tímasóun, þótt fólk starfi ekki að myndlist alla ævi. Það eru þó ekki endilega föndrar- arnir sem hætta, þeir halda gjarnan áfram." Það er nú pllur framinn á íslandi „Það væri mjög erfitt fyrir mig að starfa að myndlist ef ég gæti eingöngu sýnt hér heima," segir Jón Óskar, „en ég hef ver- ið í samstarfi við gallerí erlend- is þar sem ég hef sýnt reglulega og hef því haft góða ástæðu til að halda áfram. Annars hugsa ég að ég væri löngu hættur þessu. Fjölmiðlar hérna heima gera það að verkum að þú vinn- ur þig ekki upp heldur niður. Þegar ég hélt fyrstu sýninguna mína og var algerlega óskrifað blað sendi ég fréttatilkynningar á blöðin. Mér til mikillar undr- unar var mér slegið upp. Ég gladdist yfir þessum áhuga og góðu móttökum. En síðan ger- ist ekkert meira. Ef eitthvað er þá dalar áhuginn. Það er nú all- ur framinn á íslandi. Ég hef margoft horft upp á stuttaraleg- ar fréttatilkynningar um það þegar viðurkenndir listamenn halda sýningar en löng viðtöl á sömu síðunni við einhverja föndrara sem maður hefur aldr- ei heyrt nefnda á nafn. Þetta er óþolandi. Því hefur verið logið að íslendingum að þeir skilji bókmenntir og þess vegna höf- um við alltaf skoðanir á reiðum höndum ef rætt er um smásögu eða ljóð. En það þora fæstir að hafa nokkra skoðun á myndlist. Þar segja menn sem rninnst." Nú ertu sjálfur í blaða- mennskunni og því báðum megin við borðið... „A íslandi eru flestar rit- stjórnir fámennar og vinnuálag- ið gífurlegt. Þú labbar ekki inn á „Ég hef verið í myndlist jafn- lengi og í blaðamennsku. Ég fór í MHÍ strax eftir stúdentspróf og byrjaði á sama tíma að vinna við sumarafleysingar í umbrot- inu á gamla Vísi. Þá voru ritstjór- ar þeir Þorsteinn Pálsson og Ól- afur Ragnarsson. Ég sá fyrst auglýsingu frá Alþýðublaðinu en þá vantaði bara mann í hálft starf. Ég var að leita að fullu starfi og komst inn á Vísi. Ég hafði verið blaðburðardrengur sem strákur og varð algerlega dolfallinn þegar ég kom inn á al- vöru blað. Mér fannst þetta þá ákaflega virðulegt fyrirtæki og það er það enn í minningunni." blað með fréttatilkynningu og færð að tala við menningarrit- stjóra. Blaðamaðurinn sem tek- ur á móti þér skrifar kannski jöfnum höndum um sjávarút- vegsmál og menningu. Blaða- menn sem hafa tekið við mig viðtöl erlendis eyða kannski öll- um deginum með manni en birta síðan fimmtán dáiksenti- metra í blaðinu daginn eftir. Það mætti kannski finna ein- hvern milliveg. Hulda var einu sinni í viðtali við London Times og þar eyddi hún mjög löngum tíma með blaðamanni og heil- um degi með ljósmyndara sem hafði fjóra aðstoðarmenn. Síð- an birtist ein mynd og stutt við- tal í blaðinu. Hérna heima höf- um við ekki mannskap í svona vinnubrögð." Laug mig inn á blaðið Segðu mér aðeins frá fyrstu reynslu þinni sem starfsmaður tjölmiðils? „Ég hef verið í myndlist jafn- lengi og í blaðamennsku. Ég fór í MHÍ strax eftir stúdentspróf og byrjaði að vinna á sama tíma við sumarafleysingar í umbrot- inu á gamla Vísi. Þá voru rit- stjórar þeir Þorsteinn Pálsson og Ólafur Ragnarsson. Ég sá fyrst auglýsingu frá Alþýðublað- inu en þá vantaði bara mann í hálft starf. Ég var að leita að fullu starfi og komst inn á Vísi. Ég hafði verið blaðburðar- drengur sem strákur og varð al- gerlega dolfallinn þegar ég kom inn á alvöru blað. Mér fannst þetta þá ákaflega virðulegt fyr- irtæki ogþað er það enn í minn- ingunni. Ég laug mig inn á blað- ið. Sagðist hafa hugsað mér að læra umbrot í myndlistarskól- anum. Þegar vikan var liðin sáu þeir að ég kunni ekki neitt, en þá tók því sjálfsagt ekki að reka mig.“ Hraði og spenna Var þetta mikill hasar? „Ég hafði heyrt margar sögur um blaðamenn, bæði áður fyrr og eftir að ég hóf störf. Á tíma- bili var varla opnuð svo sjoppa í bænum að ekki væri haldinn tilheyrandi kokkteil og svo hringt á ritstjórnina og beðið um að blaðamaðurinn yrði sótt- ur, — hann væri dauður. Þetta lagðist af og blaðamenn eru flestir bara harðduglegt og reglusamt fólk. Það er helst í vikublaðamennskunni sem haldið er uppi gamalli ímynd. Henni fylgir óreglulegur vinnu- tími, óöryggi á vinnustað, hraði og spenna og kannski er maður orðinn ánetjaður þessu.“ Hver finnst þér vera stœrsta breytingin inni á rit- stjórnum frá því þú byrjaðir? „Hver breytingin er veit ég ekki nákvæmlega. Hún er kannski fyrst og fremst hugar- farsleg. Áður fyrr komst al- menningur ekki í blöðin og tak- markalaus virðing var borin fyrir stjórnmála- og valdamönn- um í þjóðfélaginu. Sú virðing er ekki til staðar lengur og það er sjálfsagt róttækasta breytingin, þó svo að efnistökin hafi líka breyst." Það var kannski ekki síst Helgarpðsturinn sem átti þátt í því, en þú varst starfsmaður hans frá byrjun? „Já, ég var einn af stofnend- um Helgarpóstsins á sínum tíma, en hann var í raun fyrsta blaðið sem stundaði tiltölulega frjálsa blaðamennsku þó svo hann væri undir Alþýðuflokk- inn settur bæði leynt og ljóst. Það má kannski segja að Al- þýðuflokkurinn sé einna mest- ur áhrifavaldur í íslenskri blaðamennsku undanfarin tutt- ugu ár. Vikublaðamennskan varð til fyrir hans tilstuðlan og hún breytti miklu.“ Svo hannaðir þú útlit fyrsta glanstímaritsins, Mannlífs, þegar það var stofnað? „Já, við Herdís Þorgeirsdótt- ir erum gömul skólasystkini og vinir. Hún réð mig til sín þegar Anders Hansen stofnaði Mann- líf og ég teiknaði tvö fyrstu ein- tökin af blaðinu. Svo réðst ég aftur til hennar þegar hún stofnaði Heimsmynd. Ég held að ég hafi ekki verið sá besti þó að ég kæmi að svona mörgum blöðum. Þetta fyrirkomulag, að skipta sér milli myndlistarinnar og blaðamennsku, hefur gert að verkum að það hefur verið hægt að kalla mig til í skorpu- vinnu þegar umbrotsmann vantar. Ef ég væri eingöngu um- brotsmaður stæði ég sjálfsagt ekki í þessari ævintýra- mennsku, en af því að ég er líka myndlistarmaður hentar það mér.“ Trésmiður, pípari og málari „Ég vann við Helgarpóstinn fyrsta árið sem hann var starf- ræktur en flutti síðan út til New York, þar sem ég fór í fram- haldsnám í tvö ár. Hulda Hákon konan mín fór líka í nám þarna úti og alls bjuggum við í New York í fimm ár með Burkna son okkar. Eftir að námi lauk tók ég alls kyns lausavinnu. í götunni okkar bjó eilítið eldra fólk sem átti smáfyrirtæki og arkitektar og verkfræðingar, en þau urðu mörg góðir vinir okkar og út- veguðu mér tilfallandi vinnu tvo til þrjá daga vikunnar svo við gætum búið lengur úti og stundað myndlistina. Á þessum árum vann ég því jöfnum hönd- um sem trésmiður, pípari og málari. Hulda prjónaði fyrir búðir á Fashion Avenue og þetta gekk nokkurn veginn upp svo að við gátum málað og

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.