Helgarpósturinn - 14.03.1996, Page 25

Helgarpósturinn - 14.03.1996, Page 25
FIMMTUDAGUR14. MARS1396 mm 25 Mannlífið er eðja og kokkteilpartí stjórnarandstöðunnar í alllang- an tíma. Þarna skiptir lang- mestu máli að A-flokkarnir nái saman um einhvers konar sam- einingu. Auðvitað skipta líka Þjóðvaki og kannski Kvennalist- inn enn frekar máli. Ég ber mikla virðingu fyrir Kvennalist- anum, sem hefur verið boðberi nýrra hugmynda og vakti til dæmis umhverfisumræðuna fyrir alvöru. Femínismi þeirra er auðvitað það sem hina stjórnmálaflokkana vantar að verulegu leyti. Þess vegna á Kvennalistinn fullt erindi inn í samvinnu á vinstri vængnum. Það er hins vegar spurning hvað þær vilja sjálfar." Gœti svo farið að þetta yrði síðasta kjörtímabil Alþýðu- flokksins í núverandi mynd? „Nei. Samvinna á þessu kjör- tímabili mun aldrei ná lengra en að verða einhvers konar samvinna um framboð. Það gæti gerst og eitthvað slíkt vil ég skoða.“ Status quo Talið barst að nýjum flokkum sem stofnaðir hafa verið á liðn- um árum en orðið skammlífir. Bandalag jafnaðarmanna, Borg- araflokkurinn og síðast Þjóð- vaki. í upphafi hafa skoðana- kannanir sýnt verulegt fylgi við þessa flokka en það síðan dalað verulega þegar kemur til kosn- inga. Ossur segir þetta sýna hvað íslenska flokkakerfið sé líf- seigt. Fyrir fimmtán árum hafi hann verið þeirrar skoðunar að það yrði komið að fótum fram um aldamót en nú væri hann allt annarrar skoðunar. Þó sé greinilegt að hjá stórum hluta kjósenda sé vilji til breytinga. En Össur er þeirrar skoðunar að núverandi skipan kalli ekki á miklar breytingar: „Meðan við erum með einn stóran og einn lítinn Framsókn- arflokk og síðan smærri flokk- ana, þá fær fólk alltaf ríkisstjóm sem verður keimlík næstu ríkis- stjórn á undan. Núverandi stjórn er að mörgu leyti mjög svipuð síðustu stjórn. Þegar upp er staðið fær fólkið ekki að kjósa um verulega valkosti. Það eru smærri flokkarnir sem hafa framsæknari og róttækari stefnu. Stundum hljóta þeir náð fyrir augum stærri flokkanna og fá að vera með þeim í ríkis- stjórn. En vegna smæðarinnar verða þeir svo oft að brjóta odd af oflæti sínu að það eru jafnan þeir sem verða verr úti í sam- starfinu. Við náðum að vísu fram ýmsum mikilvægum mál- um á síðasta kjörtímabili, svo sem aðild að evrópska efna- hagssvæðinu. Þar fyrir utan var langur vegur frá því að við næð- um því sem við vildum í sjávar- útvegi og landbúnaði, sem við lögðum langmesta áherslu á þegar við gengum til kosning- anna og stjórnarsamstarfsins. Sérðu til dæmis Framsóknar- flokkinn, sem er talsvert stærri og sterkari en Alþýðuflokkur- inn. Nú gengur hann til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Hans bíða sömu örlög. Hann nær því ekki fram sem hann lofaði fyrir kosningar. Þegar upp er staðið er ekki verulegur munur á stefnu þessarar ríkisstjórnar og þeirrar síðustu. Og það er held- ur ekki mikill munur á stefnu núverandi stjórnar og hinnar svokölluðu vinstristjórnar sem Steingrímur Hermannsson veitti forstöðu. Meðan það kerfi er við lýði, að hér eru tveir sterkir og tiltölulega íhaldssam- ir og síðan framsæknari og rót- tækari smáflokkar, er staðan alltaf status quo.“ Evrópustefnan ekki heilög Þú ert að segja að það þurfi stóran jafnaðarmanna- flokk til að breytingar nái fram að ganga? „Til þess að gefa fólki raun- verulegan valkost þarf sterkan qg stóran jafnaðarmannaflokk. Ég held að það sé nauðsynlegt. En menn á vinstri vængnum eru alltof hræddir um að þeir þurfi að slá af...“ ... já, áfram með þetta. Hverju vilt þú fórna? „Þegar ég ræði þetta við mína félaga segja þeir stundum: Eig- um við í Alþýðuflokknum til dæmis að kasta Evrópustefn- unni? Ég segi já, ef það er nauð- synlegt um stund, sem í augum margra alþýðuflokksmanna er guðlast. Ég segi hins vegar að ef einhvers konar bandalag jafn- aðarmannaflokka vildi beita sér fyrir veiðileyfagjaldi þá væri það nóg fyrir mig um sinn. Ég þekki kynslóðirnar sem eru að koma upp og verða í mínum sporum innan örfárra ára. Inn- an frjálslynds jafnaðarmanna- flokks munu þessar kynslóðir á tiltölulega skömmum tíma bera til sigurs stefnuna um Evrópu- tengslin. Ég held því ekki að Al- þýðuflokkurinn tapaði neinu þegar upp væri staðið.“ Ertu bara ekki með þessu að reyna að marka þér sjálf- um stöðu sem einhvers kon- ar sameiningartákn þessara flokka? „Nei, ég hef engar slíkar væntingar í mínu brjósti. Og svo undarlegt sem það kann að virðast með mann, sem er því- líkt pólitískt villidýr, þá tel ég í vaxandi mæli að ferill minn í stjórnmálum verði ekki eins langur og í upphafi var til stofn- að.“ En verður Jón Baldvin áfram formaður Alþýðu- flokksins? „Það er kórrétt ákvörðun hjá Jóni Baldvini að halda áfram að leiða Alþýðuflokkinn enn um sinn.“ A-flokkarnir sammála Að hve miklu leyti stendur persónulegur ágreiningur forystumanna flokkanna í vegi fyrir samastarfi eða sameiningu? „Ég geri mér ekki grein fyrir því hversu mikið, en áreiðan- lega talsvert mikið. Það er erfitt að ná vitrænni samræðu um þessi mál. En ég er þeirrar skoðunar að svona þróun verði aldrei ákveðin af mér eða ein- hverjum svokölluðum forystu- mönnum í þessum flokkum. Ég held að þetta verði frekar þann- ig að forysta flokkanna verði knúin til að taka þátt í svona þróun af innri spennu í neðri lögum flokkanna. Um áratuga- skeið var ekkert verulegt sem skildi Alþýðuflokk og Alþýðu- bandalag nema utanríkismál, afstaðan til NATO og herstöðv- arinnar við Keflavík. Nú skiptir þetta engu máli og allir orðnir sammála. Maður rekur sig á það aftur og aftur að fólk sem er orðið 25 ára og eldra skilur ekki af hverju þessir tveir flokk- ar renna ekki í sama farveginn. Ég hitti oft fólk sem biður mig að skýra fyrir sér muninn á Al- þýðuflokknum og Alþýðu- bandalaginu. Það reynist mér oft erfitt, en haldgott er að grípa til ESB. En ef við ætlum að byrja á að njörva allt niður í samvinnuviðræðum mun hægt ganga. Það á frekar að gera eins og R-listinn, sem tekst á við vandamálin eftir því sem þau rekur á fjörur þeirra stjórn- málamanna sem standa fyrir listanum.“ Verður hœgt að búa til R-lista á landsvísu fyrir nœstu þingkosningar? „Ég vil ekkert um það segja, en mun hins vegar leggja mitt af mörkum til þess að við freistum einhvers konar samvinnu. Mér finnst að eigi að láta á það reyna. Þótt ég sé í yngri kantin- um í stjórnmálum er senn kom- ið að því á mínum ferli að ég láti á það reyna sem ég tel farsæl- ast fyrir jafnaðarstefnuna á ís- landi. Það skulda ég sjálfum mér og líka þeim sem kusu mig upphaflega. Ég fór í Alþýðu- flokkinn með þetta að mark- miði og hef aldrei farið dult með það.“ Fullmeinlaus Ef þú horfðir á áttrœðan Alþýðuflokk sem persónu, hvernig lýstirðu kostum hennar og göllum? „Gallarnir eru þeir að mér finnst hann fullmeinlaus. Hann nýtir of illa það svigrúm sem hann hefur núna til að hugsa um fortíð sína og læra af henni og verða þar með beittara tæki fyrir jafnaðarstefnuna í framtíð- inni. Helstu kostirnir eru þeir að þetta er vinalegur flokkur sem gott er að vera í. Þar geta menn slegist og tekist nokkuð hressilega á án þess að það myndist ör eða varanleg slit á vináttu. Það var ánægjuleg nýj- ung fyrir mig, sem kem úr allt öðru umhverfi. Það má líka eiga von á öllu innan flokksins. Ólík- legustu menn geta kastað fram hugmyndum sem maður stend- ur frammi fyrir og hugsar: Þetta er frábært. Að vera í flokki með mönnum eins og Jóni Baldvini Hannibalssyni, Guðmundi Árna Stefánssyni, Hrafni Jök- ulssyni, Sighvati Björgvins- syni, auk allra hinna, býður allt- af upp á það óvænta. Það er kannski vegna þess að ég er í hjarta mínu dálítill spennufíkill sem ég hangi alltaf í þessu. Ég elska flokkinn og hata hann.“ En hvað rekur hámenntað- an vísindamann eins og þig út í pólitík? „Ég hef gaman af þessu starfi. Dag hvern rekur á fjörurnar tæknileg úrlausnarefni sem krefjast einmitt vísindalegs aga og hugsunar ef maður ætlar að greina hismið frá kjarnanum. Að því Ieyti storkar þetta starf stundum vitsmununum en að vísu of sjaldan. Það gerist líka af og til að maður sér eitthvað gott af leiða. Þó að gangverkið í þinginu sé hægt og stundum verði mistök kemur að því að maður stendur stundum upp og lítur yfir gott verk. Ég varð giska glaður þegar ég fékk í gegn frumvarp sem afnam mis- rétti ættleiddra barna og ætt- leiðandi foreldra. Þetta snerti mig auðvitað persónulega en gaf þó vissa fullnægingu. Kannski fullnægir starfið sköp- unaráráttu hins misheppnaða menntaskólaskálds." Hvað viltu gefa Alþýðu- flokknum í afmœlisgjöf? „Að það takist góð samvinna með jafnaðarmannaflokkunum fjórum sem leiði til sigursæls kosningabandalags sem fleytir jafnaðarstefnunni inn í ríkis- stjórn á næsta kjörtímabili. Fyrstu raunverulegu ríkisstjórn íslenskra jafnaðarmanna. Það er auðvitað draumur, en jafnvel gamlir stjórnmálarefir eins og ég þurfa af og til að láta sig dreyma,“ sagði Össur Skarp- héðinsson. Uppgerðarasi meö dugnaðarfasi Höfundasmiöja Leikfélags Reykjavíkur Höfundur Svala flmardóttir ★★★ vala Arnar- dóttir er út af Einari Ben og sýnir þeim upp- runa sínum virðingu með því að vitna ríkulega í kvæði gamla mannsins, jafnvel yrkja upp úr hon- um á stundum. Það er þó minnst. Liggur við að yrkingarmáti hans og hugsunarháttur sé annað veifið lif- andi kominn í hennar skáldskap. Það er meira að segja afar líklegt, að hefði Einar verið okkcir samtíma- maður — og á aldrinum milli þrí- tugs og fertugs — þá hefði hann bú- ið til verk nauðalík þessu; kannski einmitt nákvæmlega svona. Og ef til vill er Svala ekki að gera annað en að hlaupa í skarðið fyrir afa gamla, því hann getur trauðla verið við- staddur sjálfur. Vel getur þó verið, að enginn nema ég sjái þennan skyldleika og allra síst þeir sem handgengnir þykjast Einari heitnum þar sem hjá Svölu eru engir stóriðjudraumcu-; ekkert rís þú unga; engir knapar á hestbaki kóngar um stund; engin dökk vín við dimmu fljóts; engar háskalegar og svarteygar kvensur í húmi; engin mold sem lyftir sér í svanalíki; ekkert brimsog frá úthafs- ins lunga; engin tröllaukin eignar- föll. Allra síst upprisuhvatning með þúsundraddabrag — eða aðgát- ínærverusálar. Fljótt á litið virðist þessi skáld- skapur, sem og sýningin, kærulaus glannaskapur: stundum absúrd, súrrealískur og farsakenndur. En einmitt einhvers staðar þar liggur skyldleikataugin. Þeir sem muna sögurnar af ævintýra- mennsku og prakkaraskap gamla mannsins; þeir sem muna hversu hann nýtur sín í að setja saman textana upp í þann óforbetranlega glanna Pétur Gaut (/ San Francisco þar gróf ég gull / hvergata varþaraf trúðum full... þetta fékk Kölski og þar á lá hann: hann þekkti ekki þá sem hlustuðu á hannj; þeir sem muna hátignarlega fyrirlitningu hans á smásálarskap og hégóma — þeir geta verið mér sammála um að Svölu Arnardóttur er ekki illa í ætt skotið. Það má kalla, að þetta sé tilvitn- analeikur. Það er gripið niður í mannlífseðjuna hér og þar, tekin handfylli og rétt fram til sýnis. Því er svo svarað með annarri sýna- töku; oft allt annars staðar úr haugnum og af öðrum toga. Tals- vert af beinum ívitnunum í klassísk- an skáldskap, einkum langafa, en sitthvað er úr Biblíunni trúi ég, Njálu og fleiru góðu. Úr verður oft fáránleg samræða (eins og í lífinu sjálfu) og háðuleg hegðan fólks sem er að etja kappi hvert við annað í þvf uppskrúfaða kokkteilpartíi sem lífið er. Leikmátinn er kannski raunsær (realismus), en þó ýktur svo að verður súrrelískur. Samtöl sjaldn- ast bein milli persóna eins og tíðk- ast í venjulegu drama. Frekar eins og símtal: Ég tala í síma, þú heyrir mitt tal úr símanum, en ekki frá mér og svarar aftur í símann, ekki mér. Hvorugur sér hinn og getur þar af leiðandi ekki skilið hann til fulls. Báðir tala; ekki einasta út í bláinn heldur líka út í hött. Ráða ekki við meira en það, að halda standard framkomu. Trúðar í sirkus hafa ekki óskylda aðferð. Ekki er ólíklegt, að þessi leikmáti hæfi líðandi stund og eigi eftir að verða ráðandi bráðum. Er reyndar orðinn það víða. (Monty Python, Spaugstofan, Radíusbrœður, Langholtskirkjudeilan, Þorvaldur Þorsteinsson). Oft er þetta drephlægilegt. Músík er hvergi til spöruð; hvorki klassík né popp, fremur en í öðrum leikritum nú til dags. Mikill kraftur. Mikið líf. Þetta er alvarlegt átak í því að ná fangstað á og tjá vorn tætta sam- tíma: þar sem athygli mannsins er aldrei einbeitt að neinu einu um- hugsunarefni í einu; þar sem áreitin eru svo mörg og illþolandi, að menn leggja ekki lengur eyrun við neinu; þar sem menn eiga í stríði við að útiloka fremur en nema; þar sem menn skella skollaeyrum við í stað þess að leggja hlustir við. Að mínu viti er þetta rökrétt framhald af því sem hinir meiri postular, á borð við Magnús Páls- son, hafa verið að reyna. Þessi sýn- ing Svölu minnti í mörgu á Þeir koma með kistu og sœkja mig og önnur verk eftir Magnús, þar sem hann hefur alltaf minnst þrjú leikrit í gangi samtímis. Magnús leikur einnig mikið með tilvitnanir. En hjá honum eru þær ekki valdar. Tilvilj- un fær að ráða. Þær eru beinlínis klipptar út úr lífinu og því lesmáli sem um heiminn flýtur og ekki allt tóm biblía, einarben og eddur; skrípamyndablöð — Playboy, Bat- man og Andrés Önd — fá sama séns og Shakespeare. Óskapnaður nú- tímalífsins undir þunga æðandi um- ferðar úr öllum áttum í lofti, á láði og legi, við undirleik að minnsta kosti fimm útvarps- og sjónvarps- stöðva í einu, á meðan fyrirsagnir dagblaða dynja þvers og kruss um torgin og Ijósaauglýsingar glefsa í brynjaðar sálir mannanna. Ekki þætti mér ólíklegt að Einar Ben hefði samið og sett upp slík verk, væri hann endurfæddur meðal vor. En Svöluleikur er nær því að vera við alþýðuskap, sem þarf ekki að merkja annað en að þar sé vínið nægilega vatnsblandað fyrir styttra komna. Það er sveifla og svif í þessum skáldskap, — þeyst út um loftsins þök. Leikéu-cu-nir voru allir ágætir og Valgeir Skagfjörð hefur tekið þetta réttum tökum samkvæmt eðli og innihaldi. æskuhetjan 1 Magnús Bjarnfreðsson Alltaf sami fréttafMlinn Þegar Ríkissjónvarpið hóf göngu sína fyrir þrjátíu árum var Magnús Bjarnfreðsson einn af þremur fyrstu fréttamönnunum þar á bæ. Hinir voru Markús Örn Antonsson og Ólafur Ragnarsson. Magnús hafði áður verið þulur hjá Ríkisútvarpinu og einnig starfað sem blaðamaöur og ritstjóri. Hann þótti koma vel fyrir í sjónvarpi með sína djúpu rödd og traustvekjandi framkomu. Ásamt frétta- mennskunni vann Magnús ýmsa dagskrár- þætti og stjórnaöi umræðum í sjónvarpssal. Hann hætti á fréttastofunni 1974, þegar hann var kjörinn í bæjarstjórn Kópavogs, en starfaöi áfram hjá Ríkisútvarpinu til 1976 að hann lét af störfum þar. Síðan hefur hann starfað við ýmiss konar almannatengsl og raunar af og til komið fram í sjónvarpi sem þáttastjórnandi og þulur. Það var gífurlega mikiö vinnuálag á okkur fyrstu árin á Sjónvarpinu og stundum unnið nánast dag og nótt. Þegar ég fór með fjölskylduna í sumarfrí norðurí Skagafjörð áriö 1967 var Ámi sonur minn tveggja ára. Það tók mig viku að fá hann til að koma með mér út. Hann hreinlega þekkti ekki þenn- an mann - að minnsta kosti ekki svo hann treysti sér til að vera einn með hon- um,“ sagði Magnús í stuttu spjalli við HP. Hann kvaðst annars vera lausamaðurí dag og tæki að sér hin og þessi verkefni. „En ég er algjör fréttafíkill eins og áður og fýlgist með öllum fréttum," sagði Magnús. Hvernig finnst honum fréttamenn standa sig í dag? „Þaö er upp og ofan, alveg eins og þegar ég var í þessu. Það hefur ekk- Magnús: „Tæknin hefur breyst gtfiurlega á þess- um tíma og fer ekki hjá þvi að maður öfundi fréttamennina svolítið af tækninni í dag.“ ert breyst. Það er hins vegar tæknin sem hef- ur breyst gífurlega á þessum tíma og fer ekki hjá því aö maður öfundi fréttamennina svolítið af tækninni í dag. Ég man til dæmis þegar við sendum í fyrsta skipti fréttir beínt utan úr bæ. Þá var Ásgeir Ingólfsson fréttamaður staddur i Austurbæjarskólanum og fréttir sendar beint þaðan þar sem verið var að telja atkvæöi í kosningum. Þetta þótti alveg stórkostlegt, en nú eru beinar útsendingar heimsálfa milli dag- legt brauð," sagöi Magnús Bjarnfreösson að lokum. - sg

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.