Helgarpósturinn - 14.03.1996, Qupperneq 26
26
FIMMTUDAGUR14. MARS1996
-#Ventotene, Ítalíu
ifangastaðir
Gleymd paradís
Eyjan Ventotene („þar sem
vindurinn stoppar") liggur
rétt fyrir utan strönd Napólí á
Ítalíu og er ein minnsta paradís
Evrópu. Eyjan, sem er aðeins
einn ferkílómetri að stærð, hef-
ur sem betur fer losnað að
mestu við gereyöingarmátt nú-
tímaferöamanna, sem eyöilagt
hafa flestar perlur Miðjarðar-
hafsins. Þegar ég kom til þess-
arar yndislegu eyjar fyrir einu og
hálfu ári upplifði ég andrúmsloft
sem ég hélt aö fyrirfyndist ekki
lengur í Evrópu. Eina leiöin til aö
komast til eyjarinnar er meö
báti sem fer einu sinni á dag frá
borginni Formia og tekur sigling-
in um tvær klukkustundir. Þegar
komið er að eyjunni blasir viö
hreint ótrúleg klettasýn með
óteljandi hellum. Á Ventotene
búa um eitt hundrað manns og
hundraö til viðbótar yfir sumar-
tímann. Á Ventotene hefur tím-
inn staðiö í stað í aldir. Bygging-
arnar eru allar kalkaðar og mál-
aöar í Ifflegum litum og hvergi er
að ftnna beinan vegg heldur
hlykkjast allar byggingarnar ein-
hvern veginn áfram í undarlegri
samfellu. Enginn bíll er á eyj-
unni, enda göturnar það mjóar
aö erfitt væri um akstur. Á aðal-
torginu er að finna eitt veitinga-
hús, eitt kaffihús og einn bar.
Þar er einnig ein nýlenduvöm-
verslun, pósthús og lítiö hótel.
Annaö viðskiptalegs eðlis var
ekki að finna, enda þetta allt
sem þarf til að lifa lífinu í róleg-
heitunum. Eyjan er í raun aðeins
klettur í Miðjaröarhafinu en þar
er þó aö finna tvær góðar
strendur. Þar geta menn hagað
sér eins og þeim sýnist, enda
engin lögregla á svæöinu — og
engin þörf fyrir hana. Menn
klæða sig eftir smekk á strönd-
inni eöa þá bara skilja klæðin
eftir heima. Á Ventotene kemur
enginn og rukkar þig fyrir afnot
af strandbekk, þaö reynir enginn
aö fá þig til aö kaupa ís eöa
pranga einhverjum óþarfa upp á
þig. Og þar er enginn hávaöi
eða læti, aðeins alger kyrrö og
fegurð. Viö hlið Ventotene liggur
kletturinn St. Stefano. Einn dag-
inn baö ég starfsmann siglinga-
skólans að sigla meö mig yfir á
klettinn og var það auösótt,
en'da eru eyjarskeggjar meö ein-
dæmum liðlegir. Þegar aö klett-
inum var komiö tók við klifur
upp bjargið og þar blasti við
ótrúleg sjón. Rústir eldgamals
fangelsis, sem fasistastjórnin
notaöi fyrir pólitíska fanga, voru
þarna uppi á miðjum klettinum.
Fangelsið myndar hring meö
varðturni í miöjunni og í einni
álmunni var pyntingaktefi þar
sem fangar voru bundnir niöur í
járnrúm og Miöjarðarhafssólin
látin steikja þá gegnum gat í
þakinu. Á kletti þessum var
einnig aö finna klettaströnd og
klifruðum ég og ítalskur vinur
minn þar niður og syntum síöan
í átt aö bátnum. Á leiðinni til
baka trúöi hann mér fyrir því að
eyjan Ventotene hefði á tímum
Rómverja veriö notuö sem ástar-
nýlenda, en Sesar keisari látiö
loka henni eftir aö dóttir hans
fór aö nota hana einum of mikiö
fyrir sig og sína vini.
- EBE
Úrslitakeppnin í handbolta er hafin og áður en \arrí+
um líður verða nýir íslandsmeistarar krýndir. Gisli
Þorsteinsson ræddi við tvo af efnilegri handboltaköppum
landsins: þá Dag Sigurðsson úr Val og Aron Kristjánsson
úr Haukum, um vonbrigðin á HM, kynslóðaskiptin í
landsliðinu og þrætueplið eilífa: dómgæsluna...
Dómaramál eru
í miklum ólestri“
Dagur Sigurðsson, leikstjórnandi Vals:
„Deildarkeppnin hefur ekki verið nægilega
vel leikin. Vonandi fáum við að sjá betri
handbolta í úrslitakeppninni. Kynslóða-
skipti eru einnig greinileg hjá landsliðinu.
Ég, Olafur Stefánsson og Patrekur Jóhann-
esson erum hvað sem líður ungum aldri
þegar farnir að spila með landsliðinu og
von er á fleiri leikmönnum á næstu misser-
um.“ Mynd: Jim Smart.
Aron Kristjánsson, skytta í Haukum: „Það sem staðið hefur handboltan-
um hér heirna fyrir þrifum er slök markaðssetning. Handknattleiksforyst-
an hefur ekki náð að kynna íþróttina nægilega vel. Þá sýna sjónvarps-
stöðvarnar ekki nóg frá leikjum, hvorki hér heima né erlendis. Börn og
unglinga vantar fyrirmyndir í handboltanum. Þær er hins vegar að finna í
NBA.“ Mynd: Jim Smart.
Dagur Sigurðsson úr Val og
Aron Kristjánsson úr
Haukum eru þrátt fyrir ungan
aldur lykilmenn í liðum sínum.
Þeir segja að það megi rekja til
þeirra kynslóðaskipta sem nú
eru að verða í íslenskum hand-
bolta. Fjölmargir ungir leik-
menn eru nú að taka við sem
burðarásar í sínum liðum.
„Það tekur tíma fyrir unga leik-
menn að fá þá reynslu sem
eldri leikmennirnir búa yfir,“
segir Dagur. „Enda hefur deild-
arkeppnin ekki verið nægilega
vel leikin. Vonandi fáum við að
sjá betri handbolta í úrslita-
keppninni. Kynslóðaskipti eru
einnig greinileg hjá landslið-
inu. Eg, Ólafur Stefánsson og
Patrekur Jóhannesson erum
hvað sem líður ungum aldri
þegar farnir að spila með
landsliðinu og von er á fleiri
leikmönnum á næstu misser-
um. Ég get nefnt Pál Þórólfs-
son og Róbert Sighvatsson úr
Aftureldingu — og svo auðvit-
að hann Aron. Allir þessir leik-
menn spiluðu með 21 árs
landsliðinu sem lenti í þriðja
sæti á heimsmeistaramótinu í
Egyptalandi fyrir nokkrum ár-
um. Við vorum þá með ákaf-
lega gott lið og í raun klaufar
að lenda ekki ofar. Við töpuð-
um aðeins einum leik gegn
Rúmenum með tveimur mörk-
um. Það varð til þess að við
misstum af úrslitaleiknum á
markahlutfalli fyrir Egyptum,
sem urðu heimsmeistarar."
Vonbrígðin á HM
Nú tókst þú Dagur þátt í
HM á síðasta ári ogþargekk
íslendingum ekki eins vel og
búist hafði verið við...
„Gengi okkar í heimsmeist-
arakeppninni síðasta vor var
auðvitað mikil vonbrigði. Við
vorum með lið sem hefði átt að
komast mun ofar en við náðum
ekki að standa okkur nægilega
vel.“
Hver heldurðu að sé meg-
inorsökin fyrir slöku gengi
liðsins?
„Ég held að ein skýringin sé
sú, að sjálfsöryggi leikmanna
var ekki nægilega gott. Þjálfar-
arnir skiptu mikið um leik-
menn og enginn var viss um
sæti sitt í liðinu. Það olli óör-
yggi meðal leikmanna. Raunin
varð sú að enginn okkar lék af
eðlilegri getu nema helst Geir
Sveinsson, en hann var sá eini
sem var með fast sæti í liðinu.
Þá má ekki gleyma því að Júlí-
us Jónasson og Sigurður
Sveinsson meiddust fyrir
keppnina og voru kannski ekki
aiveg tilbúnir í þessi átök. Það
er eiginlega grátlegt að okkur
skyldi ekki takast betur upp,
því að allur undirbúningur var
til fyrirmyndar."
Slök dómgæsla
En hvað fannst þér að
öðru leyti um framkvœmd
keppninnar?
„Handknattleiksforystan
gerði vel, enda var keppnin
okkur fslendingum til sóma.
Engu að síður er margt hægt
að setja út á störf HSÍ. Dómara-
mál eru til dæmis í miklum
ólestri."
Aron: „Ég er Degi fyllilega
sammála. Af einhverjum sök-
um eru fáir sem leggja fyrir sig
dómgæslu, ekki síst ungt fólk.
Þá er merkilegt að margir af
þeim sem dæma í handbolta
hafa lítið æft handbolta og
hafa þar af leiðandi litla tilfinn-
ingu fyrir leiknum."
Dagur: „Það er ákaflega erf-
itt að læra að dæma eftir bók
og það tekur langan tíma fyrir
dómara sem lítið hefur æft
handbolta að skapa sér ein-
hverja reynslu á þessu sviði.
Dómurum er reyndar vorkunn
því það er vandmeðfarið að
dæma handboltaleik. í körfu-
knattleik eru reglur mun skýr-
ari og öll vafaatriði færri. Léleg
dómgæsla er ekkert sérís-
lenskt fyrirbrigði og ég hef orð-
ið vitni að slakri dómgæslu af
hálfu erlendra dómara. Þetta
er ákaflega bagalegt fyrir leik-
menn, sem vita aldrei hverju
þeir eiga von á frá dómurum.“
Aron: „íslenskir dómarar
eru nú ekki alvondir. Við get-
um nefnt Stefán Amaldsson
og Rögnvald Erlingsson svo
dæmi séu tekin. Þeir hafa sýnt
góða dómgæslu í vetur.“
Fyrirmyndirnar að
finna í NBA-deikfinni
Á undanförnum árum hef-
ur körfuboltinn orðið sífellt
vinsœlli meðal almennings,
ekki síst yngstu kynslóðar-
innar. Haldið þið að það
kunni að draga úr vinsœld-
um handboltans á komandi
árum?
Dagur: „Það fár sem var í
kringum NBA-deildina fyrir
nokkrum árum gerði mig
smeykan um að handboltinn
yrði undir í samkeppninni við
körfuboltann. Raunin hefur
orðið önnur og fjöldi iðkenda
síst minnkað — að minnsta
kosti hjá Val.“
„Er það ekki bara eftir að
við fómm að þjálfa?“ spyr Ar-
on Dag og glottir. „Eigum við
ekki bara að segja það,“ segir
Dagur.
Aron: „Það sem staðið hefur
handboltanum hér heima fyrir
þrifum er slök markaðssetn-
ing. Handknattleiksforystan
hefur ekki náð að kynna íþrótt-
ina nægilega vel. Þá sýna sjón-
varpsstöðvarnar ekki nóg frá
leikjum, hvorki hér heima né
erlendis. Börn og unglinga
vantar fyrirmyndir í handbolt-
anum. Þær er hins vegar að
finna í NBA-deildinni, sem Stöð
2 hefur sýnt mikið frá síðustu
ár.“
En hafa skemmtilegir leik-
menn á borð við Julian Duran-
ona ekki breytt einhverju þar
um?
Dagur: „Hann er ákaflega
skemmtilegur handboltamað-
ur sem fólk hefur unun af að
horfa á. Það má því segja að
hann hafi sett lit sinn á deild-
ina. Það má einnig nefna fleiri
erlenda leikmenn sem hafa
staðið sig vel eins og Dimitri
Filippov hjá Stjörnunni og Juri
Sadovski hjá Gróttu."
Litfi og stóri bróðir
En eruð þið sáttir við
frammistöðu ykkar liða í
vetur?
Aron: „Við Haukar spiluðum
vel fram að áramótum en náð-
um ekki að fylgja velgengninni
eftir. Undanfarið höfum við
verið mjög misjafnir, en erum
að reyna að vinna okkur út úr
þeim vanda. Við munum gefa
okkur alla í leikina við FH.“
innan
Að gera sér upp veikindi
Þegar timburmenn, ánetjandi áhugamál, starfs-
óánægja eða lamandi leti gera þér ómögutegt að
komast til vinnu á tilteknum degi, þá er eins gott að
þú hafir náð fullkomnu valdi á smáatriðum sem
skipta máli. Að öðrum kosti er hætt við að þú
skítfallir á lygamælisprófi yfirmanns þíns og allár
viðvörunarbjöllur taki að hringja glaðhlakkalega út
brottför þína frá fyrirtækinu. Helgarpósturinn kemur
lesendum sínum til bjargar og aðstoðar þá við að
nappa nokkrum aukafrídögum beint fyrir framan
nefið á yfirboðurunum. Svona gera atvinnumenn
sér upp veikindi:
Skemmdir endajaxlar
Frídagar: 1 til 3.
Undirbúningur: Kvartaðu jöfn-
um höndum hástöfum yfir
tannholdsbólgu, tannpínu,
hlustarverk og kjálkaþraut-
um. Boröaðu afar varfærnis-
lega. Best er að neyta ein-
ungis vökva og gera það á
eymdarlegan hátt.
Símatækni: Það losnaði loksins
rúm á deildinni eftir tveggja
ára bið og þú verður að
mæta undir eins í aðgerð.
Eftirleikur: Mættu deyfðarlegur
til vinnu meö svartar línur
undir augum (sem þú málar
á með maskara) sem um-
merki eftir uppskurð og
svæfingu. Litlir bómullar-
hnoörar hvor í sinni kinninni
eru stórkostlegir bólguvald-
ar.
Vandkvæði: Þegar alvöru enda-
jaxlar gera vart við sig örfá-
um dögum eftir „aðgerðina"
gæti komiö upp vandræða-
leg stund. Bómullarhnoðrar
gætu ennfremur dottið út í
hádegisverði með yfirmann-
inum.
Bólgnir hálskirtlar
Frídagar: 2 til 5.
Undirbúningur: Kveinkaðu þér
yfir sárindum í hálsi svo
mánuðum skiptir og hættu
að tala við fólk þar sem það
er of sársaukafullt. Skolaðu
hálsinn oft og á hávaðasam-
an hátt með saltvatni. Fækk-
aðu viðtölum og símtölum.
Símatækni: Segðu rámri röddu
(eftir að hafa vakað alla nótt-
ina viö reykingar og drykkju)
að eftir áralangar þjáningar
hafirðu loks ákveðið að láta
taka litlu djöflana.
Eftirleikur: Þurrt og brakandi
stökkt fæöi hefur komið í
stað hins hefðbundna
rjómaíss { kjölfar aðgeröar.
Borðaðu því mikiö af kexi og
tvíbökum með augljósan
sársauka í andlitinu.
Vandkvæði: Skyndilegar og
augljósar bólgur í hálskirtlun-
um eftir að þeir voru „teknir"
geta leitt til vandræðalegra
spurninga.
Bakverkur
Frídagar: 1 til 365.
Undirbúningur: Segðu öllum
starfsfélögunum að þú hafir
verið að hjálpa vini að flytja
yfir helgina. Minnstu síðan á
smávægilegt brak og smelli
neðarlega í mjóhryggnum.
Símatækni: Því miður ertu al-
gjörlega rúmfastur og getur
þig hvergi hrært. Læknirinn
heldur aö mögulega hafi
færst til liöþófi eða hryggjar-
liður brákast. Þolinmæöin sé
lykillinn að bata.
Eftirleikur: Hreyfðu þig af ýtr-
ustu varfærni og mjööög
hægt. Forðastu fyrir alla
muni aö taka hluti upp úr lít-
illi hæö. Láttu atvinnuveit-
andann útvega þér furðuleg-
an og sænskan lækninga-
stól til að krjúpa á sam-
kvæmt læknisráði. Liggðu á
gólfinu í matartímanum og
öllum pásum.
Vandkvæði: Þú getur fengið á
þig orð aumingja og ræfils
sem enginn þolir; jafnvel svo
að þú munir aldrei verða
nokkurs nýtur (eða nýt) til at-
hafna á skeiðvelli svefnher-
bergisins.
Inflúensa
Frídagar: 3 til 8.
Undirbúningur: Kvartaðu und-
an sótthita, eymslum í vöðv-
um; beinverkjum. Hlauptu
upp stigana, leggðu ennið
við ofn á afviknum stað og
fáðu einhvern háttsettan til
að koma við það og athuga
hvort þú sért meö hita.
Símatækni: Berðu þig aumlega
og hlæðu brjálæðislega til
skiptis. Lýstu hitasóttarsýn-
um í smáatriðum; öskraöu
óttablandinni röddu á skóna
þína og leggðu svo á.
Eftirleikur: Komdu einn dag til
vinnu og mættu síðan ekki í
tvo til þrjá daga eftir það.
Segðu að þú hafir verið með
Hong Kong-flensuna og sleg-
ið illilega niður.
Vandkvæði: Inflúensa er al-
gengur kvilli og flestir mæta
samt til vinnu. Allir munu
kenna þér um þegar þeir
veikjast; hversu alvarlegt
eða smávægilegt sem það
er.
Síþreyta
Frídagar: Óteljandi; fer eftir
ímyndunarafli þínu.
Undirbúningur: Kvartaðu yfir
ofþreytu, svefnleysi, höfuð-
verk, þunglyndi og almennu
magnleysi.
Símatækni: Segðu lækninn þinn
hafa greint einhvern nýjan og
furðulegan sjúkdóm hjá þér
og hann sé því sem næst
ólæknaniegur, en öll munum
viðjú deyja að endingu.
Mundu að stynja ótakmark-
að.
Eftirleikur: Mættu til vinnu og