Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 14.03.1996, Qupperneq 32

Helgarpósturinn - 14.03.1996, Qupperneq 32
HELGARPOSTURINN Erfitt hefur reynst að komast að kjarna þess máls hvers vegna Viðari Eggertssyni var sagt upp störfum sem nýráðnum leikhússtjóra Borgarleikhússins. Eins og hann segir sjálfur í viötali við HP telur hann ástæðuna þá að hann hafi farið inn fyrir þröskuld „hinna ósnertanlegu"; gömlu klíkunnar. Eftir því sem HP kemst næst má einkum rekja óánægjuölduna til uppsagnar Valgerðar Dan, eiginkonu Þorsteins Gunnars- sonar, leikara og arkitekts Borgarleikhússins, sem síðar var dregin til baka. Mun klíkunni hafa þótt það súrt í broti að Valgerði, sem fyrir nokkru slasaðist á sýningu hjá leikhúsinu og meiddist varanlega í baki, væri sagt upp störfum... Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hefur ÁTVR hafnað þeirri þeiðni umboösaöila fransks bjórframleiðanda að taka til sölu bjórkippur meö fjórum 250 ml flöskum. Ástæðan er sú að reglur ÁTVR, sem fjármálaráðuneytið hefur samþykkt, kveða á um að ekki megi selja minna en 1,5 lítra af bjór í einu, enda eru ís- lendingar ekki þekktir fyrir að vera að lepja einn og einn bjór í einu, eins og Frakkar, heldur hella almennilega I sig þegar þeir drekka á annað borö. Margir hafa velt fyrir sér hver sé ástæöa þessarar reglugerðar. Helsta niðurstaðan virðist vera sú að það sé óþjóðlegt að drekka svona lítið í einu og jafnvel óhollt að drekka minna en einn og hálfan lítra af bjór í einu... Pólverjar til íslands — íslendingar til Danmerkur og dönsk frystihús til Póllands. Þessa ágætu fyrirsögn er að finna í nýju blaði sem hefur hafið göngu sína á ísafiröi og heitir Vesfri. Það þarf raunar ekki að hafa fleiri orð um þetta. Fyrirsögnin segir allt sem segja þarf... TVTú stendur yfir alþjóðleg herferð Amnesty International vegna X\l mannréttindabrota í Kína. Forsýning á kvikmyndinni Dauða- maður nálgast (Dead Man Walking) verður í Háskólabíói í kvöld, fimmtudag, klukkan 21:00 og rennur allur ágóði til Amnesty. Með aðalhlutverk myndarinnar fara Sean Penn og Susan Sarandon. Á laugardaginn klukkan 14:00 veröur síðan opinn fundur íslands- deildar Amensty í Odda Háskóla íslands, stofu 101. Framsögu á fundinum hefur Nicholas Howen, yfirmaður lögfræðideildar Amnesty International. Einnig verða myndirnar Persecution in China og China and the Death Penalty sýndar. Fundarstjóri er Sigrún Asa Markúsdóttir, formaður Amnesty á íslandi... Helgarpósturinn telur óhætt að mæla með tónleikum karla- kórsins Heimis úr Skagafirði; hins eina sanna. Njótiö feg- urðar hinna hjarnbjörtu tenóra og flauelsmjúku bassa'á stór- skemmtun á Hótel íslandi á föstudagskvöld og svo í Háskólabíói klukkan fimm á laugardag. Heimir hefur ábyggilega brugðið sér borgarleið þrisvar á ári (að meðaltali) undanfarin ár, þannig að gestir á Hótel íslandi ættu að vera orðnir þaulvanir þessum skagfirsku stórbændum... Nýbýlavegi 10 200 Kópavogi RETTINGflR AUÐUNS Vönduð vinna unnin aðeins affagmönnum Þjónustuaðili fyrir ^TOYOTA' Seljum SÍkkBn5 hágæða lökk og undirefni. Einnig sprautukönnur á mjög hagstœðu verði. Setjum alla liti á spraybrúsa. Talaðu við okkur um BÍLARÉTTINGAR BÍLASPRAUTUN CAFF SóLON ISLANDUS Skólavörðustíg & Kringlunni Álag. Stress. Ofþreyta. Meira og minna hluti af daglegu lífi. Þess vegna Gericomplex. Sérstaklega samansett til að halda þér í líkamlegu og andlegu toppformi fram eftir öllum aldri. Gericomplex inniheldur yfir 20 vítamín og steinefni og hið frábæra Ginseng þykkni Ginseng G115. Áhrifin? Aukin líkamleg og andleg vellíðan. Bætt úthald. Árangurinn? Þú lítur vel út. Þér líður vel. Þú glæðir líf þitt lífi. Helgarpósturinn "bláð'húsiM^ artúni 27 Skrifstofur og afgreíðsla (opið 10-12 og 13-16): 552-2211 Ritstjórn: 552-4666 • Fréttaskotið: 552-1900 • Símbréf: 552-2311 • Auglýsingar: 552-4888

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.