Helgarpósturinn - 21.11.1996, Page 2

Helgarpósturinn - 21.11.1996, Page 2
2 a FIMMTUDAGUR 2L NÓVEMBER1996 ■. \ Hiö frómá heiti Fjölnir er vinnuheiti nýs menningarrits sem útgáfufyrirtækiö Bjartur hyggst gefa út í samvinnu við út- gáfufyrirtækiö Dœgradvöl og Stúdentablaðið. Allt bendir til aö ritið komi út snemma í desember í stóru upplagi, enda mun hug- S myndinni um slíkt menningarrit hafa veriö tekiö fádæma vel. Það er Gunnar Smári Egilsson, höf- undur Bessastaöabókanna, sem halda mun utan um blaöið en til liðs við sig hefur hann fengiö rit- höfundana Illuga Jökuisson, Braga Ólafsson og Þorvald Þor- steinsson, Egil Heigason sjón- varpsfréttamann, Þórhall Ey- þórsson málvísindamann og marga fleiri... Svava Johan- sen og Ásgeir Bolli Kristinsson, eigendur stórveld- isins 17 og margra annarra tískuverslana, eignuðust fyrir nokkru myndarleg- an son, sem er frumburður Svövu og þriöji sonur Ásgeirs Bolla. Þótt ekki sé búið að skíra soninn hefur kvisast út aö hann eigi aö heita I höfuðið á föðurn- um að fyrra nafni en seinna nafn- inu hefur hins vegar verið haldið vandlega leyndu... Skáld eru nú farin að rotta sig saman um að lesa upp úr verkum sínum víða um land. Á dögunum fóru til ísafjaröar ungu skáldin Jokulsdótt- Gerður 0 ir, sem i Kristný og báöar gefa 'n Andri jjjjt 'i. út hjá MM Snær m \ og eru tvær L\ Magnason í fylgd sér vmmx " ' A örfárra kvenna ■ ^ reyndari skálda á borö við Guðmund Andra Thors- son, Einar Kárason og fleiri hjá Máli og menn- ingu. Þá hefur fregnast að Ijóðskáldin Linda Vil- hjálmsdóttir og Elísabet sem gefa út bækur fyrir jólin, ætli í samvinnu við Braga Óiafsson, sem ný- lega gaf út einskonar smá- sagnasafn hjá Bjarti, að efna til ýmissa uppákoma í borginni. Sá síðastnefndi ætlar svo í „þverpólitískt" sam- starf við Haligrím Helgason, höfund 101 Reykjavíkur hjá MM, og Gunnar Smára Egilsson, sem sjálfur gefur út tvær bækur, Bessastaðabœkurnar og Máls- vörn mannorðs- morðingja, hjá eigin forlagi, Dægradvöl. Veröa þeir piltarnir með upplestur í menntaskólum og víðar... Þórarinn E. Sveinsson, yfir- læknir krabba- meinsdeildar Landspítalans og stjórnarmaöur í ÁTVR, er á önd- veröri skoöun viö formenn krabba- meinsfélaganna hér á landi Fyrir um sjö mánuðum eignuðust Jón Scheving Thorsteinsson og Ragnheið- ur Harðardóttir sitt fyrsta barn, hana Veru R. Jónsdóttur. Jón er markaðs- stjóri hjá Sól hf. og Ragnheiður lögfræðingur hjá dómsmálaráðuneytinu, þannig að mikið er að gera hjá þeim. Til þess að kynnast barni sínu betur ákvað Jón að taka Veru endrum og sinnum með sér í vinnuna. Nú hefur hann ákveðið að taka sér feðraorlof í desember og vera alfarið heima með henni Veru sinni. Blaðamanni Helgarpóstsins, Guðbjarti Finnbjörnssyni, sem eignaðist sittfyrsta barn á þriðjudaginn, lékforvitni á að vita hvernig hefði verið að hafa barnið með sér í vinnunni. Með barnið í vinnunni Krabbameinsfélag Islands varar við áformum um aukið frelsi í tóbakssölu. Vill afiiema □ □ □ 0 ríkisins átóbaki Að mínu viti á ríkið aðeins að sjá um tvennt þegar tóbak er annars vegar; í fyrsta lagi á það að stuðla að for- vörnum og í öðru lagi á það að sinna takmarkandi aðgerðum á tóbakssölu með reglugerða- smíð og lagagerð. Ríkisvaldið mun ávallt eiga í erfiðleikum með að sinna þessum reglum svo lengi sem það er einkaað- ili. Þetta hindrar eðlileg af- skipti ríkisvaldsins af forvörn- um,“ segir Þórarinn E. Sveins- son, stjórnarmaður hjá ÁTVR og yfirlæknir krabbameins- deildar Landspítalans, sem talar gegn samþykkt Krabba- meinsfélags íslands um að hefta beri tóbakssölu hér á landi. Reglur um innkaup ríkisins á tóbaki og áform þess um aukið frelsi í tóbakssölu eru nýmæli, en samþykkt for- mannsfundar Krabbameinsfé- lags íslands, sem haldinn var um síðustu helgi, gengur í ber- högg við slíkar tillögur. Á fundinum komust formenn krabbameinsfélaga hvaðan- æva af landinu að þeirri niður- stöðu að mótmæla beri nýjum reglum og áformum um aukið frelsi. Vara þeir við afleiðing- um slíkra áforma og telja að setja beri eins miklar skorður við tóbakssölu og frekast er unnt. Benda félagsmenn með- al annars á að fjölgun kaffi- húsa og breyttur lífsstíll ungs fólks hafi stuðlað að auknum reykingum hér á landi. Krabbameinsfélagið tekur hér í sama streng og ÍSÍ gerði á þingi sínu á Akranesi fyrir skömmu. ÍSÍ-þingið samþykkti þá tillögu að vara við þeirri hættu sem stafar af frjálsum innflutningi tóbaks, hann væri söluhvetjandi og veikti for- varnarstarf gegn vímuefnum. Þórarinn, sem áður sat í stjórn Krabbameinsfélags Reykjavíkur, mun því vera á annarri skoðun en forystu- menn Krabbameinsfélags ís- lands og margir innan heil- brigðisstéttarinnar, sem telja að ríkið eitt geti stuðlað að takmörkun tóbaksnotkunar. Hann sagði að stjórn ÁTVR hefði lagt til að kaleikur þessi yrði tekinn frá ríkisvaldinu þannig að það gæti snúið sér að eðlilegum verkefnum og forvörnum. Þórarinn telur það fullkom- lega eðlilegt að hann starfi sem stjórnarmaður hjá ÁTVR um leið og hann er yfirlæknir krabbameinsdeildar Landspít- alans. Hans markmið sé að stuðla að afnámi einokunar ríkisins svo það gæti hafið eðlilegar forvarnir. Ekki náðist í Guðrúnu Agn- arsdóttur, forstjóra Krabba- meinsfélags íslands, vegna þessa máls, þrátt fyrir tilraun- ir blaðsins. -gþ Eg fór mikið með barnið með mér í vinnuna hér áð- ur fyrr en er eiginlega hættur því núna,“ segir Jón. Var erfitt að fá pössunl „Neinei, þetta hefur ekkert með það að gera. Mig langaði bara að vera með henni. Eg á óskaplega góða vinnuveitend- ur sem fannst bara hið besta mál að leyfa mér að hafa barn- ið hérna. Það var virkilega skemmti- legt að hafa Veru hérna hjá mér í vinnunni, en ég gerði nú ekki mikið á rneðan," segir Jón og hlær mikið. „Ég lenti tölu- vert í að þurfa að biðja menn að hringja seinna því barnið væri farið að gráta. Ég var til að mynda að tala við England um daginn þegar hún fór að gráta. Eg kvaddi því mjög stór- an viðskiptavin okkar í skyndi, sem trúlega hefur heyrt grát- inn en ekki skilið hvað var að gerast. Það fór svolítið fyrir brjóstið á Bónusfeðgum að heyra grát í hvert sinn sem þeir hringdu, — eins Nóatúns- bræðrum,“ segir Jón og hlær aftur. „Starfsfólkið tók barninu vel og var alveg yndislegt. Allir vildu koma og kíkja á stelpuna, strákarnir Iíka. Hún Vera mín bræddi hjörtu allra hérna í vinnunm. Ég hef stefnt að því að taka feðraorlof í desember. Vanda- málið verður trúlega að ég verð í símanum heima allan tímann, ég er í þannig starfi," segir Jón og hlær. „Allir starfs- menn deildarinnar eru með lít- inn GSM-síma og allir kaup- menn í símafæri þannig að nóg verður að gera hjá mér heima. Eins er ég tengdur fyrirtækis- tölvunni heima þannig að þeg- ar barnið sefur læðist ég í tölv- una. En ég ætla svo sannarlega að taka mér feðraorlof og hlakka rosalega til að vera heima með barnið. Starfið hef- ur alla tíð verið stór hluti lífs míns, enda hef ég unnið mikið. En mér finnst það ómögulegt að vakna upp eftir tuttugu ár og þekkja ekkert annað en vinnuna. Ég vil ekki missa af fyrstu mánuðum barnsins míns og hlakka eins og ég segi mikið til að vera heima,“ segir Jón að lokum. Eftir samtalið hugsaði blaða- maður með sér hvort ekki væri sniðugt að spyrja ritstjórann hvort hann mætti ekki koma með barnið í vinnuna. En þá yrðu menn fyrst að hætta að reykja á skrifstofum Helgar- póstsins. „Hlakka mikið til að vera lieima með hana Veru litlu," segir Jón Scheving Thorsteinsson. Bankastjórnir Landsbanka og Búnaðarbanka brjóta kjarasamninga: Ráða í stöður án þess að þær séu auglýstar „Ákvæði kjarasamninga um nýráðningar hafa verið brotin hjá Búnaðarbankanum að und- anförnu. Við mótmæltum með- al annars niðurstöðu stjórnar- innar þegar hún réð Þorstein Þorsteinsson sem fram- kvæmdastjóra en fengum þau svör að sú staða hefði einfald- lega komið upp að ekki hefði verið hægt að auglýsa hana. Hugsanlega hafa þessir gern- ingar bankastjórnarinnar verið túlkaðir sem mistök, en menn greinir augsýnilega á um hvað beri að auglýsa og hvað ekki,“ segir Friðrik Halldórsson, for- maður starfsmannafélags Bún- aðarbankans. Óánægju gætir meðal starfs- manna Búnaðarbankans vegna ráðningar Þorsteins í stöðu framkvæmdastjóra, en það er ekki eina staðan innan banka- kerfisins sem ráðið hefur verið í með slíkum hætti að undan- förnu. Fyrir nokkru réð banka- stjórn Landsbankans til sín starfsmann án þess að staðan væri auglýst. Samkvæmt kjara- samningum bankastarfsmanna ber að auglýsa allar stöður sem lausar eru, en menn innan bankastjórnar Landsbanka og Búnaðarbanka eru greinilega ekki á þeirri skoðun. „Þetta er búið og gert, en starfsmannafélag Búnaðar- bankans hefur lagt á það áhersiu við stjórn bankans að svona komi ekki fyrir aftur. Það er athyglisvert að á tiitölu- lega skömmum tíma hefur það gerst að bæði Búnaðarbankinn og Landsbankinn hafa ráðið í stöður innan bankanna án þess að þær séu auglýstar lausar tii umsóknar. Starfs- mannafélög þessara banka munu fylgjast náið með því á næstunni hvort bankastjórnir halda áfram að ráða í stöður með sama hætti og ef slíkum málum fjölgar munum við reyna að bregðast við með ein- hverjum hætti.“ Vihelm G. Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Sambands ís- lenskra bankamanna, sagði það hafa færst í vöxt undan- farna mánuði að bankar réðu til sín starfsfólk án þess að auglýsa stöðurnar lausar. Benti hann meðal annars á Búnaðarbankann og Lands- bankann sem dæmi og sagði að Samband bankamanna hefði gert athugasemdir við stöðuráðningar þar á bæ. Ekki náðist í neinn stjórnar- mann í Búnaðarbanka eða Landsbanka. — gþ

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.