Helgarpósturinn - 21.11.1996, Side 23

Helgarpósturinn - 21.11.1996, Side 23
FIMMTUDAGUR 2L NÓVEMBER1996 u 23 Ekki missa Beajolais er þegar best lætur eitthvert berjaríkasta og ilm- besta víniö af öllu rauövíni. i nótt var boðið upp á kynningu á nýju frönsku rauðvíni, Beaujola- is Nouveau, á Kaffi Reykjavík, en fyrsti söludagur vínsins er í dag. Og þá er um að gera að skella sér í Ríkið í dag, það er að segja ef þú ert ekki alkóhól- isti. Venjuleg vandamál venjulegs fólks Nú fer hver aö verða síðastur að sjá leikritið Stalín erekki hér, sem Leikfélag Hafnarfjarð- ar hefur sýnt að undanförnu. Leikritið hefur ekki oft veriö sett á svið síðan það var frumsýnt 18. nóvember árið 1977, en margir muna ef- laust eftir flutn- ingi þess í sjón- varpinu 1985. Þrátt fyrir pólit- ískt nafn er meg- inviðfangsefni leikritsins venju- leg fjölskylda sem nær ekki að vinna úr venjulegum vanda- málum. Verkið passarvið alla tíma og þótt umræðan um Stalín kallinn sé ekki lengur í gangi þá á hún sér hliðstæður í pólitíkinni í dag. Sýningar eru í Bæjarbíói í Hafnarfirði og er þriðja síðasta sýning í kvöld. Þrjátíu þúsund hringt í trúnaðarsíma Rauða krossins Nú er rúmur áratugur síöan Rauðakrosshúsið tók til starfa. í tilefni af afmæiinu verður boð- iö upp á málþing sem ber yfir- skriftina „Starfsemi Rauða krossins í þágu ungmenna í vanda". Á málþinginu, sem verður haldið á Hótel Loftleiö- um á föstudaginn, verður fjallað um hvernig fyrsti áratugurinn í starfsemi Rauðakrosshússins hefur gengið. Aö sögn Ólafar Helgu Þór, forstöðumanns hússins, er starfsemin þríþætt. í fyrsta lagi er rekið neyðarat- hvarf, en um eitt þúsund ung- menni hafa notfært sér aö- stöðu athvarfsins frá byrjun. Þá hefur verið hringt um þrjátiu þúsund sinnum í trúnaðar- símann á átta árum og í þriðja lagi geta börn og unglingar komið í ráðgjöf í húsið. „Það var lagt af stað í byrjun út frá þeim áhyggjum ráðamanna í þjóðfélaginu að æska þessa lands væri sokkin í mikla eitur- lyfjaneyslu, en upphaflega var húsið sett á laggirnar fyrir unga vímuefnaneytendur," segir Ólöf. „Reyndin hefur síðan verið sú að börnin okkar eiga líka í öðr- um erfiðleikum en neyslu. Áfengis- og vímuefnanotkun er oft birtingarform erfiðleikanna. Við leysum mikinn vanda með því aö koma í veg fyrir að ungt fólk fari að nota vímuefni, en það eru mörg önnur vandamál unglinga sem mikilvægt er að leysa. Þetta ásamt mörgu fleiru verður rætt um á máiþinginu." Þátttaka á málþinginu er ókeypis og öllum heimil. Sjúkraliðar þrítugir Sjúkraliðafélag Reykjavíkur er þrítugt um þessar mundir og af því tilefni ætla sjúkraliöar, sem eru um 3.000 að tölu, að halda ráðstefnu um heilbrigðisþjón- ustuna. Ráðstefnan verður á Hótel Loftleiðum á föstudaginn. Meðal þeirra sem ávarpa ráð- stefnugesti eru Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráð- herra og Ólafur Ólafsson land- læknir. Eitt sinn pönkari, ávallt pönkari Hljómsveitin Q4U sendi nýlega frá sér plötu sem nefnist Q tvö. Að vísu má deila um hvort plat- an sé ný, því hún var tekin upp fyrir þrettán árum en er fyrst aö koma í verslanir núna. Þrettán ár eru síöan hljómsveitin lagði upp laupana, en þráðurinn var tekinn upp að nýju fyrir um ári á tónleikum f Loftkastalanum. „Það lá í loftinu að við myndum byrja með hljómsveitina aftur,“ segir Ámi Daníel Júlíusson, hljómborðsleikari Q4U. „Það má kalla tónlistina okkar goth- pönk, sem er viss tegund af pönkinu sem komst aldrei hing- að til lands. Þar eru hljómborð meira notuð. Goth-pönkið er svolítiö skylt nýrómantíkinni, sem blómstraði á svipuðum tíma og pönkið. í dag er hægt að segja að við séum meira undir áhrifum frá grunge-tónlist- inni, en að mfnu mati er grunge bara pönk undir nýju nafni. Það er mikill áhugi fyrir pönkinu núna, trúlega vegna vinsælda grunge-tónlistarinnar f Amer- Hilílíilíplilflilíl íku.“ Þrjátíu og fjögur lög eru á plöt- unni, eins og segir allt frá fyrri árum. „Viö vorum tilbúin með plötu árið 1983 en fengum eng- an útgefanda. Síðan fundum við nokkrar segulbandsspólur með gömlu efni, þannig að okk- ur fannst tilvalið að gefa bara út plötu með öllum þessum lög- um. Við fórum með efnið í hljóðver þar sem allt var mixað upp á nýtt og hreinsað, þannig að hljóðið er gott. Mér finnst þessi tónlist hafa elst vel þann- ig að gömlum og nýjum pönkur- um og grungurum ætti að líka tónlistin vel." Útgáfutónleikar eru í Ró- senbergkjallaranum á föstudagskvöld og verður þar trúlega sannkölluö pönkstemmning, þó svo að margir séu komnir með hefðbundnari hárgreiðslu og í mesta lagi með lokk í eyra. „Við höfum öll mjög gaman af þessu og gerum þetta algerlega ánægjunn- ar vegna. Þrátt fýrir að við séum öll orðin svona ráð- sett erum við pönkarar í hjarta okkar," segir Árni að lokum. Leikfélag Akureyrar sýnir á af- mælisárinu. Meðal annars úr leikritunum Sigrúnu Ástrósu, sem frumsýnt var f september sfðastliönum, Undir berum himni, sem enn er verið að æfa, og síðast en ekki síst veröa sýndir kaflar úr leikritinu Vefaranum mikla frá Kasmír, sem verður afmælissýning LA. Leikur á gítar Unnendur gítarleiks ættu að hópast í íslensku óperuna á þriðjudagskvöld, því þar verður einn helsti gítarleikari íslend- inga, Kristinn H. Arnason, meö tónleika. Þetta eru síöustu tónleikar styrktarfélags ís- lensku óperunnar á þessu ári. Kristinn hefur hérlendis sem er- lendis fengið prýðisgóða dóma fyrir túlkun sfna á helstu meist- araverkum gítartónlistar. Nýr geisladiskur með gítarleik Krist- ins er væntanlegur í verslanir á næstunni, en fyrir ári gaf hann út sinn fyrsta geisladisk, sem hvarvetna hefur hlotið góða dóma. Hver er fallegust? Nú er hafin leit að fallegustu stúlku Reykjavíkur, en sú heppna, sem kosin verður „Ungfrú Reykjavík", tekur þátt í Fegurðarsamkeppni íslands og Ford Models 1997-keppninni, sem haldnar verða f maí á næsta ári. Að sjálfsögðu er öll- um reykvískum stelpum vel- komið að senda inn umsókn, eina skilyröið er að líkaminn sé fagur og ekki of feitur. Allt ann- að er aukaatriði, eins og til að mynda gáfur, persónuleiki og hugarfar. Umsóknareyðublöð liggja meöal annars frammi í skólum og líkamsræktarstöðv- um. Páll Óskar í Tunglinu og Fellahelli Stuðboltinn Páll Óskar Hjálm- týsson, sem sumir segja aö muni verma toppsætið f plötu- sölu [áessara jóla ásamt Emilíönu litlu Torrini, verður með stuðtónleika á laugar- dagskvöld í Tunglinu. Palli hefur undanfarið farið sem eldur í sinu um allt Reykjavfkur- svæðiö og sungiö sig hásan við að kynna nýju metsöluplötuna sfna, Seif. Til að mynda er vitað af hon- um í Fellahelli næstu helgi. Vonandi mun röddin ekki bregðast honum á þessum út- gáfutónleikum. Ef það gerist ekki má búast viö tryllt- um dansi og sveittum Ifkömum í Tunglinu á laugardagskvöld. LA áttrætt í tilefni af áttatfu ára afmæli sínu ætlar Leikfélag Akureyrar að heimsækja höfuðborgina í fyrsta sinn og halda glæsilega afmælisveislu f kjallara Þjóð- leikhússins á mánudagskvöld. í afmælinu verða sýndir valdir kaflar úr nokkrum verkum sem BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR BORGARTÚNI 3 • 105 REYJKAVÍK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Kynning á tillögu að breyttu skipulagi lóðarinnar Dalbraut 16 Tillagan verður til sýnis í kynningarsal Borgar- skipulags og byggingafulltrúa að Borgartúni 3, 1. hæð, kl. 9:00 - 16:00 virka daga Kynningin stendur til 6. desember 1996 Ábendingum eða athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags, Borgartúni 3, 105 R., eigi síðar en föstudaginn 6. desember 1996. Þegar harðnar á dalnum slást smáfuglamir Um daginn lærði ég nýja jöfnu. I Hún er svona: Nekt = I vændi = eiturlyf. Á ■T- ég að þora að trúa þessu? Hefði Pýþa- góras ekki nefnt þessa jöfnu ef henni hefði verið treystandi? Held ég ekki bara áfram í vinn- unni? Eða geng ég vongóð í Sókn? Félagsmálaráðuneytið hefur orðað það að leita eftir um- sögn Sóknar varðandi það, hvort nektardans sé list, og sé svo ekki, hvort ekki fáist þá innlendar verkakonur til starf- ans. Ég styð þessa hálfköruðu ákvörðun ráðuneytisins og vona að Sókn hygli hag skjól- stæðinga sinna og þvertaki fyr- ir að það sé einhver list að klæða sig úr, það geri flestar félagskonur þeirra á hverju kvöldi. Þá verður falslistamönnun- um vísað úr iandi og Sóknar- konur, ásamt öðrum illa laun- uðum innlendum starfskröft- um, geta yfirtekið geirann. Þar sem þetta er ekki list er ekki ástæða til að senda konurnar í ballettskóla, það nægir að vinsa þessar innskeifu úr. Þær sem eftir yrðu færu beint í hæsta launaflokk nektardans- meyja, því flestar hafa þær þegar unnið, sumar til áratuga, við umönnunarstörf. Með þessu yrði nektardans- inn færður nær íslenskum veruleika. Konur úr Sókn gætu dansað Skúringadansinn, þar sem þær drægju af sér gúmmí- hanskana með lostafullu lát- bragði, smokruðu sér úr sjúkrasokkabuxunum og létu að skrúbbnum með ólíkindum. Konur sem misst hafa vinnu í heilbrigðiskerfinu gætu tekið Ellismellinn, þar sem týndar tennur ellilífeyrisþega kæmu á eggjandi hátt í stað spænskra kastaníetta, aðrar gætu slegið taktinn á bekken og enn aðrar — og þetta atriði gæti orðið út- flutningsvara eins og annar hugbúnaður — gætu klætt sig í, en ekki úr, einnota gúmmí- hanska á þann hátt, að áhorf- endum dytti ýmislegt í hug. Konur úr kvótalausum firði gætu dansað á gúmmísvuntu einni fata, altént framan af at- riði, og gælt við golþorsk. Sjó- mannsekkjur gætu spriklað um sviðið sveipaðar fiskinet- um í boði Hampiðjunnar. Þær konur sem mest þyrftu á þess- Öfgamál Auður Haralds skrifar ari nýsköpunaratvinnu að halda yrðu á þeim aldri, að þeim léti bezt að dansa skottís eða polka og einnig það væri séríslenzk nýlunda, mögulega útflutningstæk. Hvað varðar vændið, sem óhjákvæmilega á að fylgja auknum atvinnumöguleikum „Konur úr Sókn gætu dansað Skúringadansinn, þar sem þær drægju af sér gúmmíhanskana með lostafullu látbragði, smokruðu sér úr sjúkra- sokkabuxunum og létu að skrúbbnum með ólíkindum.“ kvennanna, þá fæ ég ekki bet- ur séð en þær hafi þegar stundað vændi lungann af æv- inni. Vændi skilgreinist svo: Að selja afnot af líkama sínum í ábataskyni. Hvað erum við að gera þegar við förum í vinn- una, nema selja afnot af okkur? Að vísu er ekki hægt að væna Sóknarkonur eða aðrar verka- konur um að hafa gert það í ábataskyni, því launin sem þær fá fyrir sölu á öllum líkam- anum geta ekki talist ábati. Það gegnir eilítið öðru máli með eiturlyfin, en ég tel fráieitt að konurnar hafi eitthvað frek- ar tíma til að anna kaupsýslu meðfram fullu starfi sem nekt- ardansmeyjar, húsmæður og uppalendur en þær höfðu á meðan þær unnu á Grund. Þegar harðnar á dalnum er aðeins eðlilegt að vernda at- vinnuvegina fyrir erlendum innrásum. Komum þessum út- lendu sílikontelpum úr landi og kennum strákunum að kaupa íslenzkt. Gefið íslenzkum húsmæðr- um tækifæri! spurt... Efþú fengirað ferðast hvertsem erí tíma og rúmi, hvert mundirðu þé fara? Vala Þórsdóttir leikkona „Ekki neitt, ég mundi bara vilja vera hér og nú. Ég er svo ósköp ánægð meö lífið og til- veruna í dag. Það er ekkert sérstakt tfmabil sem mig langar að fara til aftur á bak og fram I tímann get ég ekki ímyndað mér hvað ég ætti aö sjá. — Nei nútíminn er fínn, ég hef það bara fínt og vil ekki gera neitt annaö en ég er að gera núna.“

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.