Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 09.01.1997, Qupperneq 4

Helgarpósturinn - 09.01.1997, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1997 • í vikunni var átján ára piltur sýknaður af meintri nauðgun á sautján ára stúlku. Sönnur voru ekki taldar nægar til að sakfella piltinn, sem allan tímanny bar við sakleysi. Sekur eða „í þessu máli eru hans orð tek- in trúanlegrí en hennar. Þetta er engin ný frétt fyr- ir okkur, en oftast er það þannig að þegar orð er gegn orði virðist sem oftar sé tekið mark á meintum geranda," seg- ir Sigríður Marteinsdóttir, ráð- gjafi hjá Stígamótum. „í þessu tilviki fer stúlkan á neyðarmót- tökuna og læknirinn ber að hún hafi verið með áverka á hendi, merki þess að það hafi verið tekið þéttingsfast í hand- legginn á henni. Eins segir læknirinn að hún hafi verið í sjokkástandi þegar hún kom til þeirra, sem þýðir að hún hafi lent í mjög slæmri reynslu. Það sem mér finnst athyglisverðast er að að dómurum skyldi finn- ast áverkar óverulegir. Miðað við hvernig við hér á Stígamót- um skiljum þetta þá er um nauðgun að ræða þegar stúlka neitar að hafa samræði. Það skiptir ekki máli þótt hún sé orðin nakin. Ég tel mig sem ein- stakling hafa rétt á því að segja nei, þó svo komið sé að sam- förum. Það er minn réttur — karlmaðurinn hefur ekki rétt á að taka völdin í sínar hendur. Það skiptir ekki máli hvort kon- an klæddi sig sjálf úr fötunum. Hvað gerir ung stúlka sem er ein með karlmanni sem vill fá vilja sínum framgengt? Hann er yfirleitt stærri og sterkari. Því er niðurstaðan í þessu ein- staka máli ekki rétt að okkar mati. Reynsla okkar af konum sem orðið hafa fyrir nauðgun sýnir að það er erfitt að ganga í gegnum svona rannsókn; fara upp á neyðarmóttöku, fara í gegnum yfirheyrslur, skýrslu- tökur og þvíumlíkt. Það kærir enginn nauðgun nema ástæða sé fyrir því. Það liggur í augum uppi að dómsvaldið fer alltof vægt í þessar sakir og það er grátlegt. Ef dæmt er þá eru dómarnir alltof vægir eða sak- borningurinn sleppur. Okkur finnst þetta grátlegt og sýknu- dómurinn yfir stráknum er hreint og klárt slæmur að okk- ar mati.“ E„Ég þekki ekki blaðaskrifum, en um að það þarf að sanna sök á hendur hinum ákærða,“ segir Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlög- maður. „Það er eins gott, því réttindi manna til þess að vera taldir saklausir þar til sekt er sönnuð með lögfullri sönnun eru sjálfsögð mannréttindi og varin í Mannréttindasáttmála Evrópu og í íslensku stjórnar- skránni svo dæmi séu tekin. Þetta á við um öll afbrot; kyn- ferðisafbrot, líkamsárásir og svo framvegis. í sakamálum getur oft verið erfitt að færa sönnur á sekt og ef það tekst ekki verður að sýkna. Það er það sem felst í reglunni um að hver maður skuli teljast saklaus þar til sekt hans er sönnuð. Eins og ég segi þá þekki ég ekki þetta tiltekna mál, en það er greinilegt að dómararnir hafa talið að ákæruvaldinu hafi ekki tekist að færa fullar sönnur á sekt piitsins. Þá er guði fyrir þakk- andi að hér á landi gildir sú mannréttindaregla að þegar ekki hefur tekist lögfull sönnun þá ber að sýkna menn.“ Hr. Ledurmadur og amerískur auðkýfingssonur opna Internetkaffi hyrirnugad er ao utDua utia tjorn i nusagaroin- um hjá Vegamótastíg 3 og nýta svæðið fyrir úti- markað og uppákomur. Húsin á að gera upp. Par sem rottum og öðrum meindýrum eru nú brugguð launráð á vegum borgarinnar ætla tveir ungir menn, Róbert G. Róbertsson og Frank W. Sands, að stofnsetja Netkaffihús. Þeir keyptu Vega- mótastíg 3, þar sem meindýraeyðir er nú til húsa, af borginni fyrir skemmstu á átta milljónir króna. Róbert og Frank hafa hingað til ekki verið mjög áberandi í ís- lenskum viðskiptaheimi. Róbert er skrúðgarðameist- ari, helst þekktur fyrir að sjá um jólatrésskreytingar á húsveggjum við Laugaveg og að hafa unnið titilinn „Hr. Leðurmaður" í Hollandi. Félagi Róberts, Frank W. Sands, er ungur og sterkefnaður Bandaríkjamaður, kvæntur íslenskri konu, og hafa þau hjón verið búsett hér á landi í skamman tíma. Frank er nú staddur erlendis í fríi en að sögn Ró- berts er hann auðkýfingssonur og mikið tölvuséní. Frank hefur áhuga á að fjárfesta hér á landi og hefur einnig keypt gamla ísafoldarhúsið. Ingvar Þórðarson, einn eigenda Loftkastalans og Kaffibarsins, mun einn- ig koma við sögu í fyrirhugaðri starfsemi. Róbert seg- ir húsin á lóðinni ákaflega illa farin og þau þurfi að endurnýja að öllu leyti að innan. í bígerð er að útbúa litla tjörn í húsagarðinum og fegra hann með gróðri. Róbert segir hugmyndina þá að í húsunum verði einn- ig verslanir og húsagarðurinn muni nýtast fyrir úti- markað og ýmsar uppákomur. Hann kveðst hafa fleiri hugmyndir sem muni bæta og lífga mannlíf í miðbæ borgarinnar en kveðst ekki geta greint frá þeim að svo stöddu. Bætt mannlíf eða drykkjubúlla? Nokkur styr hefur staðið um þetta mál í borgarkerf- inu og lýstu borgarráðsfulitrúar Sjálfstæðisflokks sig ósátta við það hvernig staðið var að sölu eignarinnar. Þeir töldu eðlilegra að eignin væri auglýst og tilboða leitað því fleiri aðilar hefðu sýnt henni áhuga. Rök- semd borgarstjóra er aftur á móti sú að þeir sem sýnt hafa frumkvæði og lagt fram raunhæfar hugmyndir um nýtingu lóðarinnar eigi að fá að njóta þess. Að auki falli þessar hugmyndir að stefnu borgarinnar um að auðga manniíf í miðbænum. Fyrr á síðasta ári sendi Oddur C.S. Thorarensen, apótekari í Laugavegsapóteki, sem liggur samhliða Vegamótastíg 3, bréf til borgaryfirvalda þar sem hann mótmælir áformum um að eignin verði seld Róbert G. Róbertssyni. í bréfinu kemur fram að Oddur hafi af því sérstakar áhyggjur að Róbert hyggist setja upp : Róbert G. Róbertsson segir að eftir að hafa fylgst með vinnubrögðum sjálfstæðismanna í þessu máli þurfi þeir ekki að reikna lengur með sínu atkvæði í kosningum. eina „drykkjubúlluna" í viðbót í hverfinu. Að hans mati væri það meiri háttar slys, bæði fyrir sig per- sónulega, þar sem hann býr í aðliggjandi húsi, sem og fyrir aila þjónustu Laugavegsapóteks, m.a. vegna inn- brotahættu. Hann telur þetta einnig skaða fyrir um- hverfið allt, því þetta yrði sjöunda eða áttunda verts- húsið á svæðinu Klapparstígur/Bergstaða- stræti/Smiðjustígur. Hann hótar því að mótmæla harðlega við Reykjavíkurborg að veitingaleyfi verði veitt á þessum stað. Einnig fer Oddur fram á að fá að kaupa eignina. Hann segir í samtali að faðir sinn, sem áður var lyfsali í Laugavegsapóteki, og síðar hann sjálfur, hafi í marga áratugi reynt að fá eignina keypta. Sín hugmynd hafi verið sú að byggja við apótekið á lóðinni eða gera þar bílastæði, sem stöðug vöntun sé á í miðbænum. Oddur kveðst þó ekki ætla að halda mótmælunum til streitu; hann sé einfaldlega orðinn hundleiður á málinu, hinum nýju kaupendum og borg- arstjórn og hugleiðir jafnframt að selja apótekið og húseign sína við Laugaveg. Oddi var nýverið neitað um breytingar sem hann vildi gera á húseign sinni við Laugaveg og kveðst hafa heyrt að borgarstjórn sé að hegna honum fyrir mótmælabréfið. Hann bætir því við að lokum að sér finnist í hæsta máta óeðlilegt að vildarvinum borgarstjóra sé úthlutað lóð á kostakjör- um meðan hann og fleiri sem svipað er ástatt um — fólk sem hafi lifað og starfað í miðbænum allt sitt líf — séu ekki einu sinni spurðir álits. „Borgarstjórn hvetur til þess að byggðar séu íbúðir á efri hæðum húsa í miðbænum en veitir jafnframt vínveitingaleyfi í gríð og erg. Það sér hver heilvita maður að barir og fyllerí eiga ekki heima í miðju íbúðarhverfi.“ Ekki næturklúbbur Róbert segist hafa borið fram hugmyndir um nýt- ingu eignarinnar fyrir tveimur og hálfu ári og að marg- ir, sérstaklega sjálfstæðismenn, hafi reynt að tefja málið og draga það á langinn. Finnst honum þetta — sem og fullyrðingin um að hann sé vildarvinur borgar- stjóra — ákaflega skondið í ljósi þess að hann hafi gegnum tíðina fylgt Sjálfstæðisflokki að málum. Hann bætir því við að þeir þurfi ekki að búast við sínu at- kvæði eftir að hafa fylgst með vinnubrögðum þeirra í þessu máli. Róbert segir einnig að sér finnist með ólík- indum hve erfitt sé fyrir ungt fólk að fá tækifæri í þessu þjóðfélagi og í ljósi þess sé hann enn ánægðari með málalok. Róbert segir þær áhyggjur Odds að þarna rísi enn ein drykkjubúllan ekki á rökum reistar. „Vissulega viljum við fá vínveitingaleyfi, — kaffihús ganga ekki öðruvísi nú til dags. Aftur á móti hefur það sýnt sig að sérhæfð kaffihús, eins og t.d Bókakaffi og Veraldarvefjarkaffi, eru ekki staðir þar sem fólk kemur saman til að drekka sér til óbóta. Það er ekki meining- in að þarna verði bar sem er opinn til klukkan þrjú á nóttunni," segir Róbert. I\leðanmáls Leikstjórinn Friðrik Þór Friðriksson varfýrir skömmu valinn einn af tíu valdamestu mönnum kvikmyndaiönaöarins á Noröurlöndum af kvikmyndatímaritinu Screen International. Sú frétt kemur trúlega ekki mörgum á óvart hér á íslandi, enda vita flestir íslendingar aö Friðrik Þór er afburöakvikmyndageröarmaöur og ætti í raun löngu aö vera búinn aö fá að spreyta sig á múltímilljóndollara-Hollí- vúddkvikmynd. Þaö kemur trúlega aö því aö hann Friðrik okkar slái virkilega í gegn úti í hinum stóra heimi. En hvernig er aö vera oröinn svona valdamikill Friörik? „Ja, þaö er góöur djókur," segir leikstjórinn og hlær í símann. Hvaða listamaður hefur haft mest áhrif á þig? Þórbergur Þóröarson. Hvaða stjórnmálamaður lifandi eða látinn er í mestu uppáhaldi hjá þér? Stjórnmálamaður? Úúúúbbaaaahhh... Trotskí. Hvaða skáldsagnapersónu vildirðu helst líkjast? Snæfríöi íslandssól. Neinei, ég var bara aö grínast. Ég er svolítiö stress- aöur þessa stundina. Ummmm... James Bond. Hvaða persóna mannkynssögunnar vildirðu helst hafa verið? Já, það er góö spurning. Baabaaabaa, Heyröu, þetta er nokkuð erfitt hjá þér. Öhhhhh, Eiríkur Magnússon. Hann var presturí Kaupmannahöfn og var bannfæröur. Ef þú fengir að lifa lífinu aftur myndiröu þá breyta einhverju? Nei, ég myndi ekki breyta neinu. Lífiö er bara nokkuð gott. Hver er merkilegasti atburður sem þú hefur upplifaö? Ætli það sé ekki jarðarför Stefans Winsky. Hún var í Póllandi, rétt áöur en herlögin voru sett. Stefan var nokkurs konar guöfaöir Samstööu. Þaö voru um fimmtán milljónir manna viö jaröarförina. Hver er merkilegasti atburðurinn sem þú ætlar aö upplifa? Púffúffúff. Ég veit þaö nú ekki. Þaö væri nú gaman aö fara upp á sviö og taka viö Óskarnum. Hvaða atburður, verk eða manneskja hefur mótað lífsviðhorf þitt framar óðru? Jaahhhh, ætli þaö sé ekki bara Siguröur Filippusson, Eldsmiöurinn. Þaö er fyrsta myndin sem ég geröi. Ef þú ættir kost á að breyta einu atriöi í þjóðfélaginu eða umhverfinu, hvað yrði fyrir valinu? Ég myndi nú vilja breyta helvíti mörgum atriðum. Ég myndi setja veiöi- gjald og svo hætta aö greiða með landbúnaöarvörum til þeirra sem hafa önnur hlunnindi eins og laxveiöiréttindi. Séröu eitthvað sem ógnar samfélaginu öðru fremur? Ég sé skammsýnisgróðasjónarmiö. Gott dæmi um það í dag er stór- iöja. Ég held aö besta fjárfesting okkar sé aö hafa landiö ósnortiö. Mottó? Aldrei aö ná árangri.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.