Helgarpósturinn - 09.01.1997, Page 8

Helgarpósturinn - 09.01.1997, Page 8
HVlTA HÚSIÐ / SfA 8 m RMMTUDAGUR 9. JANÚAR1997 V -------------------------------------------------------------.--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- ' ■" \ v K . : X ar M Um leið og við óskum landsmönnum gleðilegs árs viljum við minna á nokkur atriði sem máli skipta á árinu 1997. Sumt er þar óbreytt frá síðasta ári en annað hefur tekið nokkrum breytingum. Skatthlutfall og skattafsláttur 1997 Skatthlutfall staðgreiðslu breytist 1. janúar 1997 og verður 41,98%. Persónuafsláttur breytist ekki frá því sem hann var á síðasta ári og verður áfram 24.544 kr. á mánuði. Sama gildir um sjómannaafsláttinn sem verður áfram 689 kr. á dag. Skatthlutfall barna, þ.e. þeirra sem fædd eru 1982 eða síðar, er 6% í staðgreiðslu. Fjárhæð launatekna barna sem halda má utan staðgreiðslu er óbreytt frá síðasta ári eða 77.940 kr. Húsnæðissparnaðarreikningar Innborganir á húsnæðissparnaðarreikninga eftir 31. desember 1996 veita ekki rétt til skattafsláttar. Lífeyrissj óðsiðgj ald Lífeyrissjóðsiðgjaldi má halda utan staðgreiðslu þó ekki hærri fjárhæð en 4% af launum eða reiknuðu endurgjaldi. Tryggingagjald Frá 1. janúar 1997 verðurtryggingagjald 6,28%, sérstakur flokkur verður 3,88% og vegna sjómanna reiknast til viðbótar 0,65% iðgjald. Frá sama tíma telst allt mótframlag launagreiðanda í lífeyrissjóð stofn til útreiknings tryggingagjalds. Skilafrestur ýmissa gagna Verðbreytingarstuðull Ríkisskattstjóri hefur reiknað verðbreytingarstuðul skv. 26. gr. laga nr. 75/1981 fyrir árið 1996 og er hann 1,0608 miðað við 1,0000 árið 1995. Ríkisskattstjóri hefur jafnframt reiknað út sérstakan verðbreytingarstuðul fyrir árið 1996 samkvæmt ákvæðum til bráðabirgða I í lögum frá 11. desember sl. og er hann 1,0207 miðað við 1,0000 árið 1995. í framtali 1997 er heimilt að nota þennan sérstaka stuðul í stað verðbreytingarstuðuls skv. 26. gr. Vísitala jöfnunarhlutabréfa Hér má sjá vísitölu almennrar verðhækkunar í sambandi við heimild til útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1997 og er þá miðað við að vísitala 1. janúar 1979 sé 100. Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða við vísitölu frá 1. janúar 1979 eða frá 1. janúar næsta árs eftir stofnun hlutafélags eða innborgun hlutafjár eftir þann tíma, en hins vegar skal miða við vísitölu 1. janúar þess árs sem útgáfa jöfnunarhlutabréfa er ákveðin. anúar1980 anúar 1981 anúar 1982 anúar1983 anúar1984 anúar1985 anúar1986 anúar1987 anúar 1988 vísitala vísitala vísitala vísitala vísitala vísitala 1.109 vísitala 1.527 vísitala 1.761 vísitala 2.192 156 247 351 557 953 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1989 vísitala 2.629 1990 vísitala 3.277 1991 vísitala 3.586 1992 vísitala 3.835 1993 vísitala 3.894 1994 vísitala 4.106 1995 vísitala 4.130 1996 vísitala 4.245 1997 vísitala 4,390 Huga þarf í tíma að ýmsum gögnum sem skila þarf nú í upphafi árs og fyrr en varir er komið að endanlegum skilafresti. Hér má sjá skilafrest ýmissa gagna vegna greiðslna o.fl. á árinu 1996: I. Til og með 21. janúar 1997: 1. Launamiðar ásamt almennu launaframtali. Á launamiðum komi m.a. fram greiðslur til verktaka fyrir efni og vinnu. 2. Hlutafjármiðar ásamt samtalningsblaði. 3. Stofnsjóðsmiðar ásamt samtalningsblaði. 4. Bifreiðahlunnindamiðar ásamt samtalningsblaði. 5. Greiðslumiðar vegna lífeyrisgreiðslna, tryggingabóta o.þ.h. II. Til og með 20. febrúar 1997: 1. Afurða-og innstæðumiðar ásamt samtalningsblaði. 2. Sjávarafurðamiðar ásamt samtalningsblaði. III. Til og með 15. maí 1997: Gögn frá lífeyrissjóðum þar sem sundurliðuð er greiðsla iðgjalda sjóðsfélaga. IV. Til og með síðasta skiladegi skattframtala 1997: 1. Greiðslumiðar fyrir hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tölul. C-liðar 7. gr. laganna. 2. Gögn frá eignarleigufyrirtækjum þar sem fram koma upplýsingar varðandi samninga sem eignarleigufyrirtæki, sbr. II. kafla laga nr. 19/1989, hafa gert og í gildi voru á árinu 1996 vegna fjármögnunarleigu eða kaupleigu á fólksbifreiðum fyrir færri en 9 manns. M.a. skulu koma fram nöfn leigutaka og kennitala, skráningarnúmer bifreiðar, leigutímabil ásamt því verði sem eignarleigufyrirtæki greiddi fyrir bifreiðina. Æskilegt er, en þó í samráði við skattstjóra, að upplýsingum á launamiðum sé skilað á tölvutæku formi. RlKISSKATTSTJÓRI Geymið auglýsinguna

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.