Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 09.01.1997, Qupperneq 12

Helgarpósturinn - 09.01.1997, Qupperneq 12
RMMTUDAGUR 9. JANUAR1997 12 - 3 w imestt>esttn vs&h' Vvlf'V * ■ . rr VVcVd«Wv v&miiam. Frjálslyndi, öfgar og ritstuldur Aramótaútgáfur innlendra og erlendra rita eru alla jafna veglegri en annars. The Economist var með heila hrúgu af góðu efni í áramótablaðinu. Reykjavíkurbréf Morgunblaðs- ins vitnaði óspart í grein um framtíð lýðræðisins á næstu öld. Þeim sem þetta skrifar fannst þó meira varið í tveggja síðna grein um frjálslyndu stefnuna, Liberalism defined, þar sem reynt var að komast til botns í hvað hugtakið þýðir. „Liberalism" hefur á íslensku ýmist verið þýtt sem frjáls- lyndi eða frjálshyggja. Fyrri þýðingin vísar til stjórnmála- skoðana sem vinstrimenn á borð við Ólaf Ragnar Gríms- son, Jón Baldvin Hannibals- son og Bryndísi Hlöðversdótt- ur geta tekið undir með hægri- mönnum eins og Ólafí Bjöms- syni, Áma Sigfússyni og Katr- ínu Fjeldsted. Halldór Ás- grímsson og fleiri framsóknar- menn eru á sama róli. Frjáls- hyggja aftur á móti er pólitík Thatchers og Reagans, sem Hannes Hólmsteinn Gissurar- son var ákafur talsmaður fyrir á síðasta áratug og Davíð Oddsson gerði gælur við á sín- um tíma. Economist er að verja frjáls- lyndi (en ekki frjálshyggju) gegn endurnýjaðri vinstri- stefnu Verkamannaflokksins og Tony Blair annars vegar og hins vegar gegn fyrrverandi frjálshyggjumönnum, t.d. John Gray (sem kenndi Hannesi í Oxford), sem lýst hafa frjáls- lyndu stefnuna dauða. Það er af sem áður var að kappi eins og Milton Friedman átti óbil- gjarnan talsmann í Economist. Friedman er ekki nefndur á nafn í vörn blaðsins fyrir frjáls- lyndi. Önnur sérlega áhugaverð grein er um frelsið í Ameríku. Síðustu ár er vaxandi krafa frá ólíkum hópum í Bandaríkjun- um um aukið frelsi. Öfgahópar, t.d. þeir sem kenndu sig við kvísl Davíðs í Waco í Texas og populistinn Ross Perot for- setaframbjóðandi, eru sam- mála um að stjórnvöld þrengi sífellt meira áð þegnunum með eftirliti og skattaálögum. Econ- omist fer í saumana á þróun- inni og niðurstaðan er athygl- isverð. Margir þeirra sem hæst tala um afskiptasemi ríkis- vaidsins eru með beinum eða óbeinum hætti á framfæri hins opinbera. Vikuritið New Statesman öðl- aðist endurnýjaða lífdaga á liðnu ári, ekki síst fyrir aukinn áhuga á vinstripólitík í Bret- landi í kjölfar uppgangs Verka- mannaflokksins. Svo öruggt er tímaritið með að íhaldsflokkur- inn missi meirihlutann í þing- kosningunum í vor að yfirlit yf- ir valdatíma Thatchers og Maj- ors 1979-1997 fylgir með ára- mótaútgáfunni. Richard Coc- kett skrifar um hagfræði frjáls- hyggjumanna („economic li- beralism") og á þar við hug- myndafræðina sem Thatcher hóf til vegs á valdaskeiði íhaldsflokksins. Cockett tekur því fjarri að það dragi úr áhrif- um frjálshyggjunnar þótt Verkamannaflokkurinn næði völdum í vor. Hugmyndafræði- leg endurnýjun er hægfara. Thatcher byggði pólitík sína á hugmyndum sem þróaðar voru á millistríðsárunum í and- ófi gegn kommúnisma, t.a.m. af Friðriki von Hayek. Þótt stefna Verkamannaflokksins fái hljómgrunn er langt í land með að hugmyndir eins og þátttökuhagkerfið nái að lita umræðuna ■ á iíkan hátt og frjálshyggjan hefur gert. í New Statesman er viðtál við síðasta forsætisráðherra Verkamannaflokksins, Jim Callaghan, sem leggur blessun sína yfir Blair — með semingi. Bandaríska tímaritið George, ritstýrt af John Kennedy, er enn að slíta barnsskónum, á öðru starfsári. „Not just polit- ics as usual,“ er skrásett vöru- merki George. Formúlan gegn- ur út á það að hræra glassúr út í stjórnmálaskrif úrvalspenna. Norman Mailer skrifar um for- setaslaginn í haust og Wiliie Morris um morðið á mannrétt- indafrömuðinum Medgar Da; vis á sjöunda áratugnum. í Hollywood er Rob Rainer að lesefm i ara- motahefti The Economist... og George a blöndu af glassúr og stjórnmálaskrif- um úrvalspenna. ... New Statesman þrífst á vin- sældum Verkamannaflokksins gera kvikmynd um atburðinn. Skemmtileg smáfrétt er um stjörnublaðamann New Repu- blic, Ruth Salith, sem líkist Herdísi Þorgeirsdóttur í útliti, en hún var sett í bann þegar upp komst um ritstuld. Salith skreytti greinar sínar með orð- um annarra höfunda án þess að geta heim- ilda. íslenskir blaðamenn væru í vanda ef þeir byggju við jafn- strangar reglur og þeir banda- rísku. Annars er það að frétta af New Republic að tímaritið fékk nýjan ritstjóra í fyrra, eftir sögulega uppsögn Andrews Sullivan. Þá varð fjöl- miðlagagnrýnandinn James Fallows ritstjóri US News and World Report. Meira um það seinna... Svo hleypur æskan unga Allt í sleik Helgi Jónsson Tindur ★ ★ Andrea og Hanna Stella eru í 10. bekk og búa í Grafar- voginum. Þær eru hrifnar af bekkjarfélögum sínum, Axel og Jónatan. Stelpurnar ákveða að gera eitthvað í málinu og bjóða þeim í partí. Partíið fer rólega af stað en síðan eykst fjörið. Þetta er í sem stystu máli um- gjörð sögunnar Allt í sleik sem gerist á einni kvöldstund í reisuiegu húsi í Grafarvogi. Tvíræð merking titilsins gefur annars góða vísbendingu um efnið. Höfundur leggur upp með það að semja sögu handa ung- lingum, um þeirra hugðarefni og á þeirra máli. Hér er ekki reynt að innprenta lesendun- um guðsótta og góða siði. Það sem er sögupersónum efst í huga er gagnstæða kynið og það að upplifa kynlíf í fyrsta sinn. Og það er í samræmi við efnið að unglingarnir tala ekki gullaldarmál, heldur ensku- skotið nútímamál með tilvitn- anir í popp- og kvikmyndahetj- ur dagsins í dag og ljóst er að sagan gerist á árinu sem er að líða. En hvernig skyldi svo þessi kokteill hrærast? Það er áreið- anlegt að bæði efni og stíll eru í takt við tíðaranda unglinga í dag. Raunsæisblærinn er árétt- aður með því að láta söguna eiga sér stað í Grafarvogi, nýj- asta hverfi Reykjavíkur. (Nú er Breiðholtið orðið gamalgróið hverfi.) Bakgrunnur krakkanna er ólíkur. Stelpurnar búa við ríkidæmi og er partíhúsnæðið skýrt dæmi um jrað. Strákarnir eru hins vegar af efnaminni heimilum og hefði höfundur raunar mátt gera meira úr þeirri staðreynd til að skerpa á andstæðum, auk þess að und- irstrika raunsæið. Sögunni er valin sú frásagn- araðferð að hafa alvitran höf- und. Það hefði kannski verið heppilegra að hafa hlutlæga 3. persónufrásögn. í „almennri" frásögn er gjarnan notað orð- færi krakkanna, enskuslettur og tískuorð, sem er óheppi- legt. Nær hefði verið að nota formlegra orðalag en láta krakkana um hitt með orðræð- um sínum og hugsunum. Þau hafa sitt mál. Þá kemur stundum upp mis- ræmi í persónusköpun, eink- um hjá piltunum sem eru sleð- ar í skóla en vitna samt í Mar- tein Lúter og Jónas Hallgríms- son. Og ekki er hægt annað en að setja stórt spurningarmerki við vangaveltur Hönnu Stellu um mömmu sína í 1. kafla. Finnst unglingum það „kúl“ þegar mamma þeirra reynir að vera eins og tvítug stelpa, í klæðaburði og málfari? Sagan hefur annars prýðis- góða framvindu, hún er hröð, byggir upp eftirvæntingu og bækur það er passað upp á að gefa til- breytingu í frásögnina til að hún detti ekki niður. Eðli ung- linga er vel lýst að mörgu leyti. Þrátt fyrir töffaraskapinn eru t.d. strákarnir litlar hetjur í samskiptum sínum við stelp- urnar. Þeir þurfa að drekka í sig kjark þegar stóra stundin nálgast og dugar það þó varla til. Helsti galli sögunnar er þó endirinn. Ólíkt öðrum þáttum sögunnar er hann heldur vemmilegur. Hann er líka í ósamræmi við það sem á und- an er gengið, þar er raunsæið ekki lengur í fyrirrúmi. Það er reynt að „trompa" í lokin eins og gert er í Hollywood. Þá er ástæða til að minnast á stíl- brögð eins og ýkjur og klifun sem notuð eru með góðum árangri. En hvað sem öðru líð- ur ætti efni þessarar bókar að höfða til unglinga og þá er til- ganginum náð. Sagaúr sveitinni Skurðir í rigningu Jón Kalman Stefánsson Bjartur ★★★ Hér segir af sveitafólki á of- anverðri 20. öld. Höfundur velur sögu sinni nokkuð óvenjulegan búning. Þetta er ekki samfelld frásögn heldur er sagan er sögð í fjórum hlutum sem hver skiptist í stutta kafla. Þá er notast við ólíkar frásagn- araðferðir. Algengust er 3. per- sónufrásögn en sagan er líka sögð í 1. persónu, og 2. per- sónu frásögn skýtur líka upp kolli. Það er þó ljóst að ein og sama aðalpersónan á í hlut í gegnum alla söguna, drengur á ungum aldri sem auk 1. per- SKURtTIK í RICLVIN'GU sónufornafnsins kallast bara drengurinn. Þessi drengur er á barns- aldri í fyrsta hluta sögunnar. Hann hefur verið sendur í sveit í þetta hérað sem ekki er nafn- greint. (Nánari athugun leiðir hugann að Dölum eða Barða- strönd, án þess að það skipti máli.) Þar segir af heimilislífi á bænum Karlsstöðum þar sem stýrir búi sagnaþulurinn Þórð- ur, aðdáandi Þórbergs. Hann nefnir heimilishundinn meira að segja Þórberg í virðingar- skyni við meistarann. Þórður á í illdeilum við hreppstjórann sem heldur fram ágæti Hall- dórs Kiljan og nefnir beljur sínar heftir bókum hans og söguhetjum, fslandsklukka, Snæfríður o.s.frv. Aðrir héraðs- menn eru einnig kostulegir fuglar, flestir hverjir. I næstu þremur köflum er drengurinn orðinn eldri og kominn með hvolpavit. Per- sóna hans skýrist þó ekki mik- ið, enda snýst málið meirta um fólkið í sveitinni. Og lesandinn upplifir fólkið í sveitinni í gegn- um drenginn sém drekkur í sig mannlífið þar. Enda vill hann ekki fara suður átiaustin. Síð- asti hlutinn er óvenjulegastur en þar er teflt fram andstæð- um sveitarinnar og heimsborg- arinnar New York þar sem blökkumaðurinn Sam Jones úr stórborginni hefur vistaskipti við bóndann Hörð í Tungu, af óvenjulegum ástæðum. Sagan gerist upp úr 1970, að því er best verður séð; sveita- síminn sem er enn við lýði á þessum stað afmarkar tímann, auk annarra veigaminni jDátta. Innri tíminn er fáein sumur sem drengurinn dvelur í sveit- inni. Sagan er sögð í nútíð nema í þeim tilvikum þegar sögunni víkur til fortíðar. Eins og efnið gefur til kynna er húmor til staðar í frásögninni sem jafnan er mjúkur og hóf- stilltur. Höfundur notar stíl- brögð ljóðsins allmikið, en myndmál er víða að finna, án þess að það sé ofnotað. Stíll og framsetning gera það að verkum að hér er á ferð frumleg frásögn. Hún reynir á lesandann og sumir þættir hennar verða ekki túlkaðir á einn ákveðinn veg. Það má samt hafa skemmtun af enda er höfundur ritfær í besta lagi. Þetta er fyrst og fremst ástar- óður til íslenskrar sveitar, hvað sem hún heitir. Messías í bankanum Syngjandi fiskur Úlfar Þormóösson Stubbur ★ 1/2 Bankastarfsmaðurinn Jósef Jósef er fráskilinn einfari í Reykjavík. Honum er sagt upp vinnunni fyrirvaralaust eftir 33 ára hollustu við Þjóðbankann. Af einhverjum ástæðum fær hann samt áfram greidd full laun. Leið hans liggur til út- Ianda og í Amsterdam fær hann vitrun, honum er uppá- lagt að fara til ísraels sem hann og gerir. Þar liggur leið hans um Bibl- íuslóðir og umboðsmenn æðri máttarvalda tilkynna honum að guðleg forsjón ætli honum að leggja til efni í nýjan Messí- as. Hann öðlast kraftaverka- mátt og reynir hann á ýmsum þeim sem verða á vegi hans. Leið Jósefs liggur svo heim til Reykjavíkur áður en yfir lýkur. Israelsdvölin er uppistaðan í sögunni og er sagan að mestu leyti í dagbókarformi þar sem söguhetjan skráir það sem fyr- ir ber á ferðum hans. Titillinn vísar til dagbókarinnar sem er minniskompa með nafnið The Singing Fish greypt á kápu. Því er við að bæta að fyrsti og síð- asti hluti bókarinnar eru sagð- ir í 3. persónu og þar er Reykjavík söguvettvangur. Eins og við er að búast er sagan uppfull af yfirnáttúruleg- um atburðum þannig að hér er ekki á ferð raunsæisverk. Aðal- persónan er undarleg og hugs- un hennar og hegðun sömu- leiðis. Absúrdismi á la Joyce kemur líka fram í framsetningu efnisins og má þar benda á mónólóg aðalpersónunnar í 4. kafla þar sem ein setning nær yfir tvær blaðsíður. Megininntak sögunnar er ádeila á kristni og kirkju og bregður jafnvel fyrir nýrri túlk- un á orðum Biblíunnar. Gallinn við þetta allt saman er bara sá að þetta er óskaplega lítið skemmtilegt. Stíllinn hefur ein- kenni upptalningar og skýrslu- gerðar, þar sem hvert fótmál aðalpersónunnar er tíundað. Kynlífsórar hennar eru líka heldur þreytandi. Þessa sögu hefði mátt segja í mun færri orðum. Oddgeir Eysteinsson

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.